Fréttatíminn - 19.06.2015, Page 35
Baráttunni
er hvergi
nærri lokið.
Ennþá berj-
ast konur
á hverjum
einasta degi.
Sóley Tómasdóttir
forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur
Hrun sérhæfðar sjúkrahúsþjónustu á Íslandi
Til hamingju með daginn!
Síðasti nagli í líkkistu
dauðvona íslensks
sjúkrahúskerfis var
haglega komið fyrir
þegar Alþingi sam-
þykkti lög á verkfall
Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og BHM
á dögunum. Kjaradeil-
ur vetrarins hafa þeg-
ar myndað stórt skarð
í samstöðu og kraft
starfsmanna Land-
spítala. Líklega er nú
að bresta á atgervis-
f lótti sem mun hafa
gífurleg áhrif á fram-
tíð sérhæfðar sjúkra-
húsþjónustu eins og
hjartaskurðlækning-
ar. Ríflega helmingur
hjúkrunarfræðinga á
legudeild hjarta- og
lungnaskurðlækn-
inga hafa nú sagt upp
störfum, all ir þrír
perfusionistar (sér-
fræðingar sem stjórna
hjarta- og lungnavél á
meðan hjartaaðgerð
stendur), og hluti sér-
hæfðra hjúkrunar-
fræðinga sem starfa á
skurðstofu og gjörgæsludeild Land-
spítalans við Hringbraut. Ef við
töpum þessum lykilstarfsmönnum
verða engar hjartaaðgerðir gerðar á
Íslandi í framtíðinni. Vert er að hafa
í huga í tilefni dagsins, 19. júní, að
mikill meirihluti þessara lykilstarf-
manna er konur.
Fyrsta opna hjartaskurðaðgerðin
á Íslandi var framkvæmd 16. júní
1986 í skugga efasemda
margra st jórnmála-
manna sem fullyrtu
að íslenskt heilbrigðis-
starfsfólk gæti ekki
valdið því flókna starfi.
Síðan hafa verið gerðar
rúmar 6000 hjartaað-
gerðir sem hafa bætt
l í fsgæði, lengt og
bjargað lífi fjölmargra
Íslendinga sem þjást af
alvarlegum hjartasjúk-
dómum. Á Landspítal-
unum eru í dag fram-
kvæmdar oft á tíðum
flóknar hjartaaðgerðir
með sambærilegum
árangri og erlendis.
Það hefur tekið áratugi
að komast þar sem við
erum í dag en það hef-
ur byggst á sérhæfingu
og teymisvinnu margra
ólíkra stétta. Í hjarta-
skurðteymi Landspít-
alans höfum við sam-
heldinn hóp lækna,
hjúkrunarfræðinga og
lífeindafræðinga með
langa star fsreynslu
sem er forsenda þess
að halda þessari starf-
semi gangandi með góðum árangri.
Báðir höfum við starfað erlendis
við nám og sem sérfræðingar sam-
anlagt í 30 ár bæði í Bandaríkjun-
um og Svíþjóð og getum staðhæft
að hjartaskurðteymi Landspítal-
ans stenst algjörlega samanburð
nágrannalanda.
Íslendingar hafa náð langt
í að veita sérhæfða og flókna heil-
brigðisþjónustu eins og best þekk-
ist, bæði vestan hafs og austan.
Án krafta reynsluboltanna áður-
nefndu mun starfsemi hjartaskurð-
lækninga skerðast verulega og sér-
greinin hugsanlega líða undir lok
hér á landi sem mun hafa bein áhrif
á lífslíkur Íslendinga með alvarlega
hjartasjúkdóma.
Er það vilji stjórnvalda að við
búum við annars flokks eða jafn-
vel þriðja heims heilbrigðiskerfi
þar sem ekki er boðið upp á hjarta-
skurðaðgerðir? Á að hætta að fram-
kvæma opna hjartaskurðaðgerðir á
Íslandi og fara 30 ár aftur í tímann?
Senda sjúklinga utan til hjartaað-
gerða með aukinni bið, áhættu í
flutningi og gríðarlegum kostnað-
arauka? Nútíma sérhæfð sjúkra-
húsbundin heilbrigðisþjónusta á
Íslandi er hrunin. Til að tryggja
slíka þjónustu þá þarf að veita meiri
fjármunum til Landspítala og bjóða
fólki sem vinnur við þessar greinar
sambærileg launakjör, aðstöðu og
skipulag sem þekkist í nágranna-
löndum okkar. Við verðum að
bregðast skjótt við og hefja endur-
uppbyggingu strax.
Greinarhöfundar eru sérfræð-
ingar í hjartaskurðlækningum og
ennþá starfandi á Landspítala.
Í dag eru 100 ár síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi. Við fögnum þeim réttindum sem við höfum fengið
og þökkum formæðrum okkar fyrir bar-
áttuna sem þær háðu fyrir þeim.
Baráttan
Á sama tíma og það er næstum óhugsandi
að einhvern tímann hafi konur ekki mátt
kjósa er það sorglega eðlilegt í samfélagi
þar sem karlar og konur hafa aldrei staðið
jafnfætis. Formæður okkar börðust fyrir
kosningaréttinum, fyrir jafnréttislögum,
fæðingarorlofi og frjálsum fóstureyðing-
um. Þær börðust fyrir fjölmörgum form-
legum réttindum sem þykja sjálfsögð í
dag. Þessum réttindum fylgja skyldur.
Við verðum að taka virkan þátt og halda
áfram baráttu fyrir betra samfélagi.
Baráttunni er hvergi nærri lokið. Ennþá
berjast konur á hverjum einasta degi. Við
berjumst fyrir raunverulegu jafnrétti, fyr-
ir sömu tækifærum og karlar í atvinnulífi,
stjórnmálum og fjölmiðlum. Við berjumst
fyrir því að vera metnar að verðleikum og
að á okkur sé hlustað án þess að við séum
hlutgerðar eða klámvæddar. Við berjumst
fyrir því að tekið sé mið af þörfum okkar,
þekkingu og reynslu á opinberum vett-
vangi og í prívatlífinu. Síðast en ekki síst,
þá berjumst við á hverjum einasta degi
fyrir öryggi – fyrir því að fá að vera í friði,
án ofbeldis eða áreitni.
Burt með ofbeldi
Kynbundið ofbeldi hefur alltaf verið til.
Það er ljótasta birtingarmynd kynjamis-
réttis, jafngamalt feðraveldinu og bæði
orsök og afleiðing af kúgun kvenna. Kyn-
bundið ofbeldi er hversdagslegur hluti
af samfélaginu. Það er óþolandi og því
verður að útrýma.
Kynbundið ofbeldi á sér stað opin-
berlega og inni á heimilum. Það á sér
margar birtingarmyndir en hefur alltaf
sama markmiðið: Að halda konum niðri
og takmarka virkni þeirra. Rétt eins og
ofbeldishótunum gegn femínistum er
ætlað að þagga niður í baráttu þeirra eru
ofbeldishótanir í nánum samböndum til
þess gerðar að brjóta niður sjálfstraust og
sjálfsmynd þolandans og skekkja þannig
sambönd sem eiga að vera á jafnréttis-
grunni.
Ofbeldi er ein stærsta ógnin við lýðræð-
ið, við virka þátttöku kvenna, áhrif þeirra
og völd. Ofbeldið sem okkur er hótað ef
við erum ekki þægar á vettvangi stjór-
nmálanna, inni á heimilunum, á skemmti-
stöðum eða annars staðar í lífinu.
Til að við getum verið raunverulega
frjálsar verðum við að búa við öryggi – við
frið og óttaleysi. Við verðum að geta sagt
skoðun okkar óhræddar hvar og hvenær
sem er og tekið virkan þátt þegar okkur
sýnist.
Áfram stelpur!
Sem betur fer er engin uppgjöf í augsýn.
Í vetur hafa ungar konur sýnt hvað í þeim
býr og risið upp gegn kúgun og misrétti.
Þær hafa tekið sér skilgreiningarvald yfir
eigin líkama og staðið með kynsystrum
sínum gegn klámvæðingu og kynferðis-
ofbeldi. Brjóstabyltingin er rétt að hefj-
ast og áhrifa hennar mun án efa gæta til
langrar framtíðar. Á Beauty tips hafa svo
konur stigið fram og greint frá reynslu
sinni af hvers kyns ofbeldi. Þannig hafa
þær skilgreint eigin mörk og varpað frá
sér skömm og ábyrgðartilfinningu vegna
verknaðar sem aðeins gerendur geta bor-
ið ábyrgð á. Konur eru enn að vinna pers-
ónulega og pólitíska sigra og konur munu
aldrei gefast upp.
Í dag sjá ungir femínistar um dagskrána
í Ráðhúsi Reykjavíkur – ungar konur sem
takast á við áskoranir samtímans, rétt
eins og formæður okkar fyrir hundrað
árum. Dagskráin þar er liður í þeim 100
viðburðum sem Reykjavíkurborg stendur
fyrir til að minnast tímamótanna. Þannig
fögnum við þeim árangri sem hefur náðst
á sama tíma og við hvetjum til frekari
framfara.
Í dag fögnum við án þess að láta deigan
síga. Blanda af þakklæti, kjarki og eld-
móði færir okkur vonandi raunverulegt
jafnrétti, hér á Íslandi og um allan heim.
Til hamingju með daginn!
Arnar Geirsson
hjartaskurðlæknir á
Landspítala
Gunnar Mýrdal
hjartaskurðlæknir á
Landspítala
Markþjálfun laðar fram
það besta sem býr í okkur
Frumkvöðullinn Matilda Gregersdotter er einn reyndasti mark-
þjálfinn á Íslandi í dag með meira en 3.000 tíma reynslu í að
markþjálfa stjórnendur. Árið 2004 stofnaði hún fyrirtæki utan um
markþjálfunina og fyrir hennar tilstilli hefur markþjálfun náð hraðri
útbreiðslu og viðurkenningu hér á landi.
F yrirtækið hefur starfað und-ir nafninu Evolvia frá árinu 2008 og markmið þess er
tvíþætt. Annars vegar að mennta
nýja markþjálfa og viðhalda og auka
þekkingu þeirra sem hafa lokið
námi og hins vegar að bjóða upp
á fjölbreyttar leiðir til innleiðingar
markþjálfunar sem verkfæri fyrir
stjórnendur.
Vitundarsköpun leiðir
til lausna
„Markþjálfun er aðferða-
fræði sem miðar að því að
laða fram það besta sem býr
í hverjum manni,“ segir Ma-
tilda. Með hjálp markþjálfa
er viðskiptavinurinn leidd-
ur í gegnum samræðuferli
þar sem vitundarsköpun
hans leiðir til nýrra lausna.
„Markþjálfi er ekki ráðgef-
andi heldur leggur áherslu
á að viðskiptavinurinn leiti
sjálfur lausna á hverju máli
sem tekið er fyrir,“ segir
Matilda.
Fyrir hverja er nám í
markþjálfun?
ACC markþjálfanám er fyrir þá sem
vilja gerast viðurkenndir markþjálf-
ar eða nota markþjálfun sem hluta
af leiðtogafærni sinni í starfi. Námið
er vinsælt meðal stjórnenda og leið-
toga því þegar markþjálfun er beitt
af færni og þekkingu er hún eitt
skilvirkasta verkfærið sem völ er á í
nútíma stjórnun til að kalla fram það
besta í starfsfólki. Meginmarkmið
námsins er að skerpa aðalverkfærið
sem notað er í markþjálfuninni, sem
er markþjálfinn sjálfur.
Spennandi viðburðir fram
undan
Á næstunni fara fram margir spenn-
andi viðburðir á vegum Evolvia og
í gær, fimmtudag, fór til að mynda
ráðstefnan Tomorrow´s leadership
fram Í Hörpu. „Þar hittust
frumkvöðlar og leiðtogar og
deildu reynslu og visku frá
mismunandi sjónarhornum.
Leiðtogahæfni tengist ekki
tiltekinni starfsstétt og því
var gaman að sjá viðskipta-
fræðinga og jógakennara
skiptast á reynslusögum,
svo dæmi sé tekið,“ segir
Matilda. Í september fer
fram spennandi ráðstefna
með innlendum og erlend-
um aðilum þar sem aðferða-
fræði markþjálfunarinnar
verður yfirfærð á málefni
skólakerfisins. Þar munu
fyrirlesarar sem hafa náð
góðum árangri í skólakerf-
inu deila reynslu sinni, meðal annars
Ólafur Stefánsson handboltakappi.
Að lokum er vert að nefna að í haust
verður í fyrsta skipti hægt að læra
markþjálfun á Akureyri. Nánari upp-
lýsingar má nálgast á heimasíðunni
www.evolvia.is.
Unnið í samstarfi við
Evolvia
Matilda Gregers-
dotter er sænsk
en hefur verið
búsett hér á landi
um árabil þar
sem hún fræðir
Íslendinga um
aðferðarfræði
markþjálfunar.
34 viðhorf Helgin 19.-21. júní 2015