Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 11
Þ
Í
14
05
20
15
R
RS
Hægt er að skoða mat einstakra eigna á Skrá.is. Fasteignaeigendur geta einnig fengið
matið sent í bréfpósti með því að hringja í síma 515 5300.
Frestur til athugasemda er til 1. september 2015.
Frekari upplýsingar er að finna á www.skra.is
Í pósthólfi ykkar á mínum síðum á Ísland.is er tilkynning
um fasteignamat eigna ykkar sem gildir árið 2016.
Fasteignaeigendur
Sparaðu tíma
– pantaðu gjaldeyrinn á netinu
Nú getur þú pantað gjaldeyri á arionbanki.is
og sótt hann í útibúið þitt næsta virka dag.
Kynntu þér málið á arionbanki.is/gjaldeyrir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1
5
-0
6
8
5
É g tel að það sé nauðsynlegt að varðveita heimildir um þessa byltingu fyrir framtíðina,“ segir
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagn-
fræðingur um byltinguna í Facebook-
hópnum BeautyTips þar sem hundruð
kvenna hafa deilt frásögnum af nauðg-
unum og öðru kynferðisofbeldi sem þær
voru beittar. Sigríður sagði þar frá því
þegar henni var nauðgað og þegar hún
gerði sér grein fyrir hversu merkileg
þessi bylting væri kom sagnfræðingur-
inn upp í henni og hún ákvað að safna
frásögnum þessara kvenna. „Ég hef svo
hugsað mér að afhenda þessar frásagnir
á skjalasafn, þar sem þær koma til með
að vera varðveittar um ókomna framtíð,“
segir hún.
#konurtala og #thoggun
Hópurinn BeautyTips var upphaflega
stofnaður fyrir stúlkur til að skiptast
á „bjútí“-ráðum en fljótt þróaðist það
út í að fá umræðuefni voru hópnum
óviðkomandi, en hann er læstur og ekki
hægt að fá aðgang nema vera boðið af
meðlimi. Forsaga byltingarinnar er að
vinkona stúlku sem tiltekinn maður var
sagður hafa barnað þegar hún var sext-
Safnar frá-
sögnum af kyn-
ferðisofbeldi
Sigríður Hjördís
Jörundsdóttir sagn-
fræðingur safnar
reynslusögum þolenda
kynferðisofbeldis í
sagnfræðilegum til-
gangi. Hún deildi sinni
frásögn á BeautyTips
og vildi leggja sitt
á vogarskálarnar,
ekki síst fyrir börnin
sín. Fjórum dögum
eftir að BeautyTips-
byltingin hófst fann
hún þar frásagnir yfir
300 kvenna þar sem
gerendurnir voru yfir
500. Sigríður Hjördís
biður þolendur til að
hafa samband við sig
ef þeirra frásögn má
fara í gagnagrunn.
Hvernig er hægt að taka þátt?
Þær og þeir sem vilja deila sinni frásögn
hafa fjóra valmöguleika, en Sigríður
Hjördís er í hóp kvenna sem stendur að
söfnun þessara frásagna, þær er hægt
að senda á netfangið konurtala@gmail.
com eða á Facebook-hópinn „Konurtala
// Þöggun.
1. Senda frásögnina, láta fullt nafn og
fæðingarár fylgja og haft opinn aðgang
frá fyrsta degi.
2. Senda frásögnina, láta fæðingarár
fylgja (en sleppa nafni) og hafa opinn
aðgang frá fyrsta degi.
3. Senda frásögnina, láta fullt nafn og fæð-
ingarár fylgja og hafa aðgang lokaðan í
ákveðinn árafjölda (hámark 80 ár). Þær
frásagnir sem í þennan flokk fara verða
þá innsiglaðar í þann árafjölda sem um
verður ræddur og ekki opnaðar fyrr en
að þeim tíma liðnum.
4. Senda frásögnina, láta fæðingarár
fylgja (en sleppa nafni) og haft aðgang
lokaðan í ákveðinn árafjölda (hámark
80 ár). Þær frásagnir sem í þennan
flokk fara verða þá innsiglaðar í þann
árafjölda sem um verður ræddur og
ekki opnaðar fyrr en að þeim tíma
liðnum.
Með opnum aðgangi er átt við að
Helgin 19.-21. júní 2015