Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 136
136 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
Hönnun:
GLER, PLATÍNA OG PLAST
Þeir eru alltaf jafnflottir lamparnir frá ítalska
fyrirtækinu Egizia sem fást í versluninni Art
Form við Skólavörðustíg. Þeir eru í línunni
HWC - handle with care. Ungir og efnilegir
hönnuðir, hvaðanæva að, hanna glervöru í
línunni, – lampa, blómavasa o.s.frv.
Hönnuður þessa lampa, Candia, er ung
brasilísk kona, Flavia Alves De Sousa, sem er
með meistaragráðu í hönnun frá Mílanó.
Lampinn er úr blásnu gleri og með silki-
þrykki. Þá skreytir platína lampann – fer-
hyrningar úr platínu. Platína er jafnverðmæt
og gull. Skermirinn er úr hvítu plasti. Það er
vandað til verka bæði hvað varðar lampann
sem og lampaskerminn.
Lampinn er nútímalegur – og passar á
nútímaleg sem og sígild heimili, heimili þar
sem antik er ráðandi.
Þetta er falleg og vönduð vara. Listaverk.
Lampinn er úr blásnu gleri og með silkiþrykki.
„Ég er tækifærissinni og
þessa stundina er New
York í uppáhaldi,“ segir
Elín Sigfúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækja-
sviðs Landsbanka Íslands.
„Borgin hefur upp á
ótrúlega margt að bjóða.
Þegar ég kom þangað fyrst
fyrir mörgum árum fannst
mér hún ógnvekjandi og
mér leið illa. Ég hef komið
nokkrum sinnum eftir það og breyt-
ingin er ótrúleg. Það er betur hugsað
um borgina, hún er hreinni og virðist
miklu öruggari.“
Elín nefnir að hvert hverfi hafi sinn
sjarma og nefnir sérstaklega Central
Park sem er eins og heill heimur út af
fyrir sig.
Hún hefur farið til New
York bæði starfsins vegna
og í fríum en þá skoðar
hún sig meira um. Mann-
lífið er á meðal þess sem
hún skoðar.
„Það er skemmtilegt
að fara út að borða í New
York. Þegar ég fór þan-
gað síðast í frí fór ég með
skemmtilegum kvenn-
ahópi. Við fórum á mat-
sölustaði og bari á fínu og stóru hótel-
unum. Í einu hótelinu var boðið upp á
„kampavíns-brunch“. Það er nokkuð
sem maður gerir ekki vanalega.“
Elín kíkir í verslanir þegar hún
er í „stóra eplinu“ auk þess sem hún
hefur farið í leikhús og á söngleiki á
Broadway.
Uppáhaldsborgin:
NEW YORK, NEW YORK
Erna Gíslad-
óttir, forstjóri
B&L, segist
reyna að hafa
eldamennsk-
una einfalda
en bragðbóða.
Uppskriftina
hér fyrir neðan
fékk hún fyrst
hjá tengda-
móður sinni.
,,Uppskriftin var
aðeins flóknari hjá henni, en ég reyni
að hafa eldamennskuna einfalda en
bragðgóða. Þessi réttur er sígildur í
fjölskylduboðum hjá okkur og gott er
að búa hann til daginn áður og hita
hann svo upp í ofni. Ég er oft með
tvö form (skammta) af þessum rétti í
hverju boði. Hann er mjög auðveldur
og einfaldur að útbúa en samt einstak-
lega bragðgóður.“
Heitur fjölskylduréttur fyrir sex:
2 dósir Cream of Chicken Soup
frá Campbell’s
2 dósir aspas í bitum
2 pelar rjómi
2 bréf af skinku í bitum frá Ali
2 pokar af rifnum osti
½ franskbrauð
Allt nema ostur og brauð er
sett saman í pott og hitað. Fransk-
brauðið er skorið í bita og sett í botn
á eldföstu formi. Gott er að setja
smáolíu á formið áður en brauðið er
sett í til að það festist síður við. Öllu
úr pottinum er svo hellt í eldfasta
formið og osturinn settur yfir. Þetta
er svo hitað í ofni á þokkalegum hita
þangað til það er orðið gegnheitt.
Sælkeri mánaðarins:
HEITUR
FJÖLSKYLDURÉTTUR
ÚR EINU Í ANNAÐ
,,Ég er tækifærissinni og
þessa stundina er New
York í uppáhaldi.“
,,Ég reyni að hafa elda-
mennskuna einfalda en
bragðgóða.“