Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Side 65
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
175
sveitafólksins. Landbúnaðarlöggjöf,sem hjálpar bændum til fullkom-
innar samfelldrar ræktunar og samfærslu byggðarinnar, þar sem
skilyrði eru bezt, og skapa möguleika til að hægt verði að leiða
rafmagn um sem flestar sveitir landsins, skapa fullkomið samgöngu-
kerfi milli þeirra og kaupstaðanna á sem skemmstum tíma, og taka
vélar og alla nútíma tækni í þjónustu landbúnaðarins. Landbúnaðar-
löggjöfin sé fyrst og fremst sniðin eftir þörfum efnaminni bænda og
miði að því að útrýma kotbúskapnum og rányrkju með öllu og skapa
hverjum búanda þau afnot af jörðinni, sem tryggi honurn og fjöl-
skyldu hans fyllilega sambærileg kjör við aðrar atvinnustéttir. Um-
ráðarétturinn yfir jörðinni sé tryggður í höndum þess fólks, sem
yrkir hana.
3. Að bættum kjörum fiskimanna, eflingu sjávarútvegsins og
náinni samvinnu verkafólks og fiskimanna í hagsmunabaráttunni.
Ráðstafanir verði gerðar til að útvega fiskimönnum útgerðarvörur,
svo sem beitu, veiðarfæri, salt, olíu o. s. frv. með sem beztum kjör-
um og skipulögð samtök þeirra í þessu skyni, til þess að losna við
okur hringa og verðsamtaka með tilstyrk verkalýðssamtakanna. Að
veitt verði hagkvæm lán til fiskimanna og gerðar alhliða ráðstaf-
anir til að bæta starfsskilyrði útgerðarinnar og koma tækni hennar
og skipulagi á nýtízku grundvöll, er sé fyllilega samkeppnisfær við
þær þjóðir, sem lengst eru komnar í þeim efnum.
4. Að sporna gegn dýrtíðinni, með afnámi tolla. á nauðsynja-
vörum, með ströngu verðeftirliti, með opinberum ráðstöfunum til
að draga úr verzlunargróðanum, með því að efla samvinnusamtökin
og gera þau að raunverulegum baráttutækjum gegn dýrtíðinni, með
því að taka stríðsgróðann til almenningsþarfa og eflingar atvinnu-
veganna og koma í veg fyrir að hann verði notaður til að auka
verðbólguna, með ráðstöfunum gegn braski með fasteignir og önn-
ur verðmæti, með því að koma fastri skipan á verð landbúnaðar-
afurða og með margháttuðum ráðstöfunum til stuðnings bændum
til að lækka framleiðslukostnað þeirra.
5. Að fjölþættum umbótum til almenningsheilla, svo sem gagn-
gerðum umbótum á alþýðutryggingunum og framfærslulöggjöfinni,
bættu húsnæði og öðrum ráðstöfunum gegn húsnæðisleysi, bættri
aðbúð gamalmenna, öryrkja og sjúklinga, bygginga sjúkrahúsa og