Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 4
Snœbjörn Jónasson varð stúdent frá M.A. 1941, tók próf í byggingar-
verkfræði frá H.I. 1946 og stundaði síðan framhaldsnám við Eidge-
nössische Technische Hochschule í Ziirich. Hann hefur verið verk-
fræðingur hjá Vegagerð ríkissjóðs frá 1948.
STEYPTIR
VEGIR
Ejtir
SNÆBJÖRN
J ÓNASSON
verkjrœðing
ÞaS heyrist nú æ oftar um það tal-
aS, aS tími sé til þess kominn aS gera
hér vegi úr varanlegra efni en nú
tíSkast, og er þaS aS vonum. Hvar
sem ferSazt er um í Evrópu og Ame-
ríku, getur aS líta steypta og malbik-
aSa vegi, er virSast alveg óendanleg-
ir, og þá er eSlilegt, aS spurt sé, hvers
vegna ekki séu lagSir slíkir vegir á
Islandi.
Til þess eru aS sjálfsögSu ýmsar á-
stæSur og þá fyrst og fremst sú, aS
viS höfum til þessa átt fullt í fangi
meS aS koma upp vegakerfi til aS
fullnægja brýnustu þörfum almenn-
ings. ÞaS hefur tekiS lengri tíma hér
en víSa annars staSar, enda ekki aS
furSa, þar sem hver Islendingur þarf
t. d. aS standa undir kostnaSi af fjór-
falt lengri vegi en nokkur annar
NorSurlandabúi.
Steyptur vegur. Raujar sjást greinilega.
(IP'est Virginia Turnpike, U.S.A.)
88
IÐNAÐARMÁL