Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 13
Frá störfum Kjarnfrœðcmefndar
Út er komin „Skýrsla um störf
Kjarnfræðanefndar Islands árið 1957
og verkefni ársins 1958“. En eins og
lesendum Iðnaðarmála er kunnugt, á
Iðnaðannálastofnun Islands aðild að
nefndinni.
Auk almennrar greinargerðar um
störf ársins 1957 er að finna í skýrsl-
unni sérskýrslur frá hinum sex undir-
nefndum KNÍ og tillögur þeirra um
ný verkefni, en nefndir þessar eru
þungavatnsnefnd, orkumálanefnd,
heilbrigðisnefnd, landbúnaðarnefnd,
iðnaðarmálanefnd og nefnd, er fjallar
um almennar rannsóknir.
I skýrslu iðnaðarmálanefndar, sem
skipuð er Jóhanni Jakobssyni efna-
fræðingi, Magnúsi Magnússyni eðlis-
fræðingi og Sveini Björnssyni verk-
fræðingi, segir svo:
„Hagnýting geislavirkra efna í iðn-
aði til margvíslegra nota hefir aukizt
stórkostlega á síðustu árum hjá þeim
þjóðum, sem fremst standa á sviði
kjarnfræða. Enn er þó notkun þessi á
frumstigi miðað við það, sem vænta
má að verði í náinni framtíð.
í Bandaríkjum Norður-Ameríku er
talið (Atomic Energy Facts, Sept.
1957), að iðnaðurinn hafi árið 1957
sparað upphæð, sem nemur 300—500
millj. dollara. Mest er notkunin við
„kontrol“-mælingar í ýmsum fram-
leiðslugreinum (þykktarmælingar o.
fl.) og til skyggningar á málmhlutum
(radiographic testing), en fjölmörg
önnur svið notkunar eru og tilgreind.
Þá er vitað, að umfangsmiklar
rannsóknir eru í gangi varðandi geisl-
un matvæla til að auka geymsluþol
og geymsluhæfni, og skal hér sérstak-
lega bent á tilraunir varðandi
geymslu á kartöflum, sem gefið hafa
góða raun og talið er líklegt, að muni
brátt verða notuð í stórum stíl.
Með tilliti til þessa virðist full
ástæða til, að málum þessum sé gaum-
ur gefinn og að fylgzt sé vel með þeim
nýjungum, sem fram koma, og þær
kynntar hér. Á þetta sérstaklega við
um þá hætti, sem þegar mundu hafa
beina hagræna þýðingu, svo sem hin
tvö síðargreindu atriði, er getið var
um hér á undan.
Iðnaðarnefnd leyfir sér því að
beina til stjórnar Kjarnfræðanefndar
íslands eftirfarandi:
1. Að Kjarnfræðanefnd íslands
(KNÍ) leggi áherzlu á, að hraðað
verði framkvæmdum varðandi
stofnun geislarannsóknastofu
þeirrar, sem fyrirhugað er að
starfi við Háskóla íslands, þar sem
starfsemi slíkrar stofnunar er
nauðsynlegur grundvöllur að hvers
konar hagnýtingu geislavirkra
efna í iðnaði sem og á öðrum svið-
um.
2. Að KNÍ stuðli að notkun geisla-
virkra efna við málmskyggningu
o. fl. Til að afla sem nánastra upp-
lýsinga og kynna af rannsóknum á
þessu sviði, leggi KNÍ áherzlu á,
að íslenzkur sérfræðingur fái tæki-
færi til að kynnast málum þessum,
t. d. á vegum Alþjóðasamvinnu-
stofnunar Bandaríkjanna (I.C.A.)
eða eftir öðrum leiðum, sem færar
kynnu að vera.
Sé slík kynning miðuð við að
afla hagnýtrar reynslu um notkun
ísótópa á þeim sviðum, sem hér
blasa við, jafnframt því, sem aflað
sé fáanlegra upplýsinga um annað,
sem enn er á tilraunastigi. Iðnað-
arnefnd lítur svo á, að ekki sé þess
að vænta, að iðnfyrirtæki hagnýti
geislun við framleiðslu sína, fyrr
en sérfróður maður um slík mál
lætur þeim í té þá tæknilegu að-
stoð, sem nauðsynleg er.
3. Að KNI beiti sér í auknum mæli
fyrir almennri kynningu á hagnýt-
ingu geislavirkra ísótópa í ýmiss
konar iðnaði og framleiðslu, svo
að íslenzkur iðnaður fylgist sem
bezt með framvindu á þessu sviði.“
Á öðrum stað í skýrslu KNÍ er rætt
um hina nýju geislamælingastöð, og
segir þar:
„Kjarnfræðanefndin hefur frá upp-
hafi beitt sér fyrir því, að komið vrði
á stofn geislamælingastöð til mælinga
á geislavirkum efnum. Þessi viðleitni
hefur nú borið þann árangur, að Há-
skóla íslands hefur með lögum verið
falið að reka slíka geislamælingastöð,
og mun hún taka til starfa á næsta ári.
Er ákveðið, að Páll Theodórsson,
eðlisfræðingur, starfi þar. Á fjárlög-
um þessa árs voru veittar 100.000,00
kr. til stöðvarinnar, og á fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár eru stöðinni
ætlaðar 110.000,00 kr. Þetta er miklu
minna fé en gert var ráð fyrir í tillög-
um Kjarnfræðanefndar, og ef það
fæst ekki hækkað, mundi það jíýða,
að ekki yrði hægt að sinna sjálfstæð-
um rannsóknum, heldur aðeins mæl-
ingum fyrir aðra aðila, svo sem lækna
og rannsóknastofnanir. Menntamála-
ráðherra hefur gefið vilyrði fyrir jiví,
að fjárframlag næsta árs verði hækk-
að, og standa þá vonir til, að geisla-
mælingastöðin geti hafið reglubundn-
ar mælingar á geislavirkum efnum í
lofti og í vatni, en hin kostnaðarsam-
ari viðfangsefni, svo sem kolefnis-
aldursákvarðanir og tritíumælingar,
verða að bíða.
Af hálfu Jarðhitadeildar Raforku-
málaskrifstofunnar hefur verið lögð
vaxandi áherzla á nauðsyn þess að
koma hér upp massaspektrografisk-
um mælingum á stöðugum ísótópum,
og mundi það einnig vera í þágu
Framh. á 118. bls.
IÐNAÐARMÁL
97