Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 27

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 27
Til er margs konar útbúnaður til þess að koma í veg fyrir, að stigar renni til, t. d. „stigaskór“ úr gúmi eða blýi, en þetta er ekki algjörlega ör- uggur útbúnaður. „Stigaskór“ úr gúmi eru öruggir á þurru parketgólfi, en á röku tígulsteinagólfi koma þeir að litlu haldi. Þeir geta jafnvel orðið til þess, að stiginn renni frekar til. Einstefnu-íæriskrúía auð- 1. mynd. Meðfylgjandi myndir sýna hina svonefndu MONOFLO-færiskrúfu, sem nota má víða í verksmiðjum við tilfærslur á léttum hlutum. Færiútbúnaður þessi er gerður af 2 cm þykkri stálskrúfu, sem snýst í málmrennu opinni að ofan. Færi- skrúfan er knúin af hestafls raf- hreyfli, sem komið er fyrir við annan enda málmrennunnar. Rafhreyfillinn hefur breytilegan snúningshraða (mest 480 snún. á mín.), svo að hlut- irnir, sem hengdir eru í krók á færi- skrúfuna, berast eftir rennunni með allt að 3þó m hraða á mín. Er þetta sýnt á 1. mynd. Einnig sést á henni, hvernig beygja má færiskrúfuna í allt að 4 feta hringradíus og halla henni um allt að 15°. Mesti þungi, sem færi- skrúfan getur flutt, er 15 pund á hvert lengdarfet (50 feta færiskrúfa flytur 750 pund). 2. mynd sýnir, hvernig koma má fyrir útbúnaði við enda færiskrúfunn- ar, t. d. hallandi stálpípu, sem hlutirn- Hinn nýi útbúnaður, sem hér er sýndur og heitir „Ku-Ni-Stehefest“, hefur engan þessara ókosta. Hann er úr tveimur samtengdum örmum, sem hægt er að opna og festa í þremur stöðum. Auðvelt er að fara með þenn- an útbúnað og festa við hvaða stiga sem er. Er hann úr stáli fyrir stiga, sem eru allt að 5—9 metra. Ennfrem- ur getur hann verið úr alúminíum. Framleiðandi: Fa. C. de Krijger, Amsterdam, Hollandi. E. T. D. nr. 1598. European Teclinical Digests 1957 nr. 6. 2. mynd. IÐNAÐARMÁL 111

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.