Iðnaðarmál - 01.04.1967, Blaðsíða 19
Hjolporfoss
Power house
■MH
Fosso
Tröllkonuhlaup
Thjófafoss
2. mynd. Loftmynd aj Búrfellssvœðinu. Virkjunarmannvirki teiknuð iim á myndina.
uð nýtanleg orka hennar er um 9600
milljónir kílówattstunda á ári, þar af
tæplega Ys á virkjunarsvæðinu við
Búrfell.
Meðalrennsli Þjórsár við Búrfell
er um 340 teningsmetrar á sek., en
20 ára mælingar hafa sýnt mesta
flóðrennsli um 2000 og minnsta
rennsli 72 teningsmetra á sek. Helzta
vandamál við virkjun Þjórsár eru
hinar margvíslegu ísmyndanir, og
var sú lausn valin að fleyta ísnum
yfir stífluna, en veita vatninu til afl-
stöðvarinnar.
BúrfellssvæSið:
Jarðmyndanir á Búrfellssvæðinu
eru mjög fjölbreytilegar, og verður
þeim ekki lýst hér að ráði. Þess skal
þó getið, að milli Búrfells og Sauða-
fellsöldu, austan Þjórsár, hafa runn-
ið sjö Þjórsárhraun, en milli hraun-
lagana eru misþykk lög af vikri og
sandi. Elzta hraunlagið er um 8000
ára gamalt, en hið yngsta um 4000
ára. Þessi hraun og lögin milli þeirra
hafa fyllt upp í skarðið milli Búr-
fells og Sauðfellsöldu og myndað
fallhæð Þjórsár þarna, sem nú á að
víkja.
IÐNAÐARMAL
53