Iðnaðarmál - 01.06.1958, Qupperneq 6

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Qupperneq 6
Um margt voru ræðumenn sam- mála og þá sérstaklega um yfirburði steyptra vega fram yfir aðra, að því er varðar endingu og þol. Má þar til dæmis nefna, að af vegum, sem voru gerðir í Þýzkalandi á árunum 1931— 35 eru 82,5% af steyptum vegum enn í notkun, en 39,5% af malbikuðum vegum með þykku malbikslagi. Einn- ig voru þeir sammála um, að undir- bygging steyptra vega þurfi að vera mjög vandlega gerð, en það stingur í stúf við eldri kenningar um, að hin stinna steypuhella dreifi notþungan- um svo vel yfir undirbygginguna, að eigi þurfi að vanda til hennar. Reynsla síðari tíma hefur sýnt, að til þess að vegurinn endist sem lengst, þarf undirbyggingin að vera úr efni, sem breytir sér ekki í frosti, til þess að frostlyftingar eigi sér ekki stað. Þjappa þarf efnið mjög vel, til þess að það missigi ekki heldur, og enn- fremur þarf að sjá fyrir, að vatn geti ekki safnazt fyrir í undirbyggingunni. Af þessu leiðir eðlilega, að gera þarf stundum miklar og kostnaðar- samar framkvæmdir í sambandi við undirstöðu steyptra vega, t. d. að grafa burt mýrajarðveg úr vegarstæði og fylla í hans stað upp með sandi eða öðru nothæfu efni, o. s. frv. Steypuhellan sjálf er að sjálfsögðu gerð á margvíslegan hátt eftir aðstæð- um, og um hana eru sérfræðingar ekki eins sammála. Þykkt hennar er þó svipuð víðast hvar, eða um 20— 25 cm í fjölförnum vegurn. Kröfur um gæði steypunnar sjálfrar eru og yfir- leitt miklar alls staðar, og eru nú vegir vart steyptir, svo að neinu nemi, nema með fullkomnum vélasamstæðum. Um notkun ste)rpustyrktarjárns eru skoðanir skiptar, þó ekki um gagn- semi þess, heldur hvort ending og gæði vegarins aukist að sama skapi og kostnaður eykst við notkun þess. T. d. nota Hollendingar ekki járn. Þjóðverjar telja hins vegar reynslu sína mæla eindregið með því og færa til þess aðallega tvær ástæður. Er önnur sú, að með því móti megi hafa lengra milli þensluraufa, en þær eru bæði kostnaðarsamar í hyggingu og sá hluti vegarins, sem mest viðhald þarf, auk þess sem þær veikja veghell- una. Hin ástæðan er sú, að sprungur í steypunni eru ekki hættulegar, ef þær ná ekki að opnast, og þar sem nægi- legt steypustyrktarj árn er fyrir hendi, er það tryggt. Enskur fyrirlesari tók einnig í sama streng. I flestum lönd- um er það látið fara eftir aðstæðum, hvort járn er notað eða ekki. Eins og áður er að vikið, eru raufar veikur og kostnaðarsamur liður í steyptum vegi. Hefur það því æ verið eitt aðalkeppikefli vegagerðarmanna að gera þær sem bezt úr garði, hafa þær sem fæstar og helzt að sleppa þeim alveg. Af þessu leiðir, að margar aðferðir eru notaðar, og því hefur enn ekki fengizt úr því skorið, hvað bezt er. Raufarnar eru tvenns konar: a) raufar, sem skilja að hluta af steypuhellunni, svo að hver hluti fyrir sig geti þanizt út eða dregizt saman eftir hitastigi. Þær raufar eru nefndar þensluraufar. Þær eru þvert yfir veginn og venjulega þannig úr garði gerðar, að öðrum megin raufarinnar eru járnteinar steyptir fastir í helluna, sem ganga inn í helluna hinum megin við hana, en geta dregizt til í henni, þannig að hreyfing getur hindrun- arlítið farið fram í stefnu vegar- ins. Raufar þessar valda töfum á steypuvinnunni, misfellum á yfir- horði vegarins og auka á þá hættu, að vatn komist niður í und- irbygginguna. b) raufar, sem ekki leyfa neina hreyf- ingu, en tryggja, að sprungur komi ekki þar, sem þær mega ekki koma. Þannig eru raufarnar eftir endilöngum vegunum, sem skipta honum upp í akbrautir. Sömuleið- is eru slíkar raufar settar þvert yfir veginn með stuttu millibili, þegar vegurinn er lítið eða ekki járnbentur. Þær eru nú orðið venjulega gerðar með því að leggja lista í steypuna neðst, en saga rauf í yfirborðið yfir listan- um. Slitnar þá hellan sundur milli lista og raufar við samdrátt steyp- unnar. Þar sem raufar veikja veginn, gera hann dýrari og tefja verkið, er ekki nema eðlilegt, að reynt sé að fækka þeim sem mest eða að sleppa þeim að mestu leyti. Hvort þetta tekst að ein- hverju leyti, kemur brátt í ljós, því að mikið hefur á seinni árum verið gert með þetta fyrir augum, t. d. að setja bara rauf að loknu dagsverki. Hol- lendingar hafa einnig gert tilraunir með að steypa sérstaka hellu í undir- byggingu vegarins á þeim stöðum, þar sem þensluraufar eiga að vera í hellum, til þess að burðarþolið rýrni ekki. Síðan farið var að steypa vegi með vélasamstæðum, sem renna á stáltein- um meðfram steyptu hellunni, sem eru um leið steypumót, hafa vegir þessir batnað mikið, að því er varðar akstursgæði (riding quality), og sér- staklega síðan farið var að saga rauf- ar í yfirborðið í stað þess að ganga frá þeim, um leið og steypt var. Eru þeir nú taldir vega þægilegastir, ef þeir eru vel gerðir, og er það m. a. því að þakka, hve ljósir þeir eru, en bæði eykur það öryggi við akstur í myrkri og reynir ekki nærri eins á augu bíl- stjóra. Þar sem götulýsing er, sýna ljósmælingar, að þurrt steypt yfir- borð endurvarpar um 30% af Ijósinu, en blautt yfirborð um 20%, en mal- bikaður vegur endurvarpar aðeins 8% af ljósinu. Nefna má enn sem einn aðalkost við steypta vegi, hversu viðhald er lítið á þeim. Árlegt viðhald, sem að mestu leyti er fólgið í viðhaldi á rauf- um, er t. d. talið 0,05 sv. fr./m2 í Sviss, 0,04—0,05 n. kr./m2 í Noregi og svipað annars staðar. Að lokum má geta þess, að það var álit ræðumanna á þessari ráðstefnu, að með þeirri reynslu, sem fengin er af steyptum vegum, mætti gera vegi, sem hefðu 50 ára meðalendingu. Ef það er rétt, má vera ljóst, hve mikið þarf að vanda allan undirbún- ing slíkra vega, ef þeir eiga að koma að sem mestum notum allan þann tíma. 90 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.