Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 29

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 29
Lyftitæki hentug — einiöld 1. mynd. 1. mynd sýnir þrjú lyftitæki, sem notuð eru í sambandi við flutninga- bifreiðar, tæki, sem fljótlegt er að skipta á innbyrðis. Þau eru knúin af drifi bifreiðarinnar og vökvalyftu. Tækið efst á myndinni getur lyft sex 50 kg pokum í axlarhæð á mínútu. Tækið í miðjunni er hentugt, þegar um er að ræða flutning, sem ekki má hallast, svo sem sýrugeyma, grinda- 2. mynd. kassa, fulla, opna poka, opnar, áfyllt- ar tunnur og því líkt. Einnig má nota svipuð tæki til að lyfta þungum stykkjum af eða á færibönd, eins og sýnt er á 2. mynd. Þriðja tækið (neðst á 1. mynd) getur lyft af bif- reiðum eða á þær fjórum 300 kg tunnum á mínútu. Framleiðandi: A. J. Mackaness Ltd., Englandi. A 3. mynd eru færanleg tæki til að lyfta þungum hlutum af eða á palla eða upphækkanir, 1—1 % m á hæð. Tæki þessi er hægt að fá hand- eða rafknúin, eða knúin benzínmótor. Tækið, sem sýnt er á efri myndunum þremur, er gert til að lyfta tunnum, kössum og öðrum hlutum, sem mega 3. mynd. hallast í flutningi. Tækið á þremur neðri myndunum er til að lyfta hlut- um, sem ekki má halla, um leið og þeim er lyft. Bæði þessi tæki fást í þremur stærðum. Minnsta tækið get- ur lyft 350 kg þunga og hið stærsta 750 kg. Framleiðandi: Kenton Equipment Ltd., 708 Kenton Road, Kenton, Harrow, Midd- lesex, Englandi. IÐNAÐARMÁL 113

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.