Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2012, Qupperneq 23

Ægir - 01.02.2012, Qupperneq 23
23 „Við erum á eftir í skipa- kostinum og getum sagt að getuna sem við höfum byggt upp í tæknivæddum vinnsl- um í landi sé ekki hægt að nýta af fullum þunga nema búa skipin betur út. Mörg skipanna okkar hafa verið endurbyggð og búin út með kælikerfum en þau væru hönnuð öðruvísi, bæði hvað varðar lestafyrirkomulag og fleira, ef þau væru smíðuð frá grunni í dag. Ég met það því svo að nú sé komið að þeim kafla í uppsjávarhluta sjávar- útvegsins hér á landi að nauðsynlegt sé að byggja ný og betur búin skip.“ Styrkur í samspili mjölvinnslu og frystingar Stærstur hluti loðnuaflans sem Síldarvinnslan vinnur úr fer í mjölverksmiðjur fyrirtæk- isins á Neskaupstað, Seyðis- firði og í Helguvík. Jón Már segir langa reynslu sýna hversu mikill ávinningur sé að því að fyrirtæki hafi með þessum hætti marga valkosti í vinnslu aflans á sömu hendi. Geti þannig stýrt aflanum í þá vinnslu þar sem hag- kvæmnin er mest hverju sinni. Unnið með öðrum orð- um hluta aflans í mjöl á sama tíma og annað fer í frystingu. „Þetta er til dæmis frá- brugðið því sem við sjáum í Noregi þar sem menn flytja jafnvel hráefni milli lands- hluta frá uppsjávarvinnslu að mjölverksmiðju. Samspilið og nálægðin sem við höfum byggt upp hér á landi milli uppsjávarfrystihúsanna og mjölverksmiðjanna er nánast hvergi til í Noregi. Þetta er hluti af þeirri hugmyndafræði sem er lykillinn í sjávarútvegi á Íslandi, að ná að vinna úr miklum afla á skömmum tíma þegar á þarf að halda en tryggja um leið hámarks gæði og um leið hámarks afrakstur fyrir fyrirtækin og þjóðarbúið. Í þessu liggur einn af styrk- leikum uppsjávarvinnslunnar í dag,“ segir Jón Már. F I S K V I N N S L A Jón Már Jónsson við líkanið af Beiti á skrifstofu SVN. Hann var áður vélstjóri á þessu skipi.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.