Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 20

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 20
Súkkulaðimótin koma á jœribandi að áfyllingarvélinni. Súkkulaðiplötur koma úr kœlinum og eru tilbúnar til pökkunar. , H«l slSEL ' l| | j i\l — i -Jl Kakóbaunirnar, sem koma í ís- lenzkar verksmiðjur, eru óbrenndar. Hefst vinnsla þeirra á brennslu, sem fyrr er getið, og eru þær brenndar eft- ir sérstökum reglum með tilliti til þess bragðs, sem framleiðandinn vill fá fram í súkkulaði sínu. Baunakjarn- arnir eru síðan settir í blöndunarvél ásamt nýmjólkurdufti, sem er fram- leitt hérlendis, sykri, kakósmjöri og bragðefnum í mismunandi hlutföll- um, allt eftir því, hvaða tegund af súkkulaði á að framleiða. Við þessa blöndun eru notaðar ýmiss konar vél- ar, sem slípa og smækka efniseindirn- ar við ákveðið hitastig, jafnframt því að þær blanda efnunum saman. Þessi vinnsla tekur allt að 72 klukkustund- ir, og er þá súkkulaðið tilbúið til að steypa það í plötur eða ræmur, sem fer frarn í sérstakri vélasamstæðu. Mótun I Síríus eru blöndunarvélarnar á fyrstu hæð verksmiðjubyggingarinn- ar ásamt súkkulaðigeymi með hræri- útbúnaði, þar sem súkkulaðið er geymt, frá því að það er fullunnið og þar til það er steypt. Ur geyminum er því dælt í steypuvélasamstæðuna, sem er á annarri hæð. Áður en það er steypt eða mótað, er súkkulaðið und- irkælt (þ. e. kælt undir bræðslu- mark) í sjálfvirkri vél til þess að fá rétt bræðslumark á súkkulaðifeitinni. Þessi meðferð er nauðsynleg til að fá fallega áferð á súkkulaðistykkin og koma í veg fyrir, að þau verði kröm. Þessu næst er því dælt í skammtara sjálfvirkrar vélar, sem fyllir ákveðið magn í mótin. Mótin ganga eftir færi- bandi í gegnum vélina á hristara, sem jafnar súkkulaðinu í mótinu og kem- ur í veg fyrir, að loftbólur myndist í súkkulaðiplötunni. Síðan flytja færi- böndin þau í gegnum kæliskápa, þar sem súkkulaðið storknar og losnar jafnframt í mótunum vegna rúmmáls- breytingar, sem á sér stað við kæl- inguna. Súkkulaðiplöturnar eða ræm- urnar eru nú tilbúnar til pökkunar, en hún er framkvæmd í vélum, sem eru í beinu framhaldi af vélasamstæðu þeirri, er að framan greinir. 104 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.