Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Page 31

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Page 31
og veru viðhorf þeirra við lífinu, þvi að bókmenntirnar verða aevinlega tengdar því, og ættu vissulega að vera í þjónustu þess fegursta, sem lífið á. í minum augum er það hlutverk bókmennt- anna að þroska einstaklinginn, gera honum kleift að koma auga á fegurðina og vekja hjá honum þrá eftir fullkomnara lífi, gera menn, ef svo mætti segja, alveg friðlausa, þar til þeir hafa hai'- íð leitina að nýjum sannleika og starfið í þágu hans á meðal fólksins. Fram til skamms tíma voru fornsögur okkar þær einu bók- menntir, sem þjóðin átti kost á, og þær voru lesnar af verð- skuldaðri hrifningu. En nú er fjöldi fólks, sem ekki vill lesa J»ær. Þær þykja ekki nógu „spennandi". í þess stað sækja menn í miður vandaða nútíma reyfara sitt andlega uppeldi. Eg lield, að þjóðin eigi enn að lesa fornsögur okkar og lesa þær á kostn- að reyfaranna. tíildi þeirra er meira, mál þeirra fegurra. Þær eru þjóðlegar bókmenntir, sem hafa einnig gildi út fyrir tak- mörk þessa lands. Það er enginn vansi fyrir okkur að hafa ekki lesið þennan eða hinn reyfarann. Það er meiri vansi að hafa ekki lesið hinar sígildu fornbókmenntir okkar. En við eig- um vitanlega líka að lesa nútimabókmenntir, þær fegurstu, sem við eigum kost á. Undanfarið hefur verið heldur fátæklegt um það, að þýddar væru úr erlendum málum góðar skáldsögur, og hefur áherzlan verið lögð á annað meir en fagrar hókmcnntir. Ég held, að Mál og menning sé á góðum vegi með að hæta úr þessu og glæða áhuga á þvi, sem fagurt er í ýmsum greinum bókmenntanna. Ég drap á það í upphafi, að menn skiptust í tvo liópa í hók- menntadeilum. Aðdáendur hinna ágætu reyfara hefðu gott af því að kynna sér annars konar bókmenntir. Þeim er áreiðanlega Ijóst mörg- um hverjum, hve lítils virði reyfararnir eru, þótt þeir vilji ekki viðurkenna það. Þeir vita, að í aðrar bækur er meira að sækja, en þeir óttast þær. Þær gætu komið róti á hugi þeirra, gert gandar venjur þeirra tortryggilegar, þær gætu sýnt ný viðhorí, sem illt er að þurfa að viðurkenna. Það er einn öðrum fremur. af íslenzkum rithöfundum, sem hefur orðið fyrir því, að sumt fólk vill ekki lesa bækur hans. "Og það er vissulega vegna þess, að hann afhjúpar ýms „verð- mæti“, sem hafa verið i heiðri höfð. Hann dregur fram í ljós dagsins þann sannleika, sem ákveðinn hópur manna þorir ekki að vita, að er til, afhjúpar þá blekkingu, sem þeir lifa í. En yfir því getum við glaðzt, að það er annar álitlegur liópur, sem 29

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.