Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2015, Síða 19

Læknablaðið - 01.04.2015, Síða 19
LÆKNAblaðið 2015/101 203 Inngangur Svefnleysi er útbreitt heilsufarsvandamál. Talið er að um þriðjungur fullorðinna greini frá einu eða fleiri einkennum svefnleysis, eins og erfiðleikum með að sofna, erfiðleikum með að sofa eða vakna of snemma. Að auki upplifa 10-15% fullorðinna skerta getu í kjölfar svefnleysis, svo sem í starfi og félagslífi og 6-10% hafa einkenni sem mæta greiningarviðmiðum svefnleysis- röskunar.1 Ómeðhöndlað svefnleysi getur aukið líkur á geð- rænum vanda eins og þunglyndi og kvíða og líkam- legum kvillum, svo sem háþrýstingi.2 Það hefur enn- fremur verið tengt við hærri dánartíðni.3,4 Efnahagsleg áhrif svefnleysis eru mjög mikil.5-7 Yfirlitsgrein Stollers5 gefur til kynna að heildarkostnaður vegna svefnleysis, meðal annars vegna tapaðrar framleiðni, slysa, tíðra fjarvista frá vinnu og kostnaðar sjúklinga vegna heil- brigðisþjónustu, nemi 92-107 milljörðum dollara á ári í Bandaríkjunum. Klínískar leiðbeiningar kveða á um að beina skuli fólki með svefnvanda í hugræna atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) ef kostur er.8 HAM-S er gagnreynd og árangursríkari en lyf, lyfleysur og aðrar meðferðir við langvarandi svefnleysi.9,10 Þrátt fyrir það eru svefn- lyf oftast gefin þegar fólk leitar til læknis vegna lang- varandi svefnvanda.10,11 Neysla svefnlyfja er að jafnaði tvisvar til þrisvar sinnum meiri hér en annars staðar á Norðurlöndum12 enda þótt aukaverkanir langvarandi svefnlyfjanotkunar geti verið alvarlegar.13 Sivertsen og félagar14 báru saman árangur HAM-S og lyfjameðferðar meðal eldra fólks. Niðurstöður þeirra sýndu að þeir inngangur: Svefnleysi er útbreitt heilsufarsvandamál sem hefur alvarlegar sálrænar, líkamlegar og efnahagslegar afleiðingar í för með sér. Neysla svefnlyfja er mun meiri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum, þrátt fyrir að mælt sé með hugrænni atferlismeðferð (HAM-S) sem fyrsta úrræði við langvarandi svefnleysi. Til að koma til móts við fleiri sem glíma við svefnvanda var netmeðferð við svefnleysi sett á laggirnar á betrisvefn.is. Tilgangur þessarar rannsóknar var að lýsa árangri netmeðferðarinnar. Efniviður og aðferðir: Alls 175 þátttakendur hófu 6 vikna meðferð á tímabilinu ágúst 2013 til apríl 2014 en þar af voru 50 (29%) sem ekki luku meðferð svo eftir var úrtak 125 þátttakenda. Meðalaldur var 46 ár (18-79 ára). Meðferðin er byggð á gagnreyndri hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Þátttakendur skráðu svefn sinn og var árangur metinn út frá svefnnýtingu, tíma sem tekur að sofna og vökutíma eftir að hafa sofnað, að lokinni 6 vikna meðferð og 6 vikna eftirfylgd. niðurstöður: Marktækar breytingar til hins betra urðu á öllum útkomu- mælingum, nema heildarsvefntíma sem styttist um 5% samkvæmt niður- stöðum svefnskráningar. Breytingarnar voru enn til staðar 6 vikum eftir lok meðferðar og heildarsvefntími lengdist. Neysla svefnlyfja minnkaði marktækt. Meðferðin virðist henta þátttakendum vel og rúmlega 94% þeirra myndu mæla með henni. Ályktun: Netmeðferð Betri Svefns lofar góðu og árangur er í samræmi við erlendar rannsóknir netmeðferða gegn svefnleysi. Með auknu framboði er vonast til að fyrsta úrræði gegn svefnvanda hér á landi verði HAM-S líkt og víða annars staðar. Þannig má hugsanlega draga úr hinni miklu svefn- lyfjanotkun Íslendinga, álagi á heilsugæslustöðvar og þeim kostnaði sem svefnvanda fylgir. ÁgrIp sem fengu HAM-S bættu útkomu sína meira á flestum árangursviðmiðum við lok meðferðar og við 6 mánaða eftirfylgd, en lyfjahópurinn. Rannsóknir sem sýna fram á árangur lyfjameðferðar við langvarandi svefnvanda eru vandfundnar.13 Aftur á móti benda rannsóknir til þess að áhrif HAM-S sé enn að finna allt að 24 mánuðum eftir lok meðferðar.15,17 Sú staðreynd að lyf eru algengasta úrræðið við svefnvanda, þrátt fyrir að margoft hafi verið sýnt fram á yfirburði HAM-S,10,11,16,17 vekur undrun. Þó verður ekki framhjá því litið að HAM-S einstaklingsmeðferð er dýrari, enda ekki niðurgreidd af Sjúkratryggingum Ís- lands,18 og tímafrekari fyrir sjúklinga en lyfjameðferð, til skamms tíma litið. HAM-S getur þó svarað kostnaði til langs tíma litið þar sem um skammtímafjárfestingu er að ræða og langtímaáhrif meðferðar eru líkleg.15,17,19 Rannsóknir sýna að skortur er á þjálfuðum heilbrigðis- starfsmönnum sem veita HAM-S og flestir þeirra starfa í þéttbýli.19,20 Því er rík ástæða til þess að bjóða upp á gagnreynda meðferð á formi sem nýtist fleirum, eins og netmeðferð. Netmeðferð við svefnleysi hefur ýmsa kosti fram yfir hefðbundna sálfræðimeðferð. Hægt er að sækja netmeð- ferð hvar sem er, hvenær sem er og hún er ódýrari en hefðbundin meðferð. HAM-S á netinu er tiltölulega ný af nálinni. Þó hafa nokkrar rannsóknir á árangri netmeð- ferðarinnar verið gerðar, þá helst slembaðar klínískar tilraunir, og lofa þær góðu.21-26 Í rannsókn Ritterbands og félaga21 kom fram að þátttakendur sem hlutu HAM-S netmeðferð vöktu um helmingi skemur á næturnar við Greinin barst 17. september 2014, samþykkt til birtingar 26. febrúar 2015. GF, SE og EB eiga fyrirtækið Betri svefn. Árangur hugrænnar atferlismeðferðar við svefnleysi sem veitt er á netinu Guðlaug Friðgeirsdóttir1 cand.psych.-nemi, Gunnar Jóhannsson2 læknir, Steindór ellertsson2 læknir, erla Björnsdóttir1,3 sálfræðingur 1Háskóla Íslands, 2Heilsu gæslu höfuðborgarsvæðisins, 3Landspítala. Fyrirspurnir: Guðlaug Friðgeirsdóttir, guf11@hi.is R A N N S Ó K N Storkum ekki örlögunum Erlibelle – Getnaðarvörn til inntöku Hver tafla inniheldur 0,15 mg af levónorgestreli og 0,03 mg af etinýlestradíóli. Z Z H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - A c ta v is 4 1 0 1 2 2

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.