Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 41
40 ferðalög Helgin 19.-21. júní 2015
Útivist gefur Út gönguleiðabók og þróar app
Ástríðufullur útivistargarpur
Einar Skúlason hefur gefið út
nýja bók með 20 gönguleiðum
í nágrenni Reykjavíkur. Bókin
verður innlegg í app sem hann
er að þróa og er ætlað bæði
Íslendingum og erlendum
ferðamönnum. Einar labbaði
60 kílómetra í síðustu viku.
þ essi bók er ágæt til að víkka sjóndeildarhringinn. Hún er til dæmis tilvalin til að sjá að
það er ágætt að hvíla Úlfarsfellið og
Esjuna við og við,“ segir Einar Skúla-
son útivistarfrömuður.
Einar sendi á dögunum frá sér bók-
ina Lóa með strá í nefi – 20 göngu-
leiðir í nágrenni Reykjavíkur. Í henni
er að finna leiðarvísi að 20 þægilegum
gönguleiðum sem Einar gjörþekkir.
Einar stofnaði gönguklúbbinn Vesen
og vergang árið 2011 og hefur í félagi
við Trausta Pálsson skipulagt ferðir
um gönguleiðirnar tuttugu síðustu
ár. Bókin er afar meðfærileg – þetta
er lausblaðabók þar sem hver leið er
á plasthúðuðu blaði og aðeins þarf að
taka eitt blað með í hverja ferð.
„Ég valdi skemmtilegustu leið-
irnar sem ég hef farið síðustu ár og
þetta eru allt tilvaldar kvöldgöngur,
2-3 tímar. Þar sem þær eru stuttar
henta þær flestar fjölskyldufólki þó
sumar séu kannski aðeins fyrir stálp-
uð börn,“ segir Einar sem kveðst
leggja mikið upp úr fróðleik um við-
komandi svæði á hverri gönguleið.
Í bókinni sé til að mynda fróðleikur
um fugla, jarðfræði og blómategund-
ir. Bókin kostar um fjögur þúsund
krónur út úr búð.
Einar stefnir að frekari útgáfu
á næstunni og er nú að þróa leið-
söguapp sem gæti litið dagsins ljós
í árslok. „Þessi bók er bara innlegg í
það,“ segir hann kokhraustur.
Appið er hugsað bæði fyrir Íslend-
inga og erlenda ferðamenn. Hug-
myndin er að ókeypis verði að ná í
appið en svo geti notendur keypt sér
leiðarvísi að stökum gönguleiðum
inni í því. „Svo er ég að vinna því að
koma á samstarfi við sveitarfélög um
að þau bjóði upp á leiðarlýsingar, til
að mynda gönguferð um Kjarnaskóg
eða um gömlu húsin á Seyðisfirði,“
segir Einar. Hann kveðst vonast til að
geta helgað sig útivistinni og útgáfu
henni tengdri í framtíðinni. „Ef maður
hefur ástríðu fyrir einhverju á maður
auðvitað að reyna það. Ég fór yfir 60
kílómetra í síðustu viku og mér finnst
þetta alveg ótrúlega skemmtilegt.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Einar Skúlason
gaf út bókina
Átta göngu-
leiðir í ná-
grenni Reykja-
víkur fyrir
skemmstu en
nú bætir hann
um betur
með nýrri bók
sem hefur að
geyma tuttugu
gönguleiðir
í nágrenni
höfuð-
borgarinnar.
Ljósmynd/Hari