Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Síða 26

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Síða 26
Eldgamla ísafold, Þú nafnkunna Iandið og Fljótshlíð má taka þjóðsöng Stefáns (Þótt þú langförull), Útlegðin, margt i Heim- leiðis og víðar, og finna alls staðar hliðstæður. Jafnvel við kvæði, sem Bjarni vildi ort hafa, eins og Gunnarshólma, eða sumt í forneskjurómantik Gríms Thomsen, sem er Bjarna skyld, mætti finna hliðstæður i fjölmörgum hetjuljóðum Stefáns. Á móts við tignun Bjarna á fegurð vetrar og dauða, hefur Stefáu hins vegar fátt, þó að Vetur hans sé táknandi kvæði; vorfögnuður hans kemur aftur í staðinn, þrunginn af rómantik. Tákna ekki timaskiptin, sem margir eru nú að verða varir, að Stefán verði 20. öld það, sem Bjarni varð þeirri 19.? Er það ekki eitt af táknum timans, að Heimskringla varð til þess að ljúka útgáfu ljóða hans? í VI. bindi eru þessir flokkar: I. Glæður (Stakar lausavísur), II. Skin og skýjadrög (Tíðarfar og veður), III. Sú var tíð (Eftir- mæli og sveitaljóð), IV. Láð og lögur (Náttúrulýsingar), V. Eng- ar ýkjur (Kvæði um ýms viðfangsefni), VI. Glettur og góðmæli (Heillaóskir og hnýfilyrði), VII. Erfðir (Úr sögum og sögnum), VIII. Vökulok (Síðustu Ijóð skáldsins). Mörg • skáld forðast að flokka ljóð sín i útgáfum eftir efni til að auglýsa ekki fátækt sina. Auðlegð Stefáns þolir skipting. Hann er aðeins fátækur af Ijóðunum, sem hann lýsir þannig: Hvað mér leiðast ljóð leikin öll á kveini, eintóm hríðahljóð, hrygluköst með veini, — gremjulega góð —. Tilkomumestur í heild er VII. kafli, og virðist þar mest spunn- ið i kvæðin Erfðir og Þiðrandakviðu. Úr öðrum köflum má benda á eins sundurleit góðkvæði og Sæunni, Stafnbúann, Mannheima, eftirmæli Courmonts, Smalabyrgið, Vísurnar, sem „Hkr.“ neitaði og ýms brot í Vökulokum. Um þessi kvæði má e. I. v. Segja, að þar komi sjaldan fram fullgerður, sigildur skáldskapur, lúður og langspil snillingsins þagni smátt og smátt í brotum, slitróttum tónum, en þess á milli heyrist öldungshjal, einkennilegt að visu og spaklegt fram í dauð- ann, — en þannig, að það skilst jafnvel ekki fyrr en marglesið og borið saman við eldri ljóð. En það er ómetanlegt að geta fylgzt með skáldinu, sem skynj- aði í rómantisku raunsæi íslenzkan aðal í týpum eins og llagn- heiði litlu, Fótaskinnshagyrðingnum, Jóni lirak, Hrafnistu-Grimi 24

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.