Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Qupperneq 16

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Qupperneq 16
Síðar í ræðu sinni minnist herra Fritsch nijög vinsamlega á dr. Benes og lýsir að lokuin hinni vinsamlegu samvinnu Tékka og þýzka minnihlutans. Það, sem umfram allt virtist einkenna viðhorfið til uppeldis- og skólamalanna i Tékkóslóvakiu, var liin lieita trú á lýðræðið og á persónugildi cinstaklingsins. Þessi sannfæring, sem í raun og veru er óaðskiljanleg trúnni á lýðræði, sem er meira en nafn- ið tómt, um að framtið þjóðarinnar byggist á því, að einstak- lingarnir fá ineð skynsamlegu uppeldi þroskað hæfileika sína svo sem auðið má verða, til þess að þeir geti orðið i senn starfsglaðir og hamingjusamir í einkalifi sínu og hugsandi sam- taka þegnar siðferðilegs menningarþjóðfélags. Samkvæmt fregmnn frá Prag um og el'tir miðjan október síð- astl. hafði þá 3000 skólum í Súdetahéruðunum verið lokað, en G000 kennarar höfðu flúið yfir landamærin atvinnulausir og eignalausir.* En alvarlegast er þó máske það, að lýðræði hinn- ar frjálshuga og friðelskandi þjóðar hel'ur verið skert, og fjár- hagsgrundvellinum raskað. Má Iiúast við að það hafi hinar al- varlegustu afleiðingar, einnig fyrir menningamiálin, alls staðar i landinu. Hér hefur verið vikið að þeim tveim atburðum frá Mið-Ev- rópu, sem mest mntal og athygli vöktu á árinu sem leið, og einkmn bent á áhrif þeirra á vissa jiælti menningarmálanna. Af öðrum stórviðburðum ársins koma mönnum sjálfsagt fyrst i hug styrjaldirnar á Spáni og i Kína og Gyðingaofsóknirnar í Þýzkalandi. Ógnir allra þessara atburða hafa vakið hrylling meðal heiðarlegra nianna um gervallan heim. En geigvænlegast af öllu er máske liinn þrotlausi áróður fyrir einræði og kúgun i þeim lönduni, sem enn eiga við frelsi að búa, og svo hitt, hvað fólkið virðist víða liggja hundflatt fyrir þessum áróðri. Lífs- speki Filippusar Makedoníukonungs, að sú borg sé auðunnin, þar seni asni klyfjaður af gulli kemst inn um borgarhliðið, sýn- ist enn vera í fullu gildi. Með asnaklyfjum liins alþjóðlega gulls er mörgu hægt að koma til vegar. Og í hverju landi virðast vera til menn, sem eru reiðubúnir að svíkja þjóð sína fyrir fé eða völd. Og þvi meiri sem fáfræði og þekkingarleysi almenn- ings er, þeim mun greiðfærari er vegur blekkinganna. Þess vegna eru lika skólar, lilutlausar vísindastofnanir, frjálslynd bókaút- gáfa og önnur fræðslutæki almennings venjulega óþægilegir þyrn- ar í augum þeirra, sem liafa persónulegan liag af þvi að vefja almenningi um fingur sér. * The schoolmaster, 13. okt. ’38; L’ÉcoIe libératrice, 22. okt. ’38. 14

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.