Ægir - 01.02.2012, Blaðsíða 27
27
F I S K A V I N N S L A N
„Reimarnar eru einn mikil-
vægasti hlekkur færiband-
anna og sá flötur sem varan
kemst í beina snertingu við.
Það skiptir því öllu máli að
gæði þeirra séu mikil - alveg
sér í lagi í matvælafram-
leiðslu eins og sjávarútvegi
þar sem er á ferðinni viðkvæm
vara,“ segir Hermann Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri
Reimaþjónustunnar. Fyrirtæk-
ið var stofnað upp úr sjávarút-
vegsdeild Sambandsins árið
1988 og síðan þá hefur það
vaxið og dafnað á sínu sér-
sviði sem snýr að reimaþjón-
ustu. Færibönd koma mikið
við sögu í fiskvinnslu og ann-
arri matvælavinnslu, enda er
þjónusta við fyrirtæki í sjávar-
útvegi snar þáttur í starfsemi
Reimaþjónustunnar.
Koma við sögu í allri
matvælavinnslu
Rétt val á reimum í færibönd-
in skiptir máli og þar er af
nógu að taka hjá Reimaþjón-
ustunni. Yfirborð reimanna er
margs konar - allt eftir því
hvað hentar starfsemi við-
komandi notanda. Það getur
verið sleipt, matt, munstrað
eða gaddað og hægt er að
velja úr margs konar efnum,
t.d. polyester, polypropylene,
polyethylene, polyacetal og
termoplastisk polyester, svo
aðeins séu tekin nokkur
dæmi úr vöruúrvali Reima-
þjónustunnar. Að sama skapi
geta böndin verið margvísleg
í lengdum og gerðum; t.d.
sérhannaðar reimar fyrir mik-
inn hita eða kulda, kubba-
bönd, færibönd sem beygja,
færibönd með ásoðnum
spyrnum, færibönd með
merkingum og þannig mætti
áfram telja. Enda er það svo
að reimarnar frá Reimaþjón-
ustunni koma við sögu í öll-
um matvælaiðnaði hér á
landi, á flugvöllum, í flutn-
ingafyrirtækjum, prentiðnaði,
timburiðnaði og jafnvel á lík-
amsræktarstöðvunum!
Heilsteypt bönd það nýjasta
„Í sjávarúvegi er mikil áhersla
lögð á að hámarka líftíma
vörunnar og þetta á til að
mynda við um ferska fiskinn.
Það er því lykilatriði að færi-
bandareimarnar uppfylli
gæðakröfur. Í gegnum tíðina
hefur verið þekkt að böndin
hafa verið lagskipt hvað upp-
byggingu varðar en núna er
einn af okkar birgjum kom-
inn fram með bönd sem eru
heilsteypt. Þetta gerir að
verkum að örverur eiga erfið-
ara með að hreiðra um sig í
böndunum. Þrifin verða auð-
veldari og allt skilar þetta sér
í betri framleiðsluvöru,“ segir
Hermann en umrædd bönd
koma frá Volta Belting sem
er einn þriggja stærstu birgja
Reimaþjónustunnar. Volta
Belting er leiðandi í heimin-
um í framleiðslu færibanda-
efnis úr Thermoplastic. Þessi
bönd uppfylla allar ströng-
ustu kröfur matvælaiðnaðar-
ins en þessi nýjasta gerð
gengur undir nafninu Positive
drive belts - hönnun sem ætl-
að er að leysa verkefnin við
erfiðustu notkunarskilyrði.
Aðrir stærstu birgjar
Reimaþjónustunnar eru
spænski reimaframleiðandinn
Esbelt og Forbo-Siegling.
„Auk þess að selja reimarnar
önnumst við alla þjónustu í
kringum þau, sníðum í réttar
lengdir og sjóðum saman,
hvort heldur er hér á verk-
stæðinu hjá okkur, um borð í
skipum eða inni á gólfi í fyr-
irtækjum. Lykilatriði er að
leysa þörf viðskiptavinarins
fljótt og vel,“ segir Hermann.
Færibandareimarnar mikil-
vægar í fiskvinnslunni
Guðmundur Ólafur Guðmundsson, framleiðslustjóri og Hermann Gunnarsson, aðaleigandi og framkvæmdastjóri Reimaþjón-
ustunnar.
Reimaþjónustan býður margar gerðir reima.