Iðnaðarmál - 01.06.1958, Side 14
<J<$Ha<$ur úii á íaudi
Skýrslur atvinnutækjanefndar um
atvinnuástand og aðstöðu til atvinnu-
rekstrar í 53 bæjum og þorpum á
Norður-, Austur- og Vesturlandi eru
komnar út. Auk skýrslnanna um ein-
staka bæi og þorp er þar að finna
heildarskýrslur um íbúafjölda, hafnir,
fiskiskip, fiskafla, vinnslugetu frysti-
húsa, skreiðar- og saltfiskframleiðslu,
fiskmjöls- og síldarverksmiðjur og
framleiðslu þeirra, síldarsöltunar-
stöðvar, iðnað og landbúnað í þess-
um 53 bæjum og þorpum.
Til fróðleiks lesendum Iðnaðar-
mála, sem ekki hafa séð skýrslur at-
vinnutækjanefndar, leyfir blaðið sér
að birta hér heildarskýrslu nefndar-
innar um iðnað (sjá næstu síðu).
Segir svo í greinargerð um þessa
skýrslu:
„I skýrslu þessari eru skráð nöfn
sömu staða og í I. skýrslu (mann-
fjöldaskýrslunni), en í rauninni tek-
ur hún þó ekki til nema 36 staða, því
að á 17 stöðum eru ekki upplýsingar
um, að neinn iðnaður sé stundaður af
því tagi, að talinn verði í þessari
skýrslu. Hraðfrystihús, síldar- og
fiskimjölsverksmiðjur og fiskverkun-
arstöðvar eru ekki taldar hér, enda
eru þessi atvinnutæki þegar talin í
öðrum skýrslum. Sláturhús og kjöt-
frystihús eru heldur ekki talin í þess-
ari skýrslu, en hins vegar er þeirra
getið í skýrslum um einstaka bæi og
þorp. Byggingariðnaður utan verk-
stæða er heldur ekki talinn. I 1. dálki
þessarar skýrslu eru talin verkstæði,
sem annast viðgerðir bifreiða, land-
búnaðarvéla og bátavéla, í 2. dálki
trésmíðaverkstæði og tunnuverk-
smiðjur (2, á Siglufirði og Akureyri),
í 3. dálki skipa- og bátasmíðastöðvar
og í 4. dálki önnur verkstæði og verk-
smiðjur ýmiss konar, en í athuga-
semdum eru tölur í þessum dálki nán-
ar skýrðar. í 5. dálki er svo tilgreint,
hversu margt fólk vinni að jafnaði
samtals í verkstæðum þeim og verk-
smiðjum, sem skýrslan greinir frá, en
þar sem verksmiðja eða verkstæði var
ekki starfandi árið 1956, er ekkert
starfsfólk talið. Hér er um að ræða
faglærða iðnaðarmenn, sem í verk-
smiðjum og verkstæðum vinna, ófag-
lærða menn, sem vinna sömu störf og
þeir, svo og ófaglært verksmiðjufólk,
sem er talið í 8. dálki í I. skýrslu. I
þessari (IX.) skýrslu á því að koma
fram allur 8. dálkur I. skýrslu og
nokkuð úr 6. dálki sömu skýrslu, en
gera má ráð fyrir, að í verksmiðjun-
um vinni líka eitthvað af fólki, sem
talið er í 4. og 5. dálki I. skýrslu, en
ætti þar að teljast til verksmiðjufólks.
Alls vinna í verkstæðum og verk-
smiðjum samkv. þessari (IX.) skýrslu
1167 manns. Véla- og bílaverkstæði
eru alls 49, tré-(og tunnu-)smiðjur
45, skipa- og bátasmíðastöðvar 12, en
önnur verkstæði og verksmiðjur 63.
Eflaust er eitthvað ótalið af litlum
verkstæðum, þar sem t. d. einn maður
vinnur í ígripum, og sjálfsagt sinna
ýmsir viðgerðum í smáum stíl, þótt
ekki sé talið, að þar sé um verkstæði
að ræða. Geta má þess, að á 21 stað
virðast engin bila- eða vélaverkstæði
vera starfandi og að verkstæðis- og
verksmiðjuiðnaður í smáum stíl er
hvergi nærri svo almennur sem ætla
má, að hann geti orðið og þurfi að
vera (t. d. viðgerðarstarfsemi).
Skýrslan er aðallega gerð samkv. upp-
lýsingum sveitarstjórna og upplýsing-
um, sem nefndin hefur aflað sér á
ferðum sínum.“
Þá segir svo í niðurlagi skýrslunn-
ar um iðnað:
„Starfsemi iðnaðar, sem fram fer í
verksmiðjum og verkstæðum, hefur
lítið aukizt á Vestur-, Norður- og
Austurlandi síðustu þrjú árin. Véla-
og bílaverkstæði eru á 32 stöðum af
53, sem skýrslur taka til. Þörf er þó á
slíkum viðgerðarverkstæðum á fleiri
stöðum og verkefni vaxandi við við-
gerðir á vélum og tækjum sjávarút-
vegs og landbúnaðar, bifreiðum o. fl.
Auk þess sem viðgerðarverkstæði
vantar á ýmsum stöðum, eru nokkur
þeirra, sem starfandi eru, vanbúin að
tækjum til að geta leyst af hendi, svo
að vel sé, nauðsynlegar viðgerðir.
Skipasmíðastöðvar eru 12 á svæð-
inu; 3 á Vesturlandi, 6 á Norðurlandi
og 3 á Austurlandi. Nokkrar skipa-
smíðastöðvar starfa eingöngu að
bátaviðgerðum og smíði smábáta. Sjö
skipasmíðastöðvar starfa jafnhliða
bátaviðgerðum að nýsmíði stærri
fiskibáta. Á árinu 1957 voru 4 fiski-
bátar yfir 20 rúml. í smíðum í skipa-
smíðastöðvunum auk minni fiskibáta
og hringnótabáta. Á Akureyri var á
árinu 1957 hafin smíði hringnóta-
báta úr stáli. Voru þar smíðaðir tveir
slíkir bátar.
Á Vesturlandi eru 4 niðursuðu-
verksmiðjur. Eru 3 þeirra aðallega
starfræktar við niðursuðu á rækjum,
en ein þeirra (á Hólmavík) er ekki
starfrækt. Á Norðurlandi eru 3 litlar
niðursuðuverksmiðjur, á Sauðár-
króki, Siglufirði og Akureyri. Eru 2
þeirra starfræktar nokkuð, en ein (á
Sauðárkróki) hefur ekki starfað síð-
ustu árin. Þær útflutningsvörur, sem
helzt virðast koma til greina í þessu
sambandi, eru niðursoðin eða niður-
lögð síld, reyktur ufsi (sjólax), þorsk-
hrogn og grásleppuhrogn. Ýmsir telja,
að möguleikar til sölu á slíkum vörum
erlendis séu vaxandi, og er þetta mál
í athugun. En notkun niðursuðuvara
er, eins og kunnugt er, mikil víða um
heim, þótt hér hafi ekki enn tekizt út-
flutningur í stórum stíl á þessu sviði.“
98
IÐNAÐARMAL