Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 17
Söngkonan og tónskáldið Ragnhildur
Gísladóttir manaði sjálfa sig upp í
það að stofna kvennarokksveit árið
1981. Hún sagði í blaðaviðtali að hún
ætlaði að stofna slíka sveit og þá
var ekki aftur snúið. Hún segir að
Grýlurnar hafi mætt allskonar for-
dómum á þessum tíma, en aðallega
frá körlunum í bransanum. Ragga
segir að hún hafi búist við meiri
byltingu í kjölfar Grýlanna og segir að
ekki nógu margar kvennasveitir hafi
rutt sér til rúms á Íslandi. Grýlurnar
munu ekki koma saman aftur.
Á rið 1981 var Ragnhildur Gísladóttir, Ragga Gísla, mjög áberandi í íslensku
tónlistarlífi. Hún var búin að syngja
með vinsælum hljómsveitum eins
og Brimkló og Brunaliðinu, ásamt
því að hafa séð um upptökur og út-
setningar á nokkrum barnaplötum,
sungið vinsæl lög á Vísnaplötu,
Lummuplötu og Björgvins Halldórs-
sonarplötu. Hún þurfti á einhvers-
konar breytingu að halda og tók
málin í sínar eigin hendur. „Þegar
ég var við nám í Tónlistarskólanum
í Reykjavík var ég búin að vera að
pæla í því að setja saman blandaða
hljómsveit þar sem meirihlutinn
væri konur,“ segir Ragga. „Ég var
ekki mikið að velta fyrir mér kven-
byltingu eða kvenréttindum. Mér
fannst þetta bara skemmtileg hug-
mynd. En á þessum tíma þegar ég
hætti í Brimkló, eftir stutta veru í
þeirri sveit, voru konur ekki áber-
andi í rokkbransanum,“ segir hún.
„Ég fór í eitthvert blaðaviðtal og fæ
þá hugmynd á punktinum að ég ætl-
aði að stofna kvennahljómsveit. Því
meira sem ég talaði um þessa hug-
mynd í viðtalinu, því sannfærðari
varð ég um að gera það. Ég ögraði
sjálfri mér þarna, gaf bara síma-
númerið mitt og sagðist ætla taka
stelpur í prufur. Svo gerðist það
bara,“ segir Ragga.
Höfðu aldrei hist
Fjöldi kvenna mætti í prufurnar og
á endanum fann Ragga þær konur
sem hún svo fékk til liðs við hljóm-
sveitina, sem fékk nafnið Grýlurnar.
„Við þekktumst ekki neitt,“
segir Ragga. „Linda kom með rút-
unni frá Eyrarbakka. Hún var með
permanent í hárinu og í Henson
íþróttagalla. Alveg hrikalegur lúði,
að mínu mati þá, en hún hélt bít-
inu stöðugu á trommurnar,“ segir
Manaði sjálfa
sig upp í
að stofna
Grýlurnar
16 viðtal Helgin 19.-21. júní 2015
11 kg2 kg 5 kg 10 kg
Smellugas er einfalt,
öruggt og þægilegt!
Gas fyrir grillið,
útileguna og
heimilið
Vinur við veginn
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i