Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 23

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 23
Kostnaður LÍNURIT___A^_ Jafnvægispunktar Tölurnar í 1. töjlu má setja upp í línurit, eins og gert er hér til hliSar. aSili á heildarkerfið, vegna þess að upplýs- ingar koma til hans frá öllum deildum. I þeim eru söluspár, áætluð framleiðsla, fyrir- huguð efnisinnkaup og vinnuaflsþörf. Það er ætíð einhver lykilþáttur, sem hefur loka- áhrif á heildaráætlunina, oftast nær salan, en hin takmarkandi þáttur getur eins verið efni, vinnuafl eða verksmiðjuskilyrði, eins og oftlega hefur átt sér stað frá styrjaldar- lokum. Aætlanirnar eru samþykktar af þeim að- ila í fyrirtækinu, sem er ábyrgur fyrir því, að stofnað er til viðkomandi kostnaðar eða tekjuöflunar. Þegar aðalbókarinn leggur skýrslu sína um starfsemi fyrirtækisins fyr- ir framkvæmdastjórnina, getur hún séð, hvernig rekstrarástandið á þeirri stundu er samanborið við það, sem áætlað var. Upplýsingar þær, sem lagðar eru fyrir hin mismunandi stig framkvæmdastjómarinnar, eru að sjálfsögðu mjög ólíkar. Fram- kvæmdastjórinn þarf að fá heildaryfirsýn yfir reksturinn, en eftir því sem neðar kem- ur í framkvæmdastjórninni, er rekstrarár- angurinn sýndur í meiri smáatriðum og nær yfir æ minna ábyrgðarsvið. sérhverju stigi framkvæmdastjórnarinnar í té þær upplýsingar, sem það stig varða. Meðal þeirra skjala, sem send eru til æðri framkvæmdastjórnar, er heildaráætlun fyrir- tækisins, sem sýnir fyrir sérhvert tímabil binar raunverulegu kostnaðartölur til hins ákveðna dags. I henni koma ennfremur fram meginstefna og áætlun sérhverrar deildar og framkvæmdin í heild. Einstaka áætlanir, eins og t. d. eftirlit með sjóði og fljótseljanlegum eignum, mundu verða lagð- ar fram og íhugaðar með styttra millibili, þar sem aftur á móti áætlanir um fjárfest- ingarkostnað ná venjulega yfir lengri tíma og sýna stefnuna, að því er varðar endur- nýjun, nýsköpun og viðbótaröflun fram- leiðslutækja. Rekstrar- og efnahagsreikningar ásamt hjálpargögnum eru lagðir fram reglulega, eftir því sem nauðsyn krefur. Meðal þess fyrsta, sem athugað yrði í reikningum þess- um, er hlutfallið milli lausafjármuna annars vegar og skulda til skamms tíma hins vegar. í flestum fyrirtækjum er framleiðslumagnið sá þáttur, sem mest áhrif hefur á ágóða- myndunina. Er því mikilvægt, að fram komi, hvert er rnagn móttekinna pantana, sala og framleiðsla. I stuttri grein er ókleift að draga upp jafnvel binar einföldustu línur um, hversu mikilvægt það er að geta gert sér glögga grein um skiptingu kostnaðarins. Það er ekki aðeins kappsmál að vita um staðlaðan og ríkjandi kostnað sem slíkan, heldur einnig að íhuga þann kostnað, sem mismun- andi rekstrarframkvæmd eða stefna hefur í för með sér. Með tilvísun til 1. töflu er hægt að draga upp línurit (A), sem skýrir, hvað við er átt. Ef söluverðið er kr. 30 hver eining, myndi gefin sölulína sýna, að jafnvægi í rekstri fyrirtækisins, það er hvorki tap né ágóði, er við 50% afkastanýtingu (30.000 kr. sölu). 2. TAFLA Skýrsla yjir vélairýtingu Aðalvéladeild Tímabil, sem lýkur A. Jónsson verkstjóri 25. febrúar 19.. Tilbúin Aætlaðar Raunveru- til notk- fram- Ónot- legar Staðl- Flokkun ónotaðra Vél unar, leiðslu- aðar vinnu- aður klukkustunda nr. Lýsing klst. klst. klst. stundir tími A B C D E F 93 Hefill 44 22 — 22 22 94 Alhliða fræsivél . .. 44 40 2 38 32 2 — eftirvinna 4 4 — 4 3 95 Fræsivél, lárétt . .. 44 44 8 36 38 6 2 96 Fræsivél, lárétt . .. 44 44 15 29 40 9 6 97 Fræsivél, lóðrétt .. 44 26 2 36 54 2 98 Fræsivél, lóðrétt .. 44 44 5 39 42 3 2 Kostnaðartölur fyrir öll framleiðslustig Venjulegast eru kostnaðartölur fyrirtækis vel varðveitt leyndarmál, en 2. og 3. tafla sýna tegundir skýrslna, sem verkstjórn- endur í vélsmiðju nota. Af þeim má sjá, hvernig verkstjóri getur fylgzt með kostnaði og afköstum. 2. tafla er venjulegast lögð fram fyrsta vinnudag eftir það tímabil, sem hún er fyrir, og 3. tafla vikulega eða mán- aðarlega, eftir því sem kringumstæður leyfa. Frekari upplýsingar viðvíkjandi formunum er að fá í bæklingi þeim, sem vísað er til undir töflunum. List aðalbókarans er fólgin í því að láta Skýringar á bókstöfum yfir flokkun ónot- Vél nr. Athugasemdir aðra klukkustunda. 95. A. Mótor yfirbrunninn. A. Vél vantaði. 96. A. Mótor yfirbrunninn. B. Stjórnanda vantaði. 96. D. Sérstök verkfæri brotin. C. Skortur á efni. 97. A. Drifreim slitin. D. Verkfæri ekki fyrir hendi. 98. C. Rangar stengur í vinnslu. E. Tímastilling. Réttar stengur á röngum stað í F. Aðrar orsakir, sem nánari grein verður birgðahillum. gerð fyrir. Algeng skrá yfir notkun véla í verksmiðju. Venjulegast útfyllt af verkstjóra fyrsta vinnu- dag eftir að því tímabili lýkur, sem í athugun er. (Ur Measurement of Productivity — Application and Limitations, gefið út sameiginlega af Institute of Cost and Works Accountants og Institution of Production Engineers). IÐNAÐARMÁL 107

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.