Iðnaðarmál - 01.06.1958, Side 3

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Side 3
 Athuganir ICA-sérfræðinga ... 86 Bókagjöf USIS til Tæknibóka- safns IMSÍ .................. 86 ICA veitir IMSl fjárhagsstuðn- ing ........................ 86 Hver er framleiðni atvinnuveg- anna? — Forustugrein....... 87 Snæbjörn Jónasson: Steyptir vegir........................ 88 Jón Brynjólfsson: Stöðlunar- nefnd fyrir mátkerfi ........ 91 Gunnlaugur Pálsson: N.B.D. VII.......................... 92 Gunnar Olafsson: Fjöliðjuver í Reykjavík.................. 94 Frá störfum Kjarnfræðanefndar 97 Iðnaður úti á landi, úr skýrslu atvinnutækjanefndar.......... 98 Fjárveitingar til atvinnumála .. 100 Ilæfni til að stjórna......... 100 Guðm. H. Garðarsson: Súkku- laðiiðnaður................. 101 19 leiðir til aukinnar framleiðni 13. grein: Framleiðslukostr.- aður ....................... 106 Nytsamar nýjungar ............ 109 Bandarísk smáfyrirtæki og rannsóknarstarfsemi ........ 115 Vinnulaunagreiðslur með tékk- um ......................... 115 Útgáfustarfsemi OEEC og EPA 116 NPI og produktivitetsarbeidet i möbelindustrien, skýrsla .... 117 Markaðsrannsóknir í Banda- ríkjunum.................... 119 Námskeið: Efnis- og vöruflutn- ingar í fyrirtækjum........... 119 Forsíða: Sirius-súkkulaði. Myndina tók Gunnar Rúnar Ólafsson. Heftinu fylgir efnisyfirlit 5. árg. Endurprentun háð leyfi útgefanda. Ritstjóm: Guðm. H. Garðarsson, Loftur Loftsson, Sveinn Björnsson (ábyrgðarm.). Útgefandi: Iðnaðarmálastofnun íslands, Iðnskólahúsinu, Skólavörðutorgi, Reykjavík. Pósthólf 160. Sími 19833—4. Áskriftarverð kr. 100,00 árg. Sex hefti á ári. PRENTSMIÐJAN HOLAR H-F V______________________________________/ Iðnaðarmál 5. ÁRG. 1958 • 5.-6. HEFTI Hver er framleíðní atuínnuveganna? Undanfarin ár munu lífskjör íslendinga hafa verið betri en flestra annarra þjóða. Um þessa frammistöðu, ef svo mætti nefna, gildir spakmælið, að vandi fylgir vegsemd hverri, og má segja, að nokkuð höfutn við orðið hans vör í seinni tíð, þar sem erfiðleikum hefur reynzt bundið að viðhalda þessum lífs- kjörum. Breytingar á lífskjörum þjóðar geta átt rætur að rekja til fjölmargra or- saka, sem ekki verða ræddar hér. Hins vegar er óhætt að fullyrða, að varan- legar lífskjarabætur þjóðar, sem þegar býr við tiltölulega jafna tekjuskiptingu, getur aðeins byggzt á einu: aukinni framleiðni atvinnuveganna. Þess vegna verður það mikilsvert, að hún geti gert sér grein fyrir, hvar hún er á egi stödd á hverjum tíma í þeim efnum, svo að hún geti miðað kröfur sínar við eigin getu frekar en óskhyggju. I einfaldasta skilningi er framleiðni fólgin í hlutfallinu milli heildarfram- leiðslumagns, t. d. vörutegundar, verksmiðju, atvinnugreinar eða þjóðarbús, annars vegar og eins eða fleiri þátta framleiðslunnar hins vegar, t. d. notkunar vinnuafls, fjármagns, hráefna eða orku, sem til þurfti. Bætt nýting vinnuafls eða efnis verða þannig dæmi um aukna framleiðni, meiri eða sama framleiðsla fæst með lækkuðum tilkostnaði. Afköstin verða ef til vill þau sömu og áður, en framleiðnin eykst. Framleiðnina er þannig unnt að mæla í tölulegum ein- ingum, og er það jafnan vinnuþátturinn, sem mestu máli skiptir, því að í hon- um endurspeglast bezt möguleikar þeirra, sem í hlutaðeigandi framleiðslu- grein starfa, til bættra lífskjara. Framleiðnimælingar tíðkast nú að staðaldri víða um lönd, bæði í fyrirtækj- um og heilum atvinnugreinum, og fæst þannig samanburður á frandeiðni í einstökum fyrirtækjum frá ári til árs, milli einstakra fyrirtækja í sömu at- vinnugreinum og jafnvel samanburður milli framleiðnibreytinga í heilum at- vinnugreinum. Ef gera ætti framleiðniathuganir hér á landi á víðum grundvelli, er auðsætt, að slíkt kostaði verulegt átak, enda reiknings- og skýrsluhald þjóðarbúskaps- ins ekki komið í svo gott horf enn, að nægileg undirstaða sé fyrir hendi. Oðru máli gegnir um rótgrónar framleiðslugreinar, þar sem skýrslusöfnun er þegar ídlýtarleg. Vaknar sú spurning, hvort ekki sé þegar unnt að hefjast handa um framleiðniathuganir í vissum greinum. Dæmi um nytsamlegar framleiðniathuganir, sem mætti hugsa sér, að unnt væri að hefja án mikilla erfiðleika, væri athugun á fjölda vinnustunda, sem þarf til að flaka, snyrta og pakka hvert kíló af mismunandi fisktegundum í hinum ýmsu frystihúsum okkar. Hvað gerist, þegar flökunarvélar eru teknar í notkun? Hvernig er framleiðni vinnunnar í dag? Hvernig verður hún eftir fimm ár? Öllum er kunnugt, að framleiðniaukning vinnunnar í íslenzkum landbúnaði hefur verið mjög stórstíg síðustu 15—20 ár. Framleiðslan hefur stóraukizt Framh. á 118. bls. IÐNAÐARMÁL 87

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.