Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 31
Bertolli viðbit er framleitt úr hágæða ólífuolíu.
Það er alltaf mjúkt og auðvelt að smyrja. Í
Bertolli er mjúk fita og fitusýrur sem taldar eru
heppilegri fyrir hjarta- og æðakerfi en hörð fita.
BERTOLLI
Af matarborði Miðjarðarhafsins
É g er gríðarlega sátt við að hafa farið af stað og látið drauma mína rætast,“ segir afrekskonan Vilborg Arna Gissurar-
dóttir.
Vilborg Arna varð fyrir rúmum tveimur árum
fyrsta íslenska konan til að ganga á Suðurpól-
inn. Hún hefur síðan skapað sér nafn og vakið
athygli fyrir afrek sín auk þess að vera öðrum
hvatning til að takast á við nýjar áskoranir.
Fékk áfallahjálp eftir snjóðflóðið á
Everest
Eftir að hafa gengið á Suðurpólinn, sem var 60
daga ferð og tók yfir 1.140 kílómetra í miklu
frosti, setti Vilborg sér nýtt takmark. Það
var 7 tinda átakið, að leggja alla hæstu tinda
heimsálfanna sjö að baki og sigrast jafnframt á
báðum pólum jarðar. Lokatakmarkið var Eve-
restfjall – heilir 8.848 metrar – sem hún ætlaði
að vera fyrst íslenskra kvenna til að klífa. Hún
varð frá að hverfa eftir að snjóflóð féll í fjallinu í
fyrra og fjölmargir létust. Eftir að Vilborg kom
aftur heim leitaði hún sér aðstoðar; fékk bæði
áfallahjálp og mikla aðstoð frá sjúkraþjálfara.
Hún ákvað láta áfallið ekki stöðva sig og hóf
aftur að klífa fjöll. Nú í vor gerði hún aðra til-
raun við Everest en það sama henti á ný; stórt
snjóflóð féll í kjölfar jarðskjálftans mikla í
Nepal, skammt fyrir ofan grunnbúðirnar sem
Vilborg var í og kostaði mörg mannslíf. Sem
betur fer slapp Vilborg ómeidd.
Hef ennþá neistann til að klifra
Hvernig er ástandið á þér eftir að hafa lent í
þessu áfalli?
„Það er nú bara nokkuð gott, þannig séð.
Þetta er auðvitað reynsla sem hefur mikil
áhrif á mann og breytir manni á ákveðinn hátt.
Metur lífið
öðruvísi eftir
áföllin á Everest
Vilborg Arna Gissurardóttir hefur á nokkrum árum náð ótrúlegum árangri. Hún var
fyrsta íslenska konan til að ganga á Suðurpólinn og hefur síðan sigrað mörg hæstu
fjöll heims. Vilborg hefur gert tvær tilraunir til að klífa Everestfjall, hæsta fjall í
heimi, en hefur í bæði skiptin orðið frá að hverfa eftir að náttúruhamfarir riðu þar
yfir. Hún segir það breyta sér að missa félaga og vini en kveðst enn hafa neistann
til að klifra. Hvort hún geri þriðju tilraunina við Everest eigi þó enn eftir að koma í
ljós. Vilborg er oft eina stelpan í hópi fjallgöngufólks en hún segist hafa lært það að
kynið skiptir ekki máli þegar á hólminn er komið.
Maður fer óneitanlega að meta lífið öðruvísi þegar
maður stendur í þeim sporum að vita ekki hvort
maður komist heim til sín.“
Muntu reyna aftur við Everest?
„Ég er ekki enn búin að ákveða það. Ég hef ennþá
neistann til að klifra, hann hefur ekki horfið, og ég
ann mér hvergi betur en úti í náttúrunni og uppi á
fjöllum. En það verður mikið átak að fara aftur inn í
sömu aðstæður aftur. Það verður bara að koma í ljós
hvort af því verður.“
Hvað ertu að fást við þessa dagana?
„Ég er að vinna að spennandi leyniverkefnum
en get því miður ekki sagt frá þeim núna. Það eru
kannski smá breytingar í farvatninu og spennandi
tímar fram undan.“
Setti heimsmet meðal kvenna
Vilborg segist afar sátt við það sem hún hefur
afrekað á síðustu árum, að hafa farið af stað og látið
drauma sína rætast, eins og áður sagði. „Jafnvel þó
það hafi ekki gengið upp í öll skiptin og ég ekki enn
náð tindi Everest. Þær ferðir hafa skilað mikilvægri
reynslu í bakpokann. Ég hef alla vega náð ákveðnu
kvennaheimsmeti sem er að hafa gengið ein á pól
og náð 8.000 metra tindi eins míns liðs. Ég væri
vanþakklát að horfa til baka og vera ekki sátt við
það.“
Hún segir að tilraunir sínar til að komast á tind
Everest hafi verið lífsreynsla sem mótar mann. „Að
takast á við þessar náttúruhamfarir, að missa félaga
og vini. Maður vill ekki þurfa að ganga í gegnum
það aftur. En ef maður lendir í einhverju svona er
eina leiðin að vinna með það sem gerist og nota
reynsluna á einhvern hátt til að gera mann sterkari.
Lendi oft í því að vera eina stelpan
Það eru miklu fleiri karlar en konur í þínu sporti.
Hvernig hefur þín upplifun sem kona í þessum heimi
verið?
„Það er nú þannig að konur eru í miklum minni-
hluta, bæði í háfjallaklifri og meðal pólfara. Maður
lendir oft í því að vera eina stelpan. Ég hef lært
að vera ekki að bera mig saman við aðra. Ég hef
komið inn í hóp klifrara og hugsað með mér að ég
sé nú ekki nógu sterk en svo hefur það reynst vera
alrangt. Þegar á hólminn er komið skiptir ekki máli
af hvaða kyni maður er. Það er kollurinn sem skipt-
ir máli, að hafa trú á sjálfum sér og læra að standa
með sjálfri sér sem manneskju.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Vilborg Arna Gissurardóttir segir að hún hafi ennþá neistann til að klifra, þrátt
fyrir að hafa í tvígang lent í áfalli þegar hún ætlaði að ganga á Everestfjall.
Ljósmynd/Hari
Ég hef alla
vega náð
ákveðnu
kvenna-
heimsmeti
sem er
að hafa
gengið ein
á pól og
náð 8.000
metra
tindi eins
míns liðs.
Ég væri
vanþakk-
lát að
horfa til
baka og
vera ekki
sátt við
það.
30 viðtal Helgin 19.-21. júní 2015