Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 38

Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 38
Við kynnum nýja þjónustuþætti Útfarar- og lögfræðiþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu að leiðarljósi Minn hinsti vilji · Erfðaskrár · Kaupmálar Dánarbússkipti · Reiknivélar · Minningarsíður Vesturhlíð 2 · Fossvogi · Sími 511 1266 · utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Kynnið ykkur nýja heimasíðu www.utfor.is K irkjugarðarnir stofnuðu út-fararþjónustu fyrir 65 árum í þeim tilgangi að lækka kostnað við útfarir og minnka allt prjál,“ segir Elín Sigrún Jónsdótt- ir, lögfræðingur og framkvæmda- stjóri Útfararstofunnar. Þetta á vel við enn þann dag í dag og segir Elín Sigrún að mikilvægt sé að bjóða upp á f jölbreytta valkosti og þjónustu við útfarir. „Kostn- aður við útfarir getur verið mikill og við teljum mikilvægt að bjóða mismunandi valkosti og sem besta þjónustu. Við leggjum áherslu á neytendavernd og birtum verðskrá okkar á netinu og ræðum um kostn- að við ástvini þannig að þeir sem kaupa þjónustuna séu upplýstir áður en til útfarar kemur. Útfarar- stofan hefur nýverið samið við einn stærsta kistuframleiðanda í Dan- mörk sem leggur áherslu á gæði, þjónustu og umhverfisvæna vöru. Sá samningur gerir okkur kleift að lækka verð á kistum og umbúnaði umtalsvert, eða allt að 30% frá því sem verið hefur, og erum við stolt af því,“ segir Elín Sigrún. Vönduð vinnubrögð og fag- mennska Hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna starfa 10 manns með mikla starfs- reynslu en frá árinu 1994 hefur Út- fararstofan haft umsjón með rúm- lega 15.000 útförum. „Við leggjum ríka áherslu á persónulega þjón- ustu og tökum vel á móti fólki. Við viljum að útfararundirbúningur sé góður, persónulegur og skýr varð- andi alla þætti. Útfararstofa Kirkju- garðanna er þekkt fyrir vönduð vinnubrögð og fagmennsku,“ segir Elín Sigrún. Útfararstjórar eru Hugrún Jónsdóttir, sem hefur starfað hjá Útfararstofunni yfir 20 ár, og Rósa Kristjánsdóttir, djákni og hjúkrunarfræðingur. „Það er lán Útfararstofunnar að starfs- fólkið hefur fjölbreytta þekkingu, menntun og reynslu,“ segir Elín Sigrún. Á nýrri heimasíðu Útfarar- stofunnar, www.utfor.is, geta ást- vinir leitað allra helstu upplýsinga um undirbúninginn, hvernig út- förin fer fram, hver kostnaðurinn er og annað sem mikilvægt er að taka afstöðu til. „Heimasíðan er mikilvæg upplýsingaveita. Þar er einnig hægt að senda okkur fyrir- spurnir og leita eftir þjónustu raf- rænt en við teljum þó mikilvægt að aðstandendur komi til okkar í samtal svo við getum veitt þeim persónulega þjónustu,“ segir Elín Sigrún. Einnig er boðið upp á þá nýjung að fjölskyldan getur með einföldum og fyrirhafnarlitlum hætti sett upp minningarsíðu um hinn látna. „Þar má finna upplýs- ingar um útförina, hvar hún fer fram og mögulegt verður að greiða minningargjafir. Þar verður einnig hægt að birta minningargreinar, myndir og minningarorðin frá út- förinni og unnt er að deila þessari minningarsíðu á samskiptamiðl- unum,“ segir Elín Sigrún. Hinsti vilji Elín Sigrún segir að í starfi sínu hafi komið í ljós að margir vilja létta áhyggjum af ástvinum vegna and- láts og eigin útfarar. „Það er kall- aður hinsti vilji þegar fólk skilur eftir sig yfirlit um hvað eigi að gera varðandi útför og hvernig útfarar- ferlið skuli verða eða fara fram. Fyrirkomulagið er þannig að við- komandi skráir hinsta vilja á heima- síðunni eða pantar viðtal hjá okkur til að skrá vilja sinn,“ segir Elín Sig- rún. Hjá Útfararstofunni eru starf- andi tveir lögfræðingar sem veita þjónustu á sviði erfða- og fjölskyldu- réttar, allt frá ráðgjöf til skjalagerð- ar og umsýslu. Fyrsta viðtal hjá lög- fræðideildinni er gjaldfrjálst. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur, veit- ir deildinni forstöðu. „Á heimasíðu okkar er að finna reiknivél sem vinnur úr upplýsingum um eignir og fjölskyldustærð. Þar er hægt að sjá hver verður hlutur einstakra erfingja samkvæmt erfðalögum og sýndar leiðir til að gera breytingar þar á, ef fólk óskar þess. Lögfræði- þjónustan er þörf nýjung í starfi okkar og að norræni fyrirmynd. Við höfum að markmiði að vera í hópi framsæknustu og öflugustu útfarar- stofa á Norðurlöndunum og eigum öflugar systurstofur í nágranna- löndum okkar sem hafa veitt okkur mikilvæga aðstoð við innleiðingu þeirra nýjunga sem við bjóðum nú upp á og bæta mjög þjónustu Út- fararstofunnar,“ segir Elín Sigrún. Unnið í samstarfi við Útfararstofu Kirkjugarðanna Nýjar áherslur hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna Útfararstofa Kirkjugarðanna býður upp á heildstæða þjónustu í tengslum við andlát. Stofan beitir sér fyrir neytendavernd og hefur nýlega náð því takmarki sínu að lækka kistuverð umtalsvert. Ný heimasíða var tekin í notkun fyrir skömmu og þar er að finna fjöl- breyttar nýjungar, meðal annars minningarsíðu um hinn látna. „Við hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna höfum verið að vinna að því að gera góða útfararþjónustu enn betri. Við höfum unnið að innleiðingu nýjunga til að veita fólki heildstæða þjónustu á sviði útfara og að þjóna fjölskyldum í lengri tíma en áður hefur þekkst á Íslandi,“ segir Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Útfararstofunnar. Helgin 19.-21. júní 2015 kynning 37

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.