Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 11
■ze. - y/. - /osra.
■S'/rjt^y.cf»Æ o r\~
A,r>/c=<jájt±£j£,
Grunnmynd.
görðunum frá götunni séð og setur
svip sinn á þá hlið húsanna. Flatar-
mál verzlunarbyggingarinnar og
kjallara húsanna er ekki meðtalið hér
að framan. Rúmgóð aðkoma að hús-
unum sem og bílastæði verða í for-
garðinum meðfram Grensásvegi, en
bifreiðaskýli við austurenda þeirra,
eins og lauslega er sýnt á uppdráttum.
Hvert hinna 6 iðnaðarhúsa er
þannig gert, að tvö stigahús ásamt
lyftu, salernum, böðum og búnings-
klefum eru kjarnar hússins.
Steyptir veggir eru ekki hugsaðir
umfram útveggi og veggi umhverfis
stigakjarnana. Allir vegghlutar með
gluggum í eru eins, bæði á hliðum og
göflum.
Jarðvegsdýpi á svæðinu, þar sem
húsin eru fyrirhuguð, er samkvæmt
mælingum nokkuð misjafnt (3—4
metrar), og er því eðlilegt, að kjallari
sé hafður undir húsunum.
I framhaldi af þessum fyrirhuguðtt
iðnaðarhúsum og í tengslum við þau
til norðurs, næst gatnamótum Grens-
ásvegar og Suðurlandsbrautar, er
haldið opnum möguleika á byggingu
stórhýsis, sem í væru skrifstofur,
verzlanir, matsalir og önnur sameig-
inleg þjónusta fyrir hinar væntanlegu
iðnaðarbyggingar í næsta nágrenni
staðarins. Þar er einnig hugsanleg
staðsetning kyndistöðvar fyrir iðnað-
arhúsin.
Gert er ráð fyrir því, að landsvæðí
það, sem nú er óbyggt austan iðnað-
arhúsanna, milli Miklubrautar og
Suðurlandsbrautar, verði í framtíð-
inni garðsvæði í tengslum við Laug-
ardalssvæðið. Ætti þannig að skapast
möguleikar á því, að hin væntanlegu
iðnaðarhús yrðu vistlegir og heilsu-
samlegir vinnustaðir, með rúmgóðum
útivistarsvæðum í nágrenninu.
Ennfremur má benda á, að hin fyr-
irhugaða staðsetning húsanna við
Grensásveg milli tveggja aðalum-
ferðaræða bæjarins, Miklubrautar og
Suðurlandsbrautar, verður vart betur
valin. Tengslin við stærstu iðnaðar-
svæði bæjarins, vestan Grensásvegar,
og hin stóru íbúðarhverfi í Langholti,
Hálogalandi, Vogum, Smáíbúða-
hverfi og hið fyrirhugaða Háaleitis-
hverfi verða einnig að teljast kostur.
Tillaga sú, sem hér er lögð fram um
iðnaðarhús eða iðnaðarblokkir við
Grensásveg, er fyrst og fremst til orð-
in af eftirtöldum ástæðum:
1. Árlega sækir fjöldi smárra iðnfyr-
irtækja um lóðir til þess að reisa á
iðnaðarhúsnæði. 011 gera þau ráð
fyrir að vaxa með bættri aðstöðu,
og nema því stærðir lóðanna, sem
sótt er um samtals og á hverju ári,
tugum hektara.
Hins vegar er fjárhagslegt bol-
magn þessara atvinnufyrirtækja
oftast svo takmarkað, að fram-
IÐNAÐARMÁL
95