Frjáls verslun - 01.01.2005, Qupperneq 72
KYNNING72 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
SPV er fjármálastofnun þar sem hagsmunir viðskiptavinarins eru ávallt í fyrirrúmi. SPV veitir alhliða fjármálaþjónustu, hvort sem er fyrir einstaklinga eða fyrirtæki, þjónustu sem leitast er við að sníða að mismunandi aðstæðum og þörfum
viðskiptavina. Grundvallarþættir í starfsemi Spar-
isjóðsins eru hagsmunir viðskiptavinarins, sveigj-
anleiki og öryggi. SPV hefur ævinlega verið í
fararbroddi íslenskra fjármálastofnana að tileinka
sér kosti nútímatækni og tölvuvæðingar og um
leið lagt áherslu á að efla persónulega þjónustu og
opna viðskiptavinum greiðar leiðir að starfsfólki
sem ávallt er boðið og búið að veita þeim aðstoð
og ráðgjöf.
Aðalstöðvar SPV eru í Borgartúni 18. Tvö útibú
eru í Reykjavík, annað er í Hraunbæ 119 og hitt er
í Síðumúla 1 og lá leið okkar þangað þar sem við
hittum fyrir Svan Gunnar Guðlaugsson þjónust-
ustjóra, sem sagði í stuttu spjalli að ánægjulegt
væri hversu margir í hverfinu nýti sér þjónustu
útibúsins: „Í dag má segja að við séum miðsvæðis í Reykjavík, í
hverfi þar sem mörg fyrirtæki starfa. Til okkar leita bæði fyrirtæki
og einstaklingar sem starfa innan þeirra. Við höfum verið að styrkja
þjónustu okkar með tilliti til umhverfis okkar og meðal annars fjöl-
gað fyrirtækjaráðgjöfum og erum þar með að leggja aukna áherslu
á fyrirtækin. Svo finnst fólki, sem vinnur innan þessara fyrirtækja,
gott að hafa bankann nálægt sér og beinir því viðskiptum sínum til
okkar.“
Nær tuttugu ár í Síðumúlanum SPV hefur rekið útbú í Síðumúlanum
í tæp tuttugu ár þannig að mikil reynsla af að
þjóna fyrirtækjum og einstaklingum á þessu
svæði er fyrir hendi í Sparisjóðnum: „Það
starfa tíu manns í útibúinu og við reynum
okkar besta til að bjóða persónulega þjónustu
og leggjum okkur fram um að rækta og efla
samskipti við viðskiptavini okkar og veita
þeim sérsniðna þjónustu sem hentar hverjum
og einum og við endurskoðum starfið reglu-
lega með tilliti til þarfa viðskiptavina okkar.
Ég tel að ánægjuvogin svokallaða, sem sýnir
að ánægðustu viðskiptavinir fjármálafyrir-
tækja hér á landi eru hjá Sparisjóðnum, sé
þessum áherslum okkar að þakka ásamt
faglegri ráðgjöf. Þjónustufulltrúar okkar hafa
það að meginmarkmiði að setja sig í spor viðskiptavinanna í þeim til-
gangi að veita þeim nákvæmlega þá þjónustu sem komi þeim best,“
Góð sóknarfæri Svan segist sjá góð sóknarfæri: „Það vill svo til að
búið er að loka einum helsta keppinaut okkar í hverfinu, Múlaúti-
búi Landsbankans. Við erum vissir um að margir viðskiptavina
SPV VIÐ SÍÐUMÚLA 1
Styrkur okkar
liggur í þjónustu sem
hentar hverjum og einum
Hugmyndin hjá
okkur er að ná inn
fleiri fyrirtækjum
og einstaklingum.
Við teljum okkur
hafa vissan meðbyr
í hverfinu sem sjálf-
sagt er að nýta.
Starfsfólk SPV Síðumúla 1. Efri röð, talið frá vinstri: Ásdís Írena Sigurðardóttir, Jóhanna Kjartansdóttir, Brynja Jónsdóttir, Sveinn Reynisson, Auður Arna
Eiríksdóttir, Ásta Jósepsdóttir. Neðri röð, talið frá vinstri: Elísabet Tómasdóttir, Sigríður Héðinsdóttir og Svan Gunnar Guðlaugsson. Á myndina vantar
Sigurbjörgu Eiríksdóttur.
Séð yfir afgreiðslusal útibús SPV í Síðumúla.
Borgartúni 18, 105 Rvk
Hraunbæ 119, 110 Rvk
Síðumúla 1, 108 Rvk
Aðalsími 575 4000
Þjónustuver 575 4100
Netfang: spv@spv.is
Múlaútibúsins vilja vera áfram í hverfinu og það gefur okkur enn meiri
möguleika á að efla okkar starf og fjölga viðskiptavinum. Það er eins
og gefur að skilja mikil samkeppni milli bankanna og við teljum okkur
koma sterkt inn í þá samkeppni þar sem þjónusta og persónuleg ráðgjöf
er farin að skipta mun meira máli en áður og þar liggur einn okkar helsti
styrkleiki. Það vantar ekki að alls konar gylliboð frá bönkum koma inn á
borð hjá fyrirtækjum hér í hverfinu, en ég er á því að ekki snúist allt um
kjörin í dag. Þjónustan skiptir ekki minna máli og ef viðskiptavinurinn
er ánægður með þjónustuna í bankanum sínum og hann fær það sem
hann vill þá hafa gylliboð lítil áhrif á hann.“
Markaðssetning framundan SPV í Síðumúlanum er að fara í gang með
markaðssetningu í hverfinu: „Það má geta þess að við munum bjóða
íbúum hverfisins og starfsmönnum í fyrirtækjum hér í kring í heimsókn
til okkar fljótlega, þar sem við munum kynna starfsemi okkar. Hug-
myndin hjá okkur er að ná inn fleiri fyrirtækjum og einstaklingum. Við
teljum okkur hafa vissan meðbyr í hverfinu sem sjálfsagt er að nýta. Í
framhaldi munum við nálgast fyrirtækin og einstaklinga á annan hátt,
meðal annars með póstsendingum. Ýmislegt annað er í bígerð hjá okkur
sem snýst um að styrkja útibúið sem mest í þeirri samkeppni sem við
búum við og við lítum björtum augum til framtíðarinnar.“