Fréttatíminn - 19.06.2015, Page 23
A nna Kristjáns er frum-kvöðull. Hún er fyrsti ein-staklingurinn sem gekkst
undir kynskiptiaðgerð á Íslandi.
Fyrir tuttugu árum hélt Kristján
vélstjóri í aðgerð í Svíþjóð, þar
sem hann bjó og snéri heim til Ís-
lands sem Anna Kristjánsdóttir.
Anna segir fordómana hafa verið
mikla á þessum tíma en í dag sé
þetta ekki vandamál. Hún segir
19. júní ekki eiga neinn stað í sínu
lífi, hún er hrifnari af 17. júní. „Ég
hef aldrei tekið þennan dag neitt
alvarlega,“ segir Anna. „Baráttan
er mjög góð, en ég hef aldrei lagt
mig sérstaklega fram við það að
halda daginn hátíðlegan. Þetta er
tveimur dögum eftir þjóðhátíðar-
daginn okkar og mér finnst 19.
júní falla svolítið í skuggann af
honum,“ segir Anna.
Anna hefur farið í gegnum hæð-
ir og lægðir á þeim tuttugu árum
síðan hún gekkst undir aðgerðina.
Hún segir að tímarnir hafi breyst
gríðarlega. „Ég fór í þessa aðgerð
24. apríl árið 1995 og það hefur
gengið á ýmsu síðan. Allur gang-
ur verið á þessu,“ segir hún. „Í
byrjun voru ekki margir sem tóku
þetta í sátt. Bara hugmyndina að
framkvæma þessa aðgerð, en í dag
er þetta gjörbreytt,“ segir Anna.
„Fyrstu árin voru erfið, svona
fyrstu tíu árin. Svo fór þetta að
gjörbreytast. Fyrstu jákvæðu við-
brögðin voru um aldamótin, en ég
fann ekki fyrir almennri sátt fyrr
en í kringum 2005. Í dag finn ég
fyrir almennri sátt,“ segir Anna.
„Ég mæti mjög sjaldan einhverjum
fordómum í dag.“
Anna hefur starfað hjá Orku-
veitu Reykjavíkur undanfarin 19
ár og líður vel. „Ég hef verið að
vinna í stjórnstöðinni hjá Orku-
veitunni í að verða 19 ár og líkar
vel, ég er allavegana hér enn,“
segir hún. „Ég var að vinna í svip-
aðri stöðu í Svíþjóð og það lá beint
við að sækja um þetta starf þegar
heim var komið. Ég þurfti ekkert
að sannfæra vinnuveitendur mína
um mína starfsgetu þrátt fyrir að
vera nýkomin úr þessari aðgerð,“
segir hún.
Nýt mín betur í baráttu hin-
segin fólks
Anna hefur verið áberandi í hátíð
hinsegin daga í gegnum tíðina og
segir baráttu hinsegin fólks eiga bet-
ur við sig en baráttudagur kvenna.
„Ég held að mörgu leyti að þar
njóti ég mín betur,“ segir hún.
„Kannski vegna þess að hinsegin
baráttan hefur breyst gríðarlega
mikið á undanförnum árum. Fyr-
ir og um síðustu aldamót snérist
þetta fyrst og fremst um að fá sam-
þykki og viðurkenningu fyrir sam-
kynhneigða,“ segir Anna. „Síðan
má segja að Samtökin 78 hafi
breytt hlutverki sínu, og í kringum
árið 2007 urðu þau samtök alls hin-
segin fólks,“ segir hún. „Ekki bara
samkynhneigðra heldur líka trans-
fólks og allra annarra.“
Hvað með þá sem hafa fylgt í
þín spor. Hefur fólk leitað til þín
og fengið ráðleggingar í sinni bar-
áttu?
„Það var algengt áður fyrr já,“
segir Anna.
„Í dag er þetta þannig að það
er komin góð ráðgjöf innan Sam-
takanna 78,“ segir hún. „Fólk þarf
ekki svo mikið á mér að halda
lengur.“
Þú ert nú samt frumkvöðull í
þessu?
„Já það má nú kannski segja
það,“ segir hún.
„Þetta er orðið mun algengara
samt í dag. Bæði eru Samtökin 78
og félagið Trans-Ísland mjög virk
með alla upplýsingaöflun og um-
fjöllun í dag. Þetta er ekkert feimn-
ismál,“ segir Anna.
Þú ert þá ekki með einhver plön
fyrir kvenréttindadaginn?
„Ég er að vinna um kvöldið,“
segir Anna. „Stefnan hjá starfs-
fólki Orkuveitunnar er þó að hitt-
ast hjá gömlu þvottalaugunum á
hádegi og labba saman niður í bæ,“
segir hún. „Sem er mjög þarfur
hlutur því við gömlu þvottalaug-
arnar hófst starfsemi Orkuveitu
Reykjavíkur í kringum 1930. Þar
söfnuðust þvottakonurnar saman
og höfðu gert í gegnum aldirnar,“
segir Anna Kristjánsdóttir frum-
kvöðull.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Kona í
tuttugu ár
Fyrir 20 árum kom Anna Kristjánsdóttir til Íslands eftir
að hafa gengist undir kynskiptiaðgerð. Anna var fyrsti
Íslendingurinn til þess að fara í slíka aðgerð og vakti hún
töluverða athygli hér á landi, en mætti hún einnig miklum
fordómum úr þjóðfélaginu. Í dag segir Anna þetta vera
breytt, en fyrstu tíu árin voru erfið.
Anna Kristjánsdóttir segir margt hafa breyst á síðustu 20 árum. Ljósmynd/Hari
22 viðtal Helgin 19.-21. júní 2015
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
19. júní 2015
Við fögnum 100 ára
afmæli kosningaréttar
íslenskra kvenna
Við bjóðum 19% afslátt
í tilefni dagsins
dagana 18. - 20. júní