Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 13
M
Þess er minnst í dag, 19. júní, að öld er liðin
frá því að konur fengu kosningarétt og
kjörgengi til alþingis. Raunar var sá réttur
bundinn við konur 40 ára og eldri en það
undarlega ákvæði var fellt út fimm árum
síðar. Hundrað ár eru ekki langur tími og
sérkennilegt að hugsa til þess misréttis
sem viðgekkst sé litið aftur til þessa tíma
þegar mæður elstu núlifandi Íslendinga
voru uppi – og ömmur og langömmur ann-
arra. Lengra er ekki síðan.
Þrátt fyrir þessa réttarbót
gengu hlutirnir hægt fyrir
sig næstu árin og áratugina.
Fyrsta konan settist á alþingi
sjö árum síðar – og þurfti sér-
stakan kvennalista til – en ára-
tugir liðu þar til fyrsta konan
varð ráðherra, árið 1970. Bíða
varð til ársins 1958 eftir sér-
stökum jafnlaunalögum, en
með þeim hurfu í áföngum
sérstakir kvennataxtar úr samningum
verkalýðsfélaga.
Það var raunar ekki fyrr en um og upp
úr 1970 sem réttindabarátta kvenna tók
verulega við sér, með stofnun Rauðsokka-
hreyfingarinnar og kvennaári Sameinuðu
þjóðanna 1975. Það ár, 24. október, vöktu
íslenskar konur heimsathygli er þær lögðu
niður vinnu og flykktust á baráttufund á
Lækjartorgi þar sem 25-30 þúsund manns
komu saman, aðallega konur. Rödd þeirra
hljómaði ekki aðeins um allt land heldur
víða um lönd.
Síðar hefur þessa dags verði minnst sem
einstaks viðburðar og fyrirboða gagngerra
breytinga. Enginn vafi er á því að þessi
samstöðufundur leiddi með ýmsu öðru til
þess að grundvöllur var fyrir sterku fram-
boði konu til embættis forseta Íslands fimm
árum síðar, þegar Vigdís Finnbogadóttir
bar sigurorð af þremur körlum. Sú kosn-
ing var risaskref í jafnréttisátt. Í viðtali við
Vigdísi í Fréttatímanum í dag kemur fram
að fólk, konur og karlar, hafi á þeim tíma
viljað fá konu sem forseta – og það hafi
verið vegna áhrifa frá kvennafrídeginum.
Kvennafrídagurinn sannaði það, eins og
Vigdís segir, að konur voru máttarstólpar
samfélagsins og stóðu, ekki síður en karl-
arnir, undir því. Vigdís segir stórkostlegt
að sjá hvernig konur hafi haslað sér völl
síðustu áratugi.
En nú, öld eftir að konur fengu kosninga-
rétt, er enn verk að vinna. Lagaleg réttindi
hafa verið tryggð, konur hér á landi hafa
öll sömu formleg réttindi og karlar. Mikil
árangur hefur vissulega náðst en sam-
kvæmt úttekt Alþjóðaefnahagsráðsins árið
2014, á 142 ríkjum, var Ísland í fyrsta sæti
samkvæmt mati á jafnrétti kynjanna út frá
þáttum eins og þátttöku í atvinnulífinu,
stjórnmálaþátttöku, efnahagslegum jöfnuði
og tækifærum til að njóta menntunar og
heilbrigðisþjónustu.
Samkvæmt matinu hefur Íslendingum
tekist að brúa um 86% af því bili sem mis-
munar kynjunum – en það bil þarf að brúa
að fullu. Við annað verður ekki unað. Þótt
staðan hér sé skárri en annars staðar – og
raunar skást – eigum við enn nokkuð í land
með að ná fullu jafnrétti kynjanna. Í þeirri
baráttu þurfa allir að leggjast á eitt, karlar
ekki síður en konur.
Óútskýrður launamunur milli kynjanna
er enn til staðar en ein orsök þess er að
vinnumarkaðurinn er enn kynskiptur.
Ráðamenn hafa bent á að grípa þurfi til
markvissra aðgerða til að breyta náms- og
starfsvali, hvetja stráka til að fara í umönn-
unarstörf og stelpur í tækni- og iðngreinar.
Samræma þarf betur fjölskyldu- og atvinnu-
líf og stuðla að jafnri þátttöku kynjanna í
barnauppeldi og heimilisstörfum – en þar
hefur þó orðið grundvallarbreyting á af-
stöðu og aðkomu karla frá því sem áður var.
Mikilvægt er að konur og karlar hafi jöfn
tækifæri í samfélaginu en það stuðlar að
betra þjóðfélagi og bættum lífskjörum allra.
Enn eiga við orð Bríetar Bjarnhéðins-
dóttur þegar hún í hátíðarræðu fagnaði
kosningarétti kvenna fyrir réttri öld: „Vér
heilsum glaðar framtíðinni, þar sem karlar
og konur vinna í bróðerni saman að öllum
landsmálum, bæði á heimilum og á alþingi.“
Ísland er í fyrsta sæti í jafnréttismálum – en enn er verk að vinna
Brúa þarf bilið að fullu
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
KOSTA
RÍKA
NÁTTÚRUPARADÍS SEM Á EKKI SINN LÍKA
5. - 19. SEPTEMBER
Verð kr. 565.940.-
Innifalið í verði: Flug, skattar, hotel, allar ferðir,
islenskur fararstjóri og aðgangur þar sem við á
Ferðaskrifstofan hefur nú hannað í samvinnu við
heimamenn sérstaka ferð sem saman-stendur
af upplifun af náttúru landsins og dýralífi þess.
Auk þess munum við kynnast fólkinu sjálfu
sem landið byggir. Ferðin er ætluð brosandi og
lifandi fólki sem vill upplifa ævintýri í ótrúlegu
umhverfi
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
12 viðhorf Helgin 19.-21. júní 2015