Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2015, Page 29

Læknablaðið - 01.04.2015, Page 29
LÆKNAblaðið 2015/101 213 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R skólanna tekur ekki að sér lyfjagjöf og því er viðbúið að foreldrar þrýsti á lækna að ávísa lyfi sem gerir þeim auðveldara fyrir í dagsins önn.” Þessar bakteríur eru þó ekki stærsta áhyggjuefni sýklafræðinga að sögn Karls. „Stærsta vandamálið er ónæmi Gram nei- kvæðra stafbaktería af flokki Enterobac- teriaceae og þeirra algengust og þekktust er E. coli sem er helsta orsök þvagfærasýk- inga og mikilvæg orsök skurðsárasýkinga. Önnur baktería af þessum flokki er Kleb- siella pneumoniae sem getur valdið svip- uðum sýkingum og E. coli en er ekki alveg jafn algeng og er meira á sjúkrahúsum. Þarna eru komnir fram stofnar sem eru algjörlega ónæmir fyrir öllum sýklalyfjum nema þá helst einu sem er löngu hætt að nota vegna slæmra aukaverkana og heitir Colistin. Víða á gjörgæsludeildum á Ítalíu og Grikklandi þar sem alvarlegar sýkingar af völdum þessara baktería eru algengar þurfa læknar að nota Colistin. Þar sem mest er notað af Colistini eru reyndar að koma upp ónæmir stofnar baktería fyrir því líka.” Sýklalyfjum blandað í dýrafóður Ítalía og Grikkland ásamt ýmsum Austur- Evrópulöndum eru hluti af Evrópusam- bandinu og þar með Evrópska efnahags- svæðinu sem Ísland er hluti af. Karl segist hafa verulegar áhyggjur af uppgangi ónæmra bakteríustofna í þessum löndum þar sem Íslendingar ferðast mikið til þessara landa og stöðug aukning sé á inn- flutningi ferskra matvæla til Íslands. „Áhyggjurnar snúa kannski ekki að innflutningnum sem slíkum heldur því að eftirliti með innfluttum matvælum er að mörgu leyti ábótavant. E. coli bakterían er alls staðar í umhverfi manna og dýra og lifir í þarmaflóru þeirra og getur mjög auðveldlega flust á milli. E. coli bakteríur gera í sjálfu sér ekkert af sér í sínu rétta umhverfi en geta valdið lífshættulegum sýkingum í öðru samhengi. Sýklalyfja- ónæmi E. coli baktería þróast því ekki einungis í mönnum heldur dýrum líka og því miður er það þannig að stór hluti af allri sýklalyfjanotkun í heiminum er gefin dýrum sem ætluð eru til manneldis, til dæmis 80% í Bandaríkjunum.” Í flestum löndum heims eru engar tak- markanir á því hversu mikið sláturdýrum er gefið af sýklalyfjum og það kemur eflaust fleirum en blaðamanni á óvart að lyfin eru ekki gefin skepnunum í lækn- ingaskyni heldur sem vaxtaraukandi efni í bland við daglega fóðurgjöf. „Sýklalyfin eru notuð til að auka vaxt- arhraða dýranna og skammtarnir eru því ekki ætlaðir til að verjast sýkingum heldur gjarnan gefin í lágum skömmtum til vaxt- arörvunar. Slíkt leiðir til þess að ónæmi til dæmis E. coli bakteríanna gegn lyfjunum eflist. Í Evrópu hefur blöndun sýklalyfja í fóður til vaxtarörvunar verið bönnuð, en „Sýklalyf sem er gefið í lágum skömmtum í langan tíma er uppskrift að því að sýklar nái að þróa ónæmi fyrir lyfinu,“ segir Karl G. Kristinsson yfirlæknir á sýklarannsóknardeild Landspítala.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.