Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Page 41
HALLDÓR KILJAN LAXNESS:
Nítján hundruð fjörutíu og þrjú
1. Kóngsvaldi Aldinborgarmanna lokið hér
Höíundur þeirra hugleiðinga, sem hér fara á eftir, hefur skrifað
tvær greinar áður um „sambandsmál“, báðar 1939. Mætti ég fyrst
rifja upp þau atvik, seín lágu til hinnar síðari af greinum þessum,
en hún birtist um sumarið rétt áður en styrjöld hófst, sjá Vettvang
dagsins bls. 158—167. Danskir erindrekar andkommúnistabanda-
lagsins svonefnda hófu hér þá storkanir við íslendinga um sumar-
ið með því að stofna til útifunda í Reykjavík og flytja þar í danskri
útleggingu hið svekkjandi þvaður Adolfs Hitlers og Jósefs Göbb-
els gegn samvirkri þjóðfélagsstefnu, m. ö. o. hinar heimspólitísku
hugsjónir Möndulsins. Þýzkir kafbátar voru hafðir hér á Reykja-
víkurhöfn til að ljá orðum þessara erindreka áherzlu. Um annan
erindrekann, Heðtoft Hansen, hefur því síðan verið lýst í Alþýðu-
blaðinu, að um leið og Hitler réðst á Danmörku hafi hann álitið
köllun sinni lokið sem stjórnmálamaður, og gerzt ölgerðarforstjóri
í skjóli þýzkra fasista.
Fyrri grein mín var samin áður en storkanir hinna dönsku er-
indreka andkommúnistabandalagsins hófust af Arnarhóli, sjá Vett-
vang dagsins bls. 147—157. Hún var rituð í anda þess friðar og á-
stríðuleysis, sem þá hafði um tvo undangengna áratugi ríkt milli
þessara tveggja ólíku þjóða, sem því miður hafa, þrátt fyrir langa
sambúð, átt erfiðara að skilja hvor aðra og þarmeð tengjast sam-
úðarböndum en flestar aðrar þjóðir.
í báðum þessum greinum reyndi ég eftir mætti að ítreka þá stað-
reynd, sem svo mörgum Islendingi hætti við að gleyma, að æðsta
vald Aldinborgarættarinnar* á íslandi væri enganveginn samnings-
* Sú álma Aldinborgarættarinnar, sem nú situr að völdum í Danmörku, er
að vísu kennd við Glúkksborg, en það skiptir okkur litlu máli, og eru kóngar
í grein þessari nefndir eftir hinni upprunalega ættborg sinni.