Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 21

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 21
SúkkulaSiplöturnar pakkaSar í sjáljvirkri vél (ajtast), þær síSan látnar í öskjur (fremst). Vélakostur Súkkulaðiverksmiðj- unnar Sirius h.f. er nýr og fullnægir nútímakröfum við súkkulaðifram- leiðslu. Þegar fyllt súkkulaði er fram- leitt, t. d. með kremi, er formunum hvolft á hristiborðinu, þannig að súkkulaðisskel verði eftir í þeim, og fara þau síðan í gegnum sérstaka áfyllingarvél, sem fyllir í skeljarnar, og síðan í aðra steypu, sem lokar yfir áfyllinguna. Að öðru leyti er fram- leiðslan svipuð því, sem að framan er lýst. Öll vinnsla súkkulaðisins, bæði blöndun og steyping, er afdrifarík fyrir gæði vörunnar, og fullkominn vélakostur tryggir betur fyrsta flokks framleiðslu. Ef súkkulaðið er t. d. grátt eða froðukennt, má gera ráð fyr- ir, að það hafi ekki verið steypt við rétt hitastig eða að sól hafi skinið á það við geymslu. Fyllt súkkulaði er viðkvæmara í framleiðslu og geymslu en ófyllt. Mikil áherzla er lögð á vandaðar og smekklegar umbúðir, og fer öll prentun á þeim fram hérlendis. Má fullyrða, að þær umbúðir, sem nú eru notaðar, séu fyllilega sambærilegar, að því er varðar smekklegt útlit og annað, við vönduðustu umbúðir er- lendis. Hollustufæða Súkkulaðiiðnaðurinn er háþróuð atvinnugrein með miklum og vönduð- um vélakosti. Súkkulaðiverksmiðjan Sirius h.f. hefur tekið gagngerum breytingum á s.I. tveim árum, og er verksmiðjan búin vélum og tækjum sambærilegum við erlendar verk- smiðjur af svipaðri stærð. Sirius er með stærstu fyrirtækjum sinnar teg- undar hér á landi, en þar vinna nú um 7—10 manns að staðaldri. Fjöldi þeirra, sem vinna við framleiðsluna, gefur ekki rétta hugmynd um raun- veruleg afköst og stærð fyrirtækisins, eins og bezt má sjá á því, að í hinu mikla súkkulaðiframleiðslulandi, Danmörku, voru árið 1955 578 fyrir- tæki, sem framleiddu súkkulaði og sælgæti. Af öllum þessum fjölda voru aðeins 46 fyrirtæki, sem höfðu tíu og fleiri starfsmenn við framleiðsluna. Þar af voru 13 súkkulaðiverksmiðjur og 33 sælgætisverksmiðjur. Hér á landi voru samkvæmt iðnaðarskýrsl- um fyrir árið 1950 21 súkkulaði- og sælgætisframleiðslufyrirtæki, og framleiddu þau 379,6 smálestir af góðgæti. Það eru einkum konur, sem vinna að framleiðslunni. Fáar vörutegundir munu vera eins hátt skattlagðar á Islandi og súkku- laði og sælgæti. Mun það m. a. vera gert á þeirri forsendu, að súkkulaði sé engin hollustufæða, munaður, sem almenningur geti án verið. Er ekki ótítt, að fólk álíti, að súkkulaði sé ekki gott fyrir tennurnar. Rifjast þá upp sagan um danskan súkkulaði- framleiðanda, sem átti fjóra syni á barnaskólaaldri. Kvaðst hann, þegar hann var spurður um skaðsemi súkku- laðis fyrir tennur, gefa sonum sínum eins mikið súkkulaði og þeir hefðu lyst á. Sagði hann, að þeir væru með einstaklega góðar tennur, og væru þær vitnisburður um, að súkkulaði skennndi ekki tennur barna. Að sjálf- sögðu burstuðu þeir tennur sínar vel og drykkju mikla mjólk, „en,“ bætti hann við, „þegar þeir fara til skóla- tannlæknisins, þá gef ég þeim fimm krónur fyrir að segja, að faðir þeirra sé súkkulaðiframleiðandi“. Yfirlitsmynd yfir verksmiSjusal á annarri hœS.

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.