Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2012, Blaðsíða 11

Ægir - 01.02.2012, Blaðsíða 11
11 F I S K V I N N S L A N Byggingaframkvæmdir eru nú hafnar hjá bol- og uppsjávar- frystihúsi Ísfélags Vestmann- eyja á Þórshöfn en ætlunin er að auka frystigetu hússins á uppsjávarfiski um 100 tonn á sólarhring. Rafn Jónsson, rekstrarstjóri, segir markmið- ið að ljúka framkvæmdum í lok júlí þegar vænta má að makrílveiðar verðið komnar í fullan gang. „Við fáum blástursfrysti frá Dantech, sem er dótturfyrir- tæki Marels, en samhliða því að koma blástursfrystinum fyrir í nýja húsinu stækkum við einnig umbúðageymslu og fleira í leiðinni. Fyrst og fremst erum við að horfa til þess að frysta makríl og síld í þessum nýja frysti, auk þess sem við gætum einnig nýtt okkur hann í loðnufrystingu þegar fram líða stundir,“ segir Rafn. Blástursfrystar hafa skilað góðum árangri í uppsjávar- frystihúsinu á Vopnafirði en þessi frysting hentar bæði í stærri makrílinn og afurðin er verðmætari en hefðbundin blokkarfrysting. „Við höfum afkastað um 160 tonnum á sólarhring í frystingunni í loðnu og síldar- flökum en þegar við heilfryst- um í plötufrystunum þá höf- um við getað afkastað um 100 tonnum á sólarhring. Með öðrum orðum erum við því að nærfellt tvöfalda af- kastagetu okkar í heilfryst- ingu með tilkomu blásturs- frystingarinnar. Blástursfryst- ingin fer líka betur með hrá- efnið en plötufrystarnir og við sjáum því fram á að bæta við okkur talsvert verðmætari framleiðslu en við höfum ver- ið með fram til þessa,“ segir Rafn. Góð loðnuvertíð að baki Góðri loðnuvertíð er nýlokið og er Rafn ánægður með hvernig vinnslan gekk fyrir sig. „Ég held að það sé óhætt að gleðjast yfir þessari vertíð. Bæði gengu veiðarnar ágæt- lega þrátt fyrir risjótta tíð og sömuleiðis hefur gengið vel að losna við afurðir. Menn voru í upphafi vertíðar ugg- andi um að hik kæmi á mjöl- markaðinn þegar mikið magn kæmi héðan inn á hann en það hefur ekki gengið eftir,“ segir Rafn en næsta törn verður með síld- og makríl- veiðum í sumar. „Við reikn- um með að veiðarnar á mak- ríl hefjist ívið seinna en í fyrra. Makríllinn er viðkvæm- ur á þessum tíma og betra að eiga við hann í vinnslunni þegar komið er lengra fram á sumarið og hann orðinn feit- ari. Af reynslunni vitum við líka að héðan af miðunum fyrir austan landið erum við að fá blandaðri afla með makríl og síld en hreinni makrílfarma fyrir sunnan land. Blástursfrystirinn auð- veldar okkur þannig að vinna úr blönduðu förmunum, flokka og flaka síldina í tvo flokka en stýra makrílnum í blástursfrystinguna.“ Frystihús Ísfélagsins Vestmannaeyja á Þórshöfn: Byggt yfir nýja blásturfrystingu fyrir makrílvertíðina Miðað við heilfrystingu gæti afkastageta Ísfélagsins á Þórshöfn nærfellt tvöfaldast með tilkomu nýju blástursfrystingarinnar. Unnið er af fullum krafti við viðbygginguna á Þórshöfn þessa dagana.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.