Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 59
Helgin 22.-24. maí 2015 matur & vín 59
Frábært vín
sem hlaut
gyllta glasið
2015. Dökkt og
í frábæru
jafnvægi.
Eins og hin
Rioja vínin
er þetta
nánast
gert til að
rokka með
lambinu.
Bodegas Montecillo
Vina Monty Reserva
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Tempranillo
Uppruni: Rioja, Spánn 2008
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum:
2.998 kr. (750 ml)
Vín vikunnar Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.isKlassísk og nútímaleg vín frá Montecillo í Rioja
Vina Monty
línan frá frá
Montecillo eru
nútímalegri
en þau
klassísku.
Kröftugri og
eikaðari.
Bodegas Montecillo
Vina Monty Crianza
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Tempranillo
Uppruni: Rioja, Spánn 2010
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.098 kr. (750 ml)
Já, takk. Eftir 5
ára í geymslu,
þar af tæp 2 í
eikartunnu, er
Montecillo-
inn flauels
mjúkur og
fanta-
góður.
Montecillo
Gran Reserva
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Tempranillo
Uppruni: Rioja, Spánn 2007
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
3.499 kr. (750 ml)
Eftir að hafa
legið í ár í
eikartunnu er
kominn dekkri
tónn og meiri
eik en í
Crianza.
Montecillo
Reserva
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Tempranillo
Uppruni: Rioja, Spánn 2009
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.669 kr. (750 ml)
Einfaldur og
þægilegur
klassíker frá
Rioja. Smá eik
en annars
prýðis
byrjandi.
Montecillo
Crianza
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Tempranillo
Uppruni: Rioja, Spánn 2010
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
1.978 kr. (750 ml)
Montecillo er til að mynda með risastóran
kjallara þar sem flöskunum er raðað upp í mann-
hæðarháum stæðum. Hver árgangur telur hundruð
þúsunda flaska.
„Ég vinn mikið með víngerðarmönnunum enda
viljum við halda stöðugleika í framleiðslu okkar,
ár eftir ár. Styrkur okkar er að gera vel þroskuð
vín. Við erum ekki í verðsamkeppni. Þú sérð ekki
okkar vín á þrjár evrur,“ segir Rocio sem er búsett
í Madríd og þarf því að keyra í þrjá tíma til að kom-
ast á vínekruna. Hún viðurkennir fúslega að hafa
nokkrum sinnum verið tekin fyrir of hraðan akstur
á þeim ferðalögum.
Reserva passar vel með lambinu
Rocio hefur starfað hjá Osborne síðan 2006, eins
og áður segir, en það var í nóvember í fyrra sem
henni var falið að sjá um kynningar- og markaðs-
mál fyrir Montecillo. Fram að því hafði hún vasast í
öllu hjá fyrirtækinu.
Hver er stærsti markaður ykkar?
„Stærsti markaður Osborne er Þýskaland, þar
seljum við mikið af sterku vínunum. En stærstu
markaðir Montecillo eru Bandaríkin, Kanada og
Noregur til að mynda. Okkur gengur vel á einok-
unarmörkuðum. Ætli við græðum ekki á að vera
gamalt og rótgróið merki.“
Auk þess segir Rocio að Kína sé vaxandi mark-
aðssvæði en Kínverjar keyptu einmitt 20% hlut í
fyrirtækinu fyrir skemmstu.
Hvert er svo þitt uppáhalds vín?
„Reserva stendur alltaf upp úr. Það passar ein-
staklega vel með lambakótelettum.“