Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 65
Helgin 19.-21. júní 2015
Hafdís Huld ákvað að gera barnaplötu með lögum sem allir geta sungið.
Ljósmynd/Jason Sheldon
TónlisT Hafdís Huld gefur úT barnaplöTu
Dóttirin
einlægasti
gagnrýnandinn
Tónlistarkonan Hafdís Huld hefur ásamt eiginmanni sínum,
Alisdair Wright, tekið upp plötu með barnalögum. Þau hyggjast
gefa plötuna út í júlí og á Karolina Fund hefur söfnun hafist
fyrir framleiðslu plötunnar. Hafdís segir að plötu með leik-
skólalögum hafi vantað á markaðinn og er dóttir þeirra hjóna
mesti gagnrýnandinn á heimilinu. Hún hafði mikið að segja um
lagaval plötunnar.
p latan heitir Barnavísur og er gerð með börn á leikskóla-aldri í huga,“ segir Hafdís
Huld. „Kannski af því að við eigum
eina sem er að verða þriggja ára,
og búin að hlusta svolítið mikið á
barnatónlist undanfarin ár og ég
áttaði mig betur og betur á nauð-
syn þess að tónlistin þurfi að vera
foreldravæn í leiðinni,“ segir hún.
„Við höfðum það í huga þegar við
unnum útsetningarnar á þessum
lögum.“
Á Barnavísum má finna gömul
og rótgróin barnalög sem þau
Hafdís og Alisdair hafa útsett á
sinn hátt. „Þetta eru lög sem hafa
svolítið gleymst,“ segir Hafdís.
„Lonníetturnar lét á nefið og Búa
litlir dvergar og slík lög. Mörg
þeirra eru mikið sungin, en önnur
sem heyrast ekki eins oft,“ segir
hún.
Hafdís gaf út plötuna Vöggu-
vísur þegar hún var ólétt að dóttur
sinni og kveikjan að Barnavísum
kom þegar þau voru á tónleika-
ferðalagi með dóttur sína með sér
og áttuðu sig á því að hún væri
kannski aðeins of ung til þess að
hafa gaman af slíkum ferðum.
„Það hentaði henni ekki sérstak-
lega vel að vera á þessu flakki,“
segir Hafdís. „Hún hafði ekki eins
gaman af flugvöllum og bílferðum
og við. Svo við tókum þá ákvörð-
un að fresta öllum tónleikum
erlendis um eitt ár og leyfa henni
að stækka og styrkjast áður en við
færum næst,“ segir Hafdís.
„Við viljum hafa hana með okkur
þar sem við vinnum saman. Út frá
þessu fengum við meiri frítíma og
ákváðum að gera þessa plötu. Það
voru kannski ekki allir sammála
okkur með þetta, en við urðum
bara að forgangsraða. Ég ætla að
gera eitthvað meira með stelpunni
minni á meðan hún hefur áhuga á
að vera með mér, það verður ekk-
ert alltaf þannig hjá henni,“ segir
Hafdís.
Hafdís og Alisdair stefna á út-
gáfu í júlí og hafa hafið söfnun
fyrir framleiðslukostnaðinum á
Karolina Fund. „Þetta er mikill
heimilisiðnaður og okkur fannst
tilvalið að reyna að gefa þetta út
sjálf og helst að keyra þetta sjálf í
búðirnar,“ segir Hafdís. „Dóttirin
er búin að samþykkja þetta og hún
er mjög einlægur gagnrýnandi.
Það hjálpar mikið að hafa mark-
hópinn hjá sér þegar maður er að
vinna að plötu.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Þetta er mik
ill heimilis
iðnaður og
okkur fannst
tilvalið að
reyna að
gefa þetta út
sjálf og helst
að keyra
þetta sjálf í
búðirnar.
MEXICO,
GUATEMALA &
BELIZE
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
4. - 19. OKTÓBER
Verð kr. 568.320.-
Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri
Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna
menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída, gamlar
menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn. Endum svo álúxus hóteli við Karabíska,
þar sem allt er innifalið.
Síðumúla 21 | S: 537-5101 | Snuran.is
Opið virka daga 11-18 og laugardaga 12-16
Útskriftargjafir
Gjafir undir 5.000.-
Gjafir undir 10.000.-