Ægir - 01.02.2012, Blaðsíða 38
38
Íslensku fyrirtækin Skaginn
og Kælismiðjan Frost gerðu
nýverið samning við færeyska
fyrirtækið Varðin Pelagic um
vinnslulínu og frystibúnað í
eina fullkomnustu og af-
kastamestu vinnslulínu heims
fyrir uppsjávarfisk. Verksmiðj-
an er nú í byggingu á Suðurey
í Færeyjum og mun taka til
starfa með 600 tonna af-
kastagetu á sólarhring á
markrílvertíðinni í júlí.
Bæði Skaginn og Frost
hafa verið ötul í þjónustu við
íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
um margra ára skeið og
komið að lausnum í stærstu
og tæknivæddustu vinnslum
landsins. Ekki hvað síst í
uppsjávarvinnslunum þar
sem mikil þróun hefur átt sér
stað allra síðustu ár. Lausnin
sem um ræðir í Færeyjum
byggir í grunninn á 10 plötu-
frystum sem Skaginn fram-
leiðir en framleiðslu fryst-
anna keypti fyrirtækið frá
Ítalíu fyrir tveimur árum. Síð-
an hafa plötufrystar Skagans
verið þróaðir áfram með það
að markmiði að þeir skili
sömu gæðum og blásturs-
frystar en meiri afköstum.
Síldarvinnslan keypti fyrsta
frystinn frá Skaganum og
hefur síðan bætt öðrum við,
auk þess sem Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum er einnig
komin með plötufrysti af
þessari gerð. Frystarnir þóttu
ekki hvað síst sanna getu
sína á makrílvertíðinni síðasta
sumar hjá Síldarvinnslunni en
Skaginn hefur skráð einka-
leyfi á ákveðnum hlutum
vinnslurásarinnar.
Uppfyllti allar kröfur
Verksmiðjunni á Suðurey í
Færeyjum er ætlað að afkasta
1000 tonnum á sólarhring
þegar hún verður komin í
full afköst. Auk hinnar miklu
afkastagetu næst með línunni
umtalsverður sparnaður í raf-
magnsnotkun í frystingunni,
minni umbúðakostnaður og
minni rýrnun hráefnis við
þíðingu. Bogi Jacobsen,
framkvæmdastjóri Varðin
Pelagic segir að íslensku
verksmiðjuna uppfylla allar
þær kröfur sem fyrirtækið
hafi haft við undirbúning
verkefnisins. „Þegar það lá
fyrir voru aðrir kostir úr sög-
unni frá okkar hendi,“ segir
Bogi.
Tæplega þriggja milljarða
samningur
Í heild hljóðar samningurinn
upp á 2,8 milljarða íslenskra
króna. Hlutur Skagans er þar
af um 2,2 milljarðar en Frost
annast þann hluta verkefnis-
ins sem snýr að frystikerfinu
sjálfu.
Í stuttu máli er um að
F I S K V I N N S L A N
Færeyingar völdu íslenskar
lausnir í eina fullkomnustu
uppsjávarvinnslu heims
Vinnslulínan sem Skaginn og Frost munu setja upp í Færeyjum verður einstök á heimsvísu. Gert er ráð fyrir hún verði komin í gagnið fyrir makrílvertíðina í sumar og af-
kasti 1000 tonnum á sólarhring á fullum afköstum.