Iðnaðarmál - 01.06.1958, Side 35

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Side 35
Markaðsrannsóknir í Bandaríkjunum Starf F ramleiðniráðs Evrópu (EPA) og samstarfsstofnana hennar í hinum ýmsu aðildarríkjum OEEC hefur m. a. í töluverðum mæli gengið út á að kynna evrópskum framleið- endum og sérfræðingum bandaríska framleiðsluhætti. Hafa fjölmargar kyrmisferðir evrópskra aðila verið skipulagðar urn Bandaríkin, og einn- ig hefur EPA stuðlað að heimsókn- um sérfræðinga frá Bandaríkjunum til Evrópu. Má segja, að þessi starf- semi hafi borið góðan ávöxt og í mörgum tilfellum oröið til þess, að aörir og betri framleiðsluhættir hafa verið teknir upp í iðnaði Evrópu og atvinnulífi almennt. En EPA hefur ekki eingöngu ein- beitt sér að eflingu og framförum í framleiðslu í eiginlegri merkingu, heldur hefur einnig látið þá hliÖina til sín taka, sem raunar er sízt lítil- vægari, en það er markaðurinn fyrir það, sem framleitt er. í markaðsrann- sóknum hafa framfarir í Bandaríkj- unum verið stórstígar undanfarin ár. Er það einkum þekking á markaðn- um, þ. e. óskum fólks og þörfum, svo og samsetningu markaösins, sem tíma og fjármunum er eytt í að kanna. Þessi starfsemi hefur og aukizt tölu- vert í Evrópu á síðari árum, enda notagildi þessara rannsókna ótvírætt. Þessi markaösstarfsemi fer fram bæði hjá einstökum fyrirtækjum — einkum þeim stærri (að sjálfsögðu má segja, að flest fyrirtæki, sem starfa að framleiöslu og dreifingu varnings, hafi misjafnlega víðtækar markaðs- rannsóknir með höndum), en einnig á vegum samtaka iðnfyrirtækja og atvinnugreina. I þriðja lagi er slík starfsemi rekin á einkarekstrargrund- velli og hefur þar e. t. v. náð lengst, a. m. k. í Bandaríkjunum. Fyrir skömmu efndi EPA til kynn- isfarar nokkurra aðila frá ýmsum meÖlimaríkjum OEEC um ýmsar borgir og héruð Bandaríkjanna, og áttu þátttakendur í förinni að kynna sér þá starfsemi, sem samtök iðnfyrir- tækja hafa með höndum á sviði mark- aðsrannsókna og í hverju aðstoö þessara samtaka við meðlimafyrir- tækin í þessum efnum væri fólgin. AS tilhlutan IMSÍ ákvað Félag ísl. iðn- rekenda í samráði við Fiskifélag Is- lands að senda fulltrúa, og varð Már Elísson hagfræðingur fyrir valinu sem þátttakandi frá íslandi, en hann hefur undanfarið kynnt sér ýmsar hliðar markaðsrannsókna. Ferðin stóð yfir frá 19. sept. til 23. okt. s. 1. Hófst hún í Washington og endaöi í Boston, eftir nokkra við- dvöl í Chicago, Philadelphiu og New York. Voru heimsóttar skrifstofur margra samtaka, sem sérstaklega leggja á- herzlu á markaðsrannsóknir fyrir meðlimi sína, en einnig voru ýmsar stofnanir heimsóttar, sem reknar eru á einkarekstrargrundvelli. Þar að auki gafst þátttakendum tækifæri til að kynnast þeirri starfsemi, er Banda- ríkjastjórn heldur uppi til aðstoðar atvinnulífinu í landinu, einkum að því er varðar söfnun skýrslna og gagna og útgáfu þeirra. Einnig var þátttakendum í ferðinni gefinn kost- ur á að kynnast ýmsum rannsóknum, er opinberir aðilar halda uppi í sam- bandi við atvinnulífið og atvinnu- ástandið almennt. Már Elísson mun rita skýrslu um för sína, þar sem hann mun gera grein fyrir því, sem lærdómsríkt má teljast fyrir framleiðendur innan vé- banda saintaka þeirra, sem stóðu að för hans. NÁMSKEIÐ Efnis- og vömfliitningar í fyrirtækjum I marzmánuði næstk. er ráðgert að halda námskeið á vegum Iðnaðar- málastofnunar Islands í efnis- og vöruflutningum fyrirtækja (materials handling). Námskeið þetta verður haldið í samráði við Framleiðuiráð Evrópu (EPA), og kemur hingað í þessu skyni sérstakur ráðunautur Framleiðniráðs í þessum málum. Mr. H. E. Stocker. Iðnfyrirtækjum, flutn- ingafyrirtækjum og öðrum, sem áhuga hafa, verður gefinn kostur á að fá Mr. Stocker til viðræðna um sér- vandamál. Námskeið þetta verður tilkynnt síð- ar í blöðum og útvarpi, en þeir, sem óska, geta snúið sér til IMSÍ til að fá frekari upplýsingar. S. B. FjárhagsstuSningur ICA Framh. af 86. bls. hugsanlegrar fosfatáburðarfram- leiðslu, stjórn á framleiðslu og dreif- ingu sements (kynnisför), notkun geislavirkra efna í iðnaöi, landbúnaði og læknisfræðum (námsför), sér- fræðileg aðstoð umferðasérfræðings auk margs annars. Munu Iönaðarmál gefa lesendum sínum kost á að fylgj- ast með framvindu þessara mála og annarra, sem kunna að verða tekin fyrir síðar. Augljóst er, að aðstoö ICA nær til margra og óskyldra málefna og að ís- lendingar eiga hauk í horni, þar sem hin bandaríska stofnun er. S. B. IÐNAÐARMAL 119

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.