Ægir - 01.03.2003, Side 12
12
F R É T T I R
Segja má að væntingar sumra
um sameiningu SÍF og SH,
sem komu upp á borðið í vetur
hafi nær samstundis verið
blásnar út af því sama borði.
Ástæðan sem gefin var upp op-
inberlega var sú að mikið hafi
borið á milli varðandi verð-
mætamat hvors fyrirtækis gagn-
vart hinu.
Róbert Guðfinnsson stjórnar-
formaður SH sagði í samtali við
Ægi að vissulega væri sameining-
in út af borðinu að sinni, hvað
sem framtíðin bæri með sér. Hitt
sagði hann líka rétt að fjöldi hlut-
hafa í fyrirtækjunum vildi sjá
sameiningu þeirra.
Mikil vonbrigði
,,Þessi hugmynd kom frá mér og
ég vann að því að selja hana. En
orð sem sett voru fram í umræð-
unni voru ekki til þess að liðka
fyrir og því fór sem fór,” segir
Róbert Guðfinnsson.
,,Vissulega eru mikil vonbrigði
að svona skuli hafa farið. Með
sameiningu félaganna beggja
værum við að sjá stórt alþjóðlegt
fyrirtæki í markaðssetningu, fyr-
irtæki sem hefði yfir milljarðs
dollara veltu. Þarna hefði verið
komið fyrirtæki með einhverja
vigt á alþjóðlegum markaði,”
sagði Róbert.
Alveg út af borðinu
,,Sameining er alveg út af
borðinu. Þetta er í þriðja skipti
sem umræðan um sameiningu
þessara félaga kemur upp en
þessu er lokið,” sagði Friðrik
Pálsson formaður stjórnar SÍF
þegar rætt var við hann.
Friðrik vildi engu svara um það
hvað hefði ollið því að svona fór,
en vísaði til ræðu sinnar á síðasta
aðalfundi SÍF þar sem hann vísaði
m.a. í fundargerð aðalfundar SÍF
2002 en þar sagði: “…Má segja
að í hverri viku berist inn á borð
einhverra stjórnenda félagsins
heima og erlendis, hugmyndir
eða þreyfingar í einhverri mynd
um kaup á félögum, sameiningu,
yfirtöku eða samvinnu…”
„Ástæða þess að ég vitna til
þessara orða frá síðasta aðalfundi
er sú að á þessum tíma hafði enn
einu sinni verið nefnd sú
hugmynd að taka ætti upp
viðræður á milli SH og SÍF um
sameiningu,” sagði Friðrik.
Hann sagði það hafa verið
skoðun SÍF að verðgildi félaganna
tveggja væri nærri því að vera það
sama og hefði átt að vera hægt að
ljúka sameiningaferli fljótlega á
jafnréttisgrundvelli. Síðar hafi
komið í ljós að mikið hafi borið á
milli aðila.
„Ákvörðun um sameiningu í
upphafi janúarmánaðar hefði vel
getað skilað jákvæðum árangri,
en eftir því sem lengra leið
skapaðist meiri óþreyja og loks
miklar efasemdir um að
sameining tækist. Því fór sem fór.
SÍF hefur staðið á eigin fótum í
70 ár og er þess alls búið að gera
það áfram.“
Þegar Friðrik var spurður hvort
þessi niðurstaða hefði valdið
honum vonbrigðum sagði hann:
,,Ég gef ekkert „comment“ á
það.”
Sameining SÍF og SH
blásin út af borðinu
Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður
SH.
Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF.