Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Síða 89

Fréttatíminn - 19.06.2015, Síða 89
19. júní Helgin 19.-21. júní 201516 Bernharð Laxdal, hefur þjónustað íslenskar konur í 77 ár með gæða kvenfatnað, og höldum því áfram, verið velkomnar, ýmis tilboð í gangi í tilefni kvennadagsins        Konur taka á hörðustu málefnunum Það er best fyrir samfélagið að auka hlut kvenna í pólitík. Þær takast á við hörðustu málefnin, málefni sem snerta kviku þess að vera mannlegur, segir Auður Styrkársdóttir, stjórnmálafræðingur, forstöðumaður Kvennasögusafnsins og formaður afmælisnefndar 100 ára kosningaréttar kvenna. Auður ræðir við Fréttatímann í til- efni dagsins um upphaf kvenréttinda, kosningaréttinn og þátttöku kvenna í stjórnmálum. Þ ann 19. júní 1915 fengu ís-lenskar konur, 40 ára og eldri, kosningarétt. Af hverju þessi skilyrði, af hverju ekki allar konur? „Þetta er mjög sérstakt og al- gjört einsdæmi í heiminum. Þetta kom þannig til að 1911 samþykkti Alþingi kosningarétt allra, kvenna og karla, 25 ára og eldri, það er að segja þeirra sem ekki voru hjú en það var þjóðfélagshópur sem var ekki sjálfstæður í lagalegum skilningi. En Jón Jónsson í Múla hét þingmaður sem kom fram með breytingatillögu um að konur fengju þennan rétt 40 ára en ekki 25 ára. Hann færði fyrir því rök að konur væru ekki nógu þroskaðar og þyrftu tíma, en hann var reyndar á móti kosningarétti kvenna. Þetta ákvæði datt út en var svo aftur sett inn árið 1913 og allir þingmenn nema fimm samþykkja það. Rökin sem voru not- uð á þinginu voru meðal annars þau að það væri hættulegt að gefa öllum nýjum hópum, sem sagt konum og vinnumönnum, allan réttinn í einu. Það væri þá meirihluti kjósenda og því beinlínis hættulegt. Betra væri að þetta kæmi í skömmtum. Jafn- rétti átti að nást á 15 árum, með því að lækka réttinn um eitt ár á ári. En sem betur fer þá björguðu Danir okkur frá því með sambandslaga- samningnum og árið 1920 fengu ís- lenskar konur jafnrétti.“ En það fengu ekki aðeins konur kosn- ingarétt, heldur líka vinnumenn. Af hverju fögnum við kvenréttindum á þessum degi? „Þetta er fyrst og fremst og ein- göngu kvenréttindamál. Alveg frá 1887 voru íslenskar konur að tala fyrir þessu. Hið íslenska kvenfélag var svo stofnað árið 1894 og það hafði þá stefnu að vinna að pólitísku jafnrétti og kosningarétti. Þá fór baráttan af stað og félagið gekkst fyrir undirskriftasöfnunum þar sem skorað var á þingið að samþykkja pólitísk réttindi fyrir konur.“ „1915 fengu svo konur og vinnu- menn, 40 ára og eldri, kosningarétt. Það er erfitt að reikna út hversu margir voru vinnumenn á þessum tíma en ég hef séð í riti Hagstofunn- ar leitt að því getum að um 1.500 vinnumenn hafi fengið kosningarétt árið 1915 en þetta voru um 12.000 konur. Þannig að þetta var klárlega gert fyrir konur. Síðan færist aldurs- takmarkið niður, bæði fyrir konur og vinnumenn, en hvað vinnumenn voru margir 25 ára og eldri á þess- um tíma veit ég ekki en þeir hafa kannski verið um 3 til 4 þúsund á meðan réttindin áttu við allar kon- ur landsins.“ „Þeir sem eru eftir, þegar lögin eru sett 1920 og færa öllum 25 ára og eldri jafnrétti, eru þeir sem skulda fá- tækrastyrk og þeir sem voru dæmd- ir ólögráða einstaklingar, til dæmis vegna geðsýki eða þroskahömlunar og þeir sem höfðu flekkað mannorð. Það er svo 1934 sem fátækrastyrkur- inn er tekinn út en ekki fyrr en 1984 sem ólögráða markið og mannorðs- missir var tekið burt.“ Það var svo Ingibjörg H. Bjarnason sem settist fyrst kvenna á Alþingi árið 1922, sem fulltrúi kvenna. Hvernig kom það til? „Það var settur saman listi árið 1922 af kvenfélögum, bæði í Reykjavík og úti á landi, og mein- ingin var sú að hún ætti að vinna þeim málum gagn á þingi sem voru konum efst í huga. Flokkarnir buðu konum ekki sæti á sínum listum en hér í Reykjavík höfðu konur verið með kvennalista og haft talsvert mikil áhrif á bæjarmálin. En 1920 þegar þær voru komnar á lista hjá öðrum flokkum var þeim ekki ætl- að sæti lengur og því sparkað úr bæjarstjórn. Þá urðu konur mjög reiðar og reiðin varð til þess að þær fóru af stað með þennan lista. Sem gekk svona ljómandi vel og Ingi- björg rauk inn á þing.“ Hver voru helstu hugðarefni kvenna á þessum tíma? „Aðaláhugamálið, og það sem Ingi- björg sagði sjálf að hún myndi beita sér mest fyrir, var Landspítalamálið. Að beita sér fyrir því að ríkisstjórn- in legði peninga í byggingu Land- spítala. Þetta ákváðu konur eftir að hafa fengið kosningaréttinn 1915 en þá héldu þær stóran fund til að reyna að finna út hvernig þær gætu minnst þessa réttar. Og þá ákváðu þær að byggja spítala fyrir alla lands- menn. Og þegar horft er til baka þá er þetta þvílíkur stórhugur að maður á bágt með að finna eitthvað sem lík- ist þessu í dag. En þetta var á tíma mikillar bjartsýni og bjartsýnin færir fjöll. Þær hófu söfnun fyrir spítala um allt land og 19. júní var ákveðinn Landspítalasjóðsdagur og upp frá því var farið að halda hátíð 19. júní þar sem safnað var fyrir Landspítal- anum og kosningaréttarins minnst og dagurinn kallaður kvenréttinda- dagurinn. Ingibjörg fór inn á þing meðal annars til að fylgja þessu máli eftir. Landspítalinn tók til starfa árið 1930 og gamla byggingin er minnis- varði um kosningarétt kvenna. Við skulum aldrei gleyma því.“ Hlutur kvenna á Alþingi var svo ekki mjög stór fram eftir öldinni. „Nei, það var hann ekki. Fyrir 1983 höfðu konur verið mest 5% á þingi en þá koma fram tvö ný framboð, Kvennalistinn og Banda- lag jafnaðarmanna. Þá tók hlutur kvenna á alþingi kipp úr 5% í 15% og nær öll aukningin kom frá þess- um tveimur nýju flokkum, 3 kon- ur frá Kvennalista og 2 konur frá Bandalagi jafnaðarmanna. Síðan í næstu kosningum, árið 1987, þá áttuðu hinir flokkarnir sig á því að þetta gengi ekki lengur, að það gæti verið sniðugt reyna hala upp atkvæðin með konum. Og þá fór hlutur kvenna í 20% og konur fengu örugg sæti á lista, ekki bara sem skraut. Síðan hefur leiðin leg- ið upp á við.“ Framhald á næstu opnu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.