Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 26

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 26
VeriS að úða gangsetningarvökva inn í lojtinntak vélarinnar. C, þegar vélin snýst 50—75 snúninga á mínútu, og kveikjuhitastig dieselol- íu rúmar 300°C, þegar vélin snýst 100 —150 snúninga á mínútu. Þegar vélar eru settar í gang með gangsetningarvökva þessum, er hon- um úðað inn í loftinntak vélarinnar, eins og sýnt er á myndinni. Vélin get- ur haft nokkuð ójafnan gang fyrst í stað, en haldið er áfram að úða vökv- anum inn í hana, þar til gangurinn er orðinn jafn. Innihald einnar dósar eins og þeirrar, sem sýnd er á mynd- inni, á að endast 50—75 sinnum. Framleiðandi efnisins er: Spray Products Corp., P. 0. Box 584, Cam- den 1, New Jersey, U.S.A. Ur „Mass Transportation", sept. 1958. Ný tegund flúrskinslampa fyrir herbergi, þar sem hátt er undir loft Það er alltaf vandkvæðum hundið að lýsa verkstæði, einkum skýli, þar sem hátt er til lofts. Er þetta sérstak- lega erfitt, ef ryk og reykur myndast við framleiðsluna og hlífarnar á Ijós- unum verða fljótt óhreinar. í Hollandi var nýlega búinn til flúr- skinslampi, sem leysir þetta vanda- mál. Er hann 375 vött, kúlulagaður og með spegli að innan. Ljósgeislinn 1. mynd. frá honum er tiltölulega breiður og veit niður á við, eins og sýnt er á 2. mynd. Þar eð spegillinn er innan í kúlunni, nær hvorki ryk né reykur til hans, og endurkastsgeta hans er því raunverulega jöfn allan þann tíma, sem lampinn endist. Framleiðandi: N. V. Philip’s Gloei- lampen-fabrieken, Eindhoven, Hol- landi. E. T. D. nr. 2016. European Teclinical Digests 1957 nr. 12. Útbúnaður til varnar því, aS stigar skriki Tilgangur: Sökum þess að mörg slys stafa oft af því, að stigar renna til, hefur verið fundinn upp öryggis- útbúnaður, sem auðvelt er að festa á stigana. Það eru einkum málarar, sem hafa þörf fyrir þennan öryggisútbún- að, þar eð þeir nota tíðum stiga við störf sín. 110 IÐNAÐ ARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.