Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Síða 140
250
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Ég þori ekki að fullyrða, hvernig félagsmenn hefðu tekið því, ef við hefð-
um hækkað árgjaldið meira en vísitalan sýndi, að var nauðsyn. En ljóst má
það vera hverjum manni á þessuin tíma, hve þröngur stakkur útgáfustarfsemi
okkar er skorinn með 25 kr. árgjaldi, er varla nokkur hók fæst lengur á frjáls-
um markaði fyrir svo lága krónutölu. Og vissulega finnum við sárt til þess í
stjórn Máls og menningar, hve þröngt er um okkur innan veggja þessara 25
kr. árgjalds, og ekki sízt síðan útgáfa félagsins komst í fastari skorður. A
hverju ári hér eftir erum við í rauninni bundnir með þrjár bækur, mann-
kynssögu bindi, Tímaritið og skáldsögu (því að meginþorri félagsmanna
myndi sízt vilja vera án hennar), og þá er ekki, meðan verðlag er svipað og
nú, stórt svigrúm eftir fyrir aðrar bækur, sem okkur þætti jafn mikil nauð-
syn að gefa út, þó ekki væri af öðrum ástæðum en til að auka á fjölbreytni
útgáfunnar.
Ut úr þessum þrengslum höfum við leitast við að komast með því að taka
það ráð, að gefa út hækur til sölu á frjálsum markaði, og höfum við þó
viljað fara mjög varlega í þær sakir. Á þennan hátt gáfum við út Fagrar
heyrði eg raddirnar, sem dr. Einar Ól. Sveinsson, háskólabókavörður, sá um.
Þessi hók hefur vakið mikinn fögnuð og selzt vel, en félagsmenn ýmsir voru
óánægðir yfir því, að við skyldum selja þessa bók utan félagsins, í stað þess
að láta hana með félagsbókunum. Og raddir heyrðust í þessa átt: nú ætlar
Mál og menning að fara inn á sömu braut og önnur útgáfufélög, að gefa
heztu bækurnar út utan félagsins til að græða á þeim! En hvemig áttum við
að koma þessari bók að í félaginu og hvert rennur ágóði af henni nema til
annarrar útgáfustarfsemi félagsins. Nú skrifar okkur einn af vinum og félags-
mönnum Máls og menningar, Hallur Jóhannesson, og lýsir óánægju yfir því,
að framhald af Afa og ömmu eigi ekki að verða félagsbók. Þetta hvort tveggja
má skilja sem ákveðna bendingu til okkar um það, að hinar árlegu félags-
bækur þyki of fáar, félagsmenn vilja fleiri bækur. En mundu þeir vilja láta
árgjaldið hækka? Ég gæti trúað, að varðandi kostnað við bókaútgáfu geri
50 kr. nú lítið betur en svara til 10 kr. árið 1938. Og mjög væri stjórn
Máls og menningar kært, ef hún gæti gefið út helmingi hærri arkafjölda, og
niundi þó ekki finnast svigrúmið nógu vítt.
I ráði er, að hjá Máli og menningu komi út nú fyrir jólin Leit eg suður til
landa, íslenzk ævintýri, helgisögur o. fl., útgefið af dr. Einari Ól. Sveinssyni,
eins konar framhald af Fagrar heyrði eg raddirnar, ennfremur Charcot við
suðurpól eftir Sigurð Thorlacius, og loks Tólj œvintýri eftir Asbjörnsen
í þýðingu frú Theódóru Thoroddsen, allar til sölu á frjálsum markaði.
Ennfremur hefur Bókabúð Máls og menningar í umboðssölu Þúsund og
eina nótt, sem væntanleg er í nýrri vandaðri útgáfu með teikningum, í þrem
stórum bindum, og kemur fyrsta bindið fyrir jólin. Bókin er í þýðingu Stein-
gríms Thorsteinsson. Kr. E. A.