Fréttatíminn - 19.06.2015, Page 39
Helstu niðurstöður doktorsverk-
efnisins voru þær að fólk á miðjum
aldri (40-60 ára) sem þjáist af mí-
greni höfuðverkjum ásamt áru, það
er sjóntruflunum eða dofa sem eru
undanfari mígrenikasts, deyr frekar
vegna hjarta- og æðasjúkdóma, fyrir
aldur fram, en þeir sem ekki þjást
af slíkum höfuðverk. Einstaklingar
með mígreni án áru reyndust hins
vegar ekki vera í aukinni áhættu.
Lárus segir þó að mikilvægt sé að
benda á að þessi áhættuaukning
sem fannst var minni en áhætta sem
tengist þekktum áhættuþáttum eins
og reykingum, háum blóðþrýstingi
og of háu kólesteróli. „Það fer hins
vegar ekki milli mála að mígreni
með áru er sjálfstæður áhættuþátt-
ur, sem þýðir að áhættuaukningin
sem tengdist mígreninu var ekki
gegnum þessa þekktu áhættuþætti
eins og háan blóðþrýsting eða hátt
kólesteról. Af hverju einstaklingar
með mígreni með áru eru í aukinni
áhættu miðað við þá sem hafa mí-
greni án áru er ekki vitað, það er
hugsanlega vegna breytinga í æða-
vegg einstaklinga með mígreni með
áru.“
Mígreni mun algengara hjá
konum en körlum
Aðspurður um ástæður þess af
hverju mun fleiri konur en karlar
greinist með mígreni segir Lárus að
erfitt sé að nefna eina skýringu, ým-
islegt kemur til greina. „Ein mögu-
leg skýring liggur í mismunandi
hormónabúskap karla og kvenna.
Fyrir kynþroskaaldur er algengi mí-
grenis svo til jafnt milli kynja, um
það bil 3-6%. Við kynþroska eykst
algengi hratt hjá konum en hægt hjá
körlum, algengi mígrenis er hæst í
kringum 40-45 ára aldur, um 25%
hjá konum og um 8% hjá körlum.
Upp úr 50 ára aldri fer algengið
að falla og er orðið tiltölulega jafnt
milli kynja eftir 80 ára aldur. Önn-
ur skýring liggur líklega í því hvað
þarf til þess að mígrenikast hefjist
en dýratilraunir benda til þess að
minna þurfi til þess að mígreni kast
hefjist hjá kvendýrum en karldýr-
um.“
Áhugi erlendis frá skilar sér í
auknum rannsóknum
Rannsókn Lárusar fékk mikla at-
hygli í erlendum fjölmiðlum á sín-
um tíma og segir hann að ein af
skýringum þess vera að algengi
mígrenis er hátt, auk þess sem nið-
urstöðurnar sýna fram á að ákveð-
in tegund mígrenis geti aukið dán-
artíðni. „Þess ber þó að geta að til
þess að hafa möguleika á að finna
þennan mun á dánartíðni þarf mjög
stóra rannsókn, um 15-20 þúsund
manns eða meira og það þarf mjög
langa eftirfylgni, 15 ár eða meira.“
Lárus segir að áhugi á þessari
rannsókn og öðrum sem hann og
samstarfsmenn sínir hafi gert hafi
skilað sér í auknu rannsóknarsam-
starfi bæði hérlendis og erlendis á
áhrifum mígrenis. „Ég er til dæmis
í samstarfi við vísindamenn í Mið-
stöð í Lýðheilsuvísindum HÍ í rann-
sókninni Heilsusaga Íslendinga og
mun nýta gögn frá þeim til þess að
meta mögulega þætti sem stuðla að
því að einstaklingur fær sitt fyrsta
höfðuverkjakast. Einnig mun ég
athuga forspárþætti þess að ein-
staklingar á miðjum aldri hætta að
fá mígreni. Þá tek ég einnig þátt í
rannsókninni Svefnklukka Íslend-
inga þar sem ég mun kortleggja
svefntruflanir einstaklinga með
mígreni og mögulegar breytingar
á þeim eftir árstíðum.“
Heilbrigt líferni getur dregið
úr fjölda mígrenikasta
Að sögn Lárusar eru ekki til nein
úrræði sem eru sértæk fyrir þá
sem hafa mígreni með áru. „Það
sem er heppilegast fyrir þá sem
hafa mígreni með áru, sem og alla
aðra, er að reykja ekki og lifa heil-
brigðu lífi hvað varðar hreyfingu
og mataræði og halda streitu inn-
an hæfilegra marka. Það sem ein-
staklingur með mígreni getur gert
er að hafa stjórn á öðrum áhættu-
þáttum, eins og til dæmis háþrýst-
ingi, blóðfitu og reykingum. Fyrir
suma virkar hreyfing til dæmis til
að draga úr köstum og lyf virka á
aðra.“
Lárus segir jafnframt að þó svo
að það eigi eftir að sýna fram á að
ef einstaklingur nær að draga úr
fjölda kasta þá aukist lífslíkur, þá
sé það mjög líklega þannig. „Reglu-
legur svefn, hreyfing og heilbrigt
mataræði hafa áhrif á fjölda mígre-
nikasta. Það eru yfir 200 þættir
sem geta „triggerað“ mígreni-
köst. Það er misjafnt hvaða þættir
38 líftíminn Helgin 19.-21. júní 2015
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Tröppur og stigar
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
RLA-05
Áltrappa 5 þrep, tvöföld
6.690
4 þrepa 5.690,-
6 þrepa 7.890,-
7 þrepa 9.690,-
Áltrappa 4 þrep 4.990,-
5 þrep 6.390,-
Áltrappa 3 þrep
3.990
LLA-308
PRO álstigi 3x8 þrep
2,27-5,05 m
18.490
SM-RLG0
Áltrappa 7 þrep, tvöföld
25.590
5 þrep, tvöföld 19.990,-
U
ppfyllir A
N
:131 staðalinn
Tengsl milli
mígrenis og
hjarta- og
æðasjúkdóma
Mígreni er sérstök tegund höfuðverkja og talið er að um 6% karla
og 18% kvenna þjást af mígreni hér á landi. Ekki er um hefð-
bundinn höfuðverk að ræða heldur ákafan verk sem getur haft
áhrif á lífsgæði og vinnufærni. Mörgum spurningum er ósvarað
um orsakir mígrenis og hafa margar rannsóknir sýnt fram á tengsl
mígrenis við aðra sjúkdóma. Lárus Steinþór Guðmundsson, doktor
í líf- og læknavísindum frá Læknadeild Háskóla Íslands, hefur rann-
sakað og sýnt fram á tengsl mígrenis við dánartíðni vegna hjarta-
og æðasjúkdóma. Í doktorsritgerð hans frá árinu 2010 kemur fram
að mígreni sé þó vægari áhættuþáttur en til dæmis reykingar,
sykursýki og háþrýstingur.
S érsvið Lárusar er lyfjafaralds-fræði og faraldsfræði höfuð-verkja. „Ég var að rannsaka
háþrýsting, það er háan blóðþrýst-
ing og lyfjameðferð við honum,
í gögnum Hjartaverndar, þegar
áhugi minn á tengslum mígrenis við
háþrýsting vaknaði. Í doktorsverk-
efni mínu, sem ég varði árið 2010,
fór ég út í það að búa til nálgun við
mígrenigreiningu út frá spurning-
um um háþrýsting sem voru gerðar
árið 1966, það er rúmlega 20 árum
áður en fyrsta alþjóðlega skilgrein-
ingin á mígreni var birt. Þar var
hins vegar ekki hægt að sjá tengsl
á milli mígrenis og háþrýstings og
í kjölfarið fór ég að skoða tengsl á
milli mígrenis og blóðþrýstings.“
Í því samhengi fann Lárus út að
um mismunandi samband er að
ræða milli mígrenis og blóðþrýst-
ings út frá efri og neðri mörkum.
„Eftir því sem efri mörkin, það
er slagbilsþrýstingur, hækka þá
minnka líkur á því að þú sért með
mígreni, en eftir því sem neðri
mörkin, það er hlébilsþrýsingur,
hækka aukast líkur á því að þú sért
með mígreni.“ Það er því bilið á
milli efri og neðri marka, svokall-
aður púlsþrýstingur, sem best segir
til um líkur á að einstaklingur hafi
eða fái mígreni. „Í kjölfarið fór ég og
samstarfsmenn mínir að skoða sam-
band þess að hafa mígreni á miðjum
aldri og að fá litlar heilablæðingar
síðar á ævinni. Blæðingarnar eru
einkennalausar og því er vel hægt
að lifa með þeim og þær hafa ekki
verið tengdar við breytingar í starf-
rænni getu heilans,“ segir Lárus.
Mígreni með áru getur leitt til
dauðsfalls fyrir aldur fram
Niðurstöður Lárusar byggja á gögn-
um úr hóprannsókn Hjartavernd-
ar þar sem þátttakendum, 18.725
körlum og konum, var fylgt eftir að
meðaltali í 26 ár eftir að þeir höfðu
svarað spurningum um ýmsa þætti
tengda hjarta- og æðasjúkdómum.
Hvað er mígreni?
Mígreni er tauga- og æðasjúkdómur
sem hefur áhrif á um 6% karla og 16-
18% kvenna. Mígreni hefur verið lýst
á marga vegu síðustu 5000 árin en
fyrsta alþjóðlega skilgreiningin var
birt árið 1988. Ekki er til neitt blóð-
próf eða myndgreining sem gefur
til kynna hvort einstaklingur er með
mígreni, greiningin byggist á klínísku
viðtali við lækni sem tekur nákvæma
sögu og beitir greiningarviðmiðum
til þess að flokka mígrenið og aðra
höfuðverki niður í undirflokka. Hafir
þú grun um að þú þjáist af mígreni
er best að leita til heimilis- eða
taugalæknis. Greina má milli tvenns
konar mígrenis: Mígreni með áru og
mígreni án áru. Ára er í þessu sam-
hengi sjón- og skyntruflanir sem geta
fylgt mígrenikastinu. Um 60% þeirra
sem fá mígreni fá foreinkenni, 12-24
tíma fyrir kast, sem geta t.d. verið
þreytutilfinning, þörf fyrir að geispa
endurtekið eða stífleiki í vöðvum.
Það má segja að í mígrenikastinu
sem kemur í kjölfar foreinkenna
að skynfærin fara á yfirsnúning,
venjuleg birta verður sársaukafull
fyrir augun, venjulegur hljóðstyrkur
verður sársaukafullur fyrir eyrun
og jafnvægisskyn getur raskast
þannig að einstaklingur getur fundið
fyrir svima og ógleði. Ýmislegt getur
stuðlað að mígrenikasti og má þar
nefna þreytu, áfengi, tíðablæðingar,
hungur og jafnvel óþol fyrir vissum
fæðutegundum. Hægt er að fækka
köstum og gera þau vægari með
því að stunda heilbrigt líferni, læra
af reynslunni með því að halda
einfalda dagbók og forðast það sem
framkallar köst eða gerir þau verri.
Sérstök mígrenilyf geta einnig komið
í veg fyrir mígreniköst eða minnkað
einkenni þeirra.
hafa áhrif hjá hverjum og einum,
því getur verið gagnlegt að halda
einfalda dagbók til þess að finna
hvaða þættir það eru og reyna að
halda þeim í skefjum. Einnig getur
verið gott að tala við lækni um mis-
munandi meðferðir sem til eru við
mígreni, til þess að fækka köstum
og draga úr einkennum mígrenik-
asta.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Lárus Steinþór Guðmundsson lærði
upphaflega lyfjafræði og hefur starfað
við framleiðslu og þróun lyfja. Fyrir röð
tilviljana leiddist hann út í rannsóknir
á höfuðverkjum og mígreni sem hann
segir vera flókið en afar áhugavert
fyrirbæri og því vert að rannsaka
frekar. Mynd/Hari