Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 82
útivist & hlaup Helgin 22.-24. maí 20156
Komdu við og smakkaðu brasilíska kokteila og
smárétti og fáðu ekta brasilíska stemningu í kroppinn.
Capoeira, dans, tónlist og sumargleði.
dagarBraz
ilískir
í allan maí
Sushi Samba
Sími 566 6800
sushisamba.is
BRAZILÍSKIR SMÁRÉTTIR
Skarkoli „moqueca” 1.790 kr.
Brasilískur réttur með hrísgrjónum, koríander, chili og hvítlauk
Túnfisk ceviche 1.990 kr.
Ástríðualdin, chili, laukhringir og avókadó
Tígrisrækja 1.890 kr.
Ristuð paprika, jalapenó og kóríander
Nautalund 2.490 kr.
„Smokey” paprikugljái, sveppir og mangósalsa
Lambalund 2.290 kr.
Fejioada, chimichurri og chili-myntusósa
Sambarúlla með chilisultu – 4 bitar 1.490 kr.
Túnfiskur, rjómaostur, avókadó, mangó, jalapeno-mayo, kimchee
Surf’n turf rúlla – 4 bitar 1.590 kr.
Avókadó, humar-tempura, nauta-carpaccio, teriyaki, spicy-mayo,
chili crumble
Happy houralla daga17.00–18.30
NæriNg á göNgu
Matur
veitir
kraft
Kolvetnarík fæða hentar vel
fyrir gönguferðina og því er
gott að stinga kexi og súkkulaði
með í bakpokann.
u ndirbúningur fyrir f jall-göngu krefst meira en að tryggja réttan útbúnað og
fatnað. Til að njóta göngunnar til
fulls þarf líkaminn að vera vel nærð-
ur og er því góður matur ein meg-
inundirstaða ánægjulegrar göngu.
Þegar hugað er að því hvað sé best
að borða og drekka á göngu eru þrjá
tímasetningar á máltíðum sem þarf
að hafa í huga. Sú fyrsta er einum
eða tveimur dögum fyrir göng-
una, þá þarf að borða vel til þess
að gangan hefjist á fullum tanki
og getur skorið úr um hversu vel
ferðin tekst. Önnur er á göngunni
sjálfri, en það þarf að velja mat sem
viðheldur nægri orku til að halda
áfram og er í raun sú næring sem
fyllir á tankinn svo að líkaminn hafi
nægan kraft til að komast á toppinn.
Að lokum þarf að huga að því sem
er borðað eftir gönguna, en það þarf
ekki að vera það sama og er borðað
á meðan göngunni stendur. Eftir að
gönguferðinni lýkur þarf að borða
mat sem aðstoðar líkamanna við að
jafna sig eftir gönguna.
Þá vaknar upp spurningum um
hvað eigi að borða. Mikið, er ein-
falda svarið hinsvegar er það ekki
fullnægjandi svar. Hverskonar matar
er neytt fyrir, á meðan og eftir göngu
getur skipt sköpum. Í þessu tilfelli er
hægt að tala um að kaloría sé ekki
bara kaloría. Kolvetni er ein aðal
uppspretta orku fyrir líkamann og
þrátt fyrir að hann brenni kolvetni
og fitu og jafnvel örlitlu af próteini
á göngu, þá er það svo að ef hann
klárar kolvetnin þá dregur veru-
lega úr öllum krafti. Þess vegna er
aðaláherslan lögð á að neyta nægi-
lega mikils af kolvetnaríkri fæðu til
að halda okkur gangandi. Rétt sam-
setning á kolvetni og próteini mun
tryggja hámarks árangur. Auk þess
sem það skiptir mjög miklu máli að
drekka nóg af vökva til að halda ein-
beitingu og orku auk þess sem það
kemur í veg fyrir krampa í vöðvum.
Hér fyrir neðan eru dæmi um hvað
er hægt að borða og drekka fyrir, á
meðan og eftir göngu.
Gangan verður mun ánægjulegri og betri ef neytt er réttrar fæðu.
1 til 2 dögum
fyrir göngu:
Drekktu a.m.k. 2 lítra af vökva, en
forðastu áfengi því það getur valdið
ofþornun.
Morgunmatur: Hafragrautur með
ferskum ávöxtum, 1 harðsoðið egg
eða 1 skyrdós.
Snarl: Ávaxtahristingur, eða þurrk-
aðir ávextir.
Hádegismatur: Samloka úr heil-
kornabrauði með kjötáleggi, osti og
grænmeti og einn ávöxtur.
Snarl: Ferskir ávextir.
Kvöldmatur: Pastaréttur með kjúk-
lingi og grænmeti.
Á göngu:
Drekktu a.m.k. einn lítra af vatni áður
en þú byrjar að ganga. Byrjaðu að
drekka vatnið um leið og þú vaknar.
Drekktu á 10 til 20 mínútna fresti
á meðan göngu stendur. Um
helmingurinn af því sem þú drekkur
ætti að innihalda kolvetni og því getur
verið gott að hafa íþróttadrykki við
höndina.
Það er nauðsynlegt að borða á
meðan þú gengur til að viðhalda
orku. Forðastu fituríka fæðu því
það er erfitt að melta hana. Best er
að borða fæðu sem er kolvetnarík.
Það getur verið súkkulaði, þurrkaðir
ávextir, rúsínur eða kex.
Eftir göngu:
Eftir gönguna er einnig mikilvægt
að borða kolvetnaríka fæðu en
það er líka í lagi að borða fitu-
ríka fæðu því líkaminn tíma til að
melta fæðuna. Pasta með sósu er
tilvalin fæða og það er einnig gott
að drekka súkkulaðimjólk og borða
kex með.