Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 93
N ámskeiðið hefst á grein-ingarviðtali með ung-menninu og foreldrum/
forráðamönnum þar sem birting-
arform skaðans og alvarleiki hans
er metinn sem og ytri aðstæður.
„Birtingarform sjálfsskaða er til
dæmis stjórnleysi í netheimum, til-
finningalegur, andlegur og líkam-
legur skaði. Skaðandi hegðun er
til dæmis einelti, ofbeldi og tjóna-
hegðun,“ segir Alexander, en hann
mun vinna með unglingunum á
námskeiðinu. Hóparnir verða tví-
skiptir, eftir því hvort um er að
ræða skaða inn á við eða út á við.
Aðstoð við að ná stjórn á eigin lífi
„Við munum leggja áherslu á að
vinna með gerendum eineltis og
hvers konar ofbeldis,“ segir Alex-
ander. Markmið námskeiðsins er
hjálpa ungmennum að ná stjórn
á lífinu og auka lífsleikni þeirra
með jákvæðum hætti. „Námskeið-
ið er hugsað fyrir ungmenni sem
hafa misst stjórn á sjálfum sér, til
dæmis á netinu í gegnum sam-
félagsmiðla eða tölvuleiki, sem
getur haft skaðlegar afleiðingar,“
segir Alexander. Á námskeiðinu
verður unnið markvisst með þá
stöðu sem ungmennin eru í út
frá samskiptum, líðan og hegðun
í tengslum við fjölskyldu, vini og
skóla. „Megin nálgun er tilfinn-
inga- og erfiðleikaúrvinnsla,“ seg-
ir Alexander.
Stuðningshópur fyrir foreldra
Foreldrafræðsla fer fram um mið-
bik námskeiðs og er í höndum Guð-
rúnar. „Það eru oft foreldrar sem
hafa samband við okkur sem hafa
áhyggjur af börnunum sínum. Inn-
hópurinn er hentugt úrræði fyrir
þá sem vilja forðast biðlista eftir
öðrum úrræðum,“ segir Guðrún.
Á námskeiðinu er mikið lagt upp úr
hvatningu. „Í lok námskeiðsins fer
svo fram lokaviðtal með ungmenn-
inu og foreldrum eða forráðamönn-
um þar sem staðan er endurmetin
og lögð eru drög að áframhaldandi
utanumhaldi, ef þurfa þykir,“ segir
Guðrún. Ásamt Guðrúnu og Al-
exander kemur Elísabet Lorange
listmeðferðarfræðingur að nám-
skeiðunum. Elísabet hefur einnig
umsjón með sjálfsstyrkingarnám-
skeiðum á vegum Foreldrahúss fyr-
ir börn og unglinga í 5.- 10.bekk,
ásamt öðru fagfólki. „Nú er verið
að setja á laggirnar ný sjálfsstyrk-
inganámskeið sem eru sniðin fyrir
unglinga í framhaldsskóla. Mark-
mið þeirra er meðal annars að
vinna með félagsfærni, sjálfsmeð-
vitund og frammistöðukvíða sem
er liður í að sporna við brottfalli
úr námi sem er þekkt vandamál,“
segir Elísabet.
10 vikna námskeið
„INN“ námskeiðið er tíu vikna
langt og fer fram í einkaviðtölum
og hópum. Hópurinn hittist alla
þriðjudaga milli klukkan 15 og 17.
Fjöldi ungmenna í hverjum hópi er
á bilinu 6-14. Námskeiðið fer fram í
húsakynnum Vímulausrar æsku að
Suðurlandsbraut 50, 2. hæð (Bláu
húsin í Skeifunni). Gjald fyrir
þátttöku er 37.000 kr. Hægt er að
nýta frístundakort Reykjavíkur og
frístundastyrk Kópavogsbæjar.
Skráning og nánari upplýsingar
hjá ráðgjöfum í síma 5116160 eða
með tölvupósti á vimulaus@vimu-
laus.is.
Hjá Vímulausri æsku starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga og ráðgjafa. Hér má sjá Elísabetu Lorange, listmeðferðafræðing, Hrafndísi Teklu Pétursdóttir, framkvæmdastjóra, Guðrúnu Ágústsdóttur, foreldra-og vímu-
efnaráðgjafa, Alexander Manrique, áfengis-og vímuefnaráðgjafa og Berglindi Gunnarsdóttir, formann stjórnar. Mynd/Hari.
Inngrip í skaðlega
hegðun ungmenna
Inngripshópurinn INN er úrræði fyrir ungmenni á aldrinum
13-18 ára sem glíma við skaðlega hegðun, það er sjálfsskaða og
skaða gagnvart öðrum. Með umsjón námskeiðsins fara Elísabet
Lorange listmeðferðarfræðingur, Alexander Manrique ICADC
ráðgjafi og Guðrún B. Ágústsdóttir ICADC -og foreldraráðgjafi.
Vímulaus æska flutt
á Suðurlandsbraut
Vímulaus æska – Foreldrahús eru
grasrótarsamtök sem eru starfandi
fyrir allt landið. Samtökin voru stofnuð
árið 1986. Vímulaus æska rekur starf-
semina Foreldrahús sem var opnað
1999. Starfsemin flutti í nýtt húsnæði
í september 2014 að Suðurlandsbraut
50 og hefur komið sér vel fyrir. Af því
tilefni var formlegri opnun á nýjum
stað fagnað þann 4. desember 2014.
Starfsemi Foreldrahússins skiptist í
tvo megin flokka; forvarnir og ráðgjöf.
Í Foreldrahúsi er starfrækt fjölskyldu-
ráðgjöf, foreldrahópar, námskeið og
stuðningsmeðferð. Þegar daglegri
starfsemi lýkur tekur foreldrasíminn
581-1799 við, en hann hefur verið op-
inn allan sólarhringinn allt árið um
kring síðan 1986.
KOMDU Í
FÓTBOLTAKynningarblað