Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 25

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 25
NYTSAMAR NÝJUNGAR Ný tætivél fyrir púðaefni Austurrísk vél, sem tætir hrosshár o. fl. Tætivél, sem smíðuS hefur verið til þess aS tæta (rekja upp) mismunandi tegundir trefjóttra efna, svo sem alpha-gras, lirosshár, ull, baðmull o. fl., getur tætt og fjarlægt ryk úr 100 kg af slíkum efnum á einni klukku- stund. Afköstin verða tíföld, ef mið- að er við það, að verkið sé unnið í höndunum. Vélin er búin snúningsskífu með spöðum. Spaðaendarnir (4) eru á lausum hjörum og að minnsta kosti jafnlangt frá inntaksopinu (6) og op- ið er að þvermáli. Að þessu leyti er vélin ólík öðrum áþekkum vélurn, sem hættir til að rífa efnið og rýra þannig verðmæti þess. í vél þeirri, sem hér er lýst, þeytir loftstraumurinn, er spaðarnir fram- leiða, efninu áfram, tætir það sundur og hlæs þráðunum út um útblásturs- opið (12). Engin þörf er á sérstökum útbún- aði til þess að fjarlægja ryk, af því að hið lárétta útblástursop (12) skilur frá öll óviðkomandi efni, sem kunna að vera í þráðunum. Vélin notar 2—3 hestöfl, og verðið er (1 rafhreyfill meðtalinn) um 4.000 austurrískir schillingar. Vélin er að mestu úr viði og er svo létt, að öll gólf þola hana. Austurrískt einkaleyfi nr. 184, 818. Uppfinningamaður: Hr. Franz Panzl, Linzer Bundesstrasse 46, Salz- burg-Gnigl, Austurríki. E. T. D. nr. 1363, European Technical Digests 1957 nr. 3. Nevarot-fúavarnarefni Iðnaðarmálum hefur borizt vitn- eskja um amerískt fúavarnarefni með ofangreindu heiti. í efninu er m. a. pentachlorophenol, sem talið er gefa sérstaklega góða raun, þegar um fúa- vörn skipaviðar er að ræða (sjá bækl- ing IMSÍ „Fúi í tréskipum“). Efnið má bera á með pensli, sprauta því eða nota ídýfingu. Má nota það til hvers konar fúavarnar á húsum, skipum, gluggum, girðingum o. s. frv., og má mála yfir það. Nánari vitneskju veitir Einar Egils- son, Hjarðarhaga 17, Reykjavík. Gangsetningarvökvi Fyrir nokkru kom á markaðinn í Bandaríkjunum og Kanada nýtt efni, sem auðveldar gangsetningu stórra bíla og vinnuvéla í köldu og röku veðri, hvort heldur sem um er að ræða diesel- eða benzínmótora. Efni þetta er endurbætt gerð svipaðra efna, sem framleidd voru fyrir bandaríska her- inn í síðustu heimsstyrjöld og voru sérstaklega ætluð fyrir stórar vinnu- vélar, sem notaðar voru við lagningu Alaskaþj óðvegarins. Efnið er aðallega eter og úðunar- efni, sem blandast ekki hvort öðru, og er vökva þessum pakkað í dósir undir ca. 7 kg/cm1 2 3 4 5 þrýstingi. Vökvanum má sprauta með góðum árangri við allt frá 50°C frost upp í 80°C hita. Kveikjuhitastig vökvans er undir 200° C, en kveikjuhitastig benzíns um 550° 1. Hylki. 2. Öxull. 3. Skífa. 4. Spaðar. 5. Autt rúm milli spaðanna. 6. Inntaksop. 10. Tætarar. Röð af kömhum. 11. Kambtennur vísa f snúningsáttina. 12. Útblástursop. IÐNAÐARMAL 109

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.