Iðnaðarmál - 01.04.1967, Síða 21
á aðalstífluna, liggja inntök veitu-
mannvirkjanna, og sýnir 5. mynd
þverskurð þeirra. Efst er sérstök ís-
renna, í miðju vatnsinntak til afl-
stöðvarinnar og neðst inntak fyrir
botnaur. Is, botnaur og skolvatn fara
út í Bjarnalækjarskurð, eftir honum
í Bjarnalæk og út í Þjórsá um 3 km
neðan við Tröllkonuhlaup. Yfirfallsís
yfir aðalstíflu má veita yfir í Bjarna-
lækjarskurð eða beint niður Þjórsá
sj álfa.
Frá inntaki fer vatn til aflstöðvar-
innar um veituskurð yfir í Bjarnalón,
sem verður um 1 ferkílómetri að
flatarmáli og geymir um 6,5 millj.
teningsmetra við venjulega vatns-
stöðu. I neðri enda Bjarnalóns er
inntak jarðganganna, sem eru 10 m
í þvermál, ófóðruð, en þétt með sem-
entseðj u í rifur og sprungur og
steypt gólf í botni. Þessi göng eru
rúmlega 1000 m löng og grafin gegn-
um blágrýtislög Sámsstaðamúla, áð-
ur en þau greinast í tvö, fóðruð
þrýstivatnsgöng. Um 50 m neðan við
greininguna eru tvær samtengdar
jöfnunarþrær, sín yfir hvorum þrýsti-
vatnsgöngum. Sambyggðar þrónum
eru öryggislokur, sem gera kleift að
loka snögglega fyrir vatnsrennslið, ef
einhver bilun á sér stað. Rétt ofan
við stöðvarhúsið greinast hvor göng
í þrjár greinar, sem liggja að hverfl-
um stöðvarinnar.
Stöðvarhúsið er 12,7 m á hæð of-
an jarðvegsborðs, en 18,2 m neðan
þess. Það er 18,6 m breitt, 84,7 m
langt. Það er óeinangrað, en veggir
þess eru einn m á þykkt. A 9. mynd
er sýnt líkan af stöðvarhúsinu. A
framhlið þess verður höggmynd eftir
Sigurjón Ólafsson myndhöggvara. í
stöðvarhúsinu verða 6 hverflar af
Francis-gerð auk rafbúnaðarins. Frá
hverflunum fer vatnið um sográsir
út í stuttan skurð, sem flytur það í
Fossá, en hún rennur í Þjórsá um 2
km neðar.
Rétt norðan við stöðvarhúsið verð-
ur spennistöð virkjunarinnar. Frá
henni liggur ein einrása 220 kV lína
um írafossstöð að Geithálsi og þaðan
ein tvírása 220 kV lína til fyrirhug-
aðrar álbræðslu við Straumsvík.
IÐNAÐARMAL
55