Iðnaðarmál - 01.04.1967, Page 38
ORÐSENDING frá IÐNAÐARMÁLUM
Kæru áskriiendur.
Ef snigillinn er svo óheppinn að missa höfuðið, þá grær á
hann annað nýtt.
Salamandran á hinn bóginn — eða öllu heldur í hin endann
— endurnýjar halann auðveldlega ef hún missir hann.
Krabbinn endurnýjar griparma sína — svo þokkalegt sem
það er — og svampurinn endurnýjar hvaða part sem er — svo
ótrúlegt sem það er.
Ef þið skerið krossfisk í sundur, þá eru þar komnir tveir
krossfiskar áður en maður veit af.
Klipptur runni grær með endurnýjuðum krafti. Fjölærar jurt-
ir bera blóm ár eftir ár, og vonin blómgast að eilífu.
En áskrift „Iðnaðarmála" aftur á móti endurnýjar sig ekki
sjáif. Til þess þarf ofurlitla hjálp frá ykkur. Þið þurfið aðeins
að greiða póstkröfuna, sem þið fáið í hendur. Það er svo auð-
velt, að snigillinn og salamandran mega skammast sín. Því
að auðvitað látið þið ekki snigil eða krossfisk fara með sigur
af hólmi.