Ægir - 01.02.2012, Page 34
34
F I S K V I N N S L A N
Hátæknifyrirtækið Marel er
sprottið upp úr þróunarlausn-
um fyrir íslenskan sjávarútveg
og til lausna fyrirtækisins má
rekja ýmsar byltingarkenndar
nýjungar sem skilað hafa hér-
lendri fiskvinnslu framförum.
Nægir þar að nefna þrjár kyn-
slóðir flæðilína sem ætíð hafa
haft að markmiði afkasta-
aukningu í vinnslunni og um
leið aukinni verðmætasköpun.
Hávirðishugsun er lykilorð í
þróunarvinnu Marels og nú
boðar fyrirtækið viðamikla
rannsóknar- og þróunarvinnu
sem ætlað er að skila nokkr-
um prósentum í nýtingaraukn-
ingu í bolfiskvinnslu. Sem
telja má í milljörðum á árs-
grundvelli. Kristján Hallvarðs-
son, framkvæmdastjóri vöru-
þróunar Marel, segir að ef vel
takist til kunni þessi vinna að
marka þáttaskil í íslenskri
bolfiskvinnslu sem sannarlega
þurfi á þróun að halda til að
standast samkeppni. Sú sam-
keppni sé sýnileg í Kína og
þurfi ekki að fara lengra en til
Noregs til að sjá sífellt aukinn
útflutning á óunnum fiski til
vinnslu á sama tíma og bol-
fiskvinnslan heima fyrir eigi
undir högg að sækja.
Ávinning að sækja í meiri
verðmæti
Árið 1996 kom Marel fram
með fyrstu kynslóð flæðilína
sem skilaði auknum afköstum
og hávirðishlutfalli úr 57% í
65%. Enn jukust afköst með
næstu kynslóð árið 2004 og
með þriðju flæðilínukynslóð-
inni árið 2007 jókst hávirðis-
hlutfallið upp í 80%, samhliða
áframhaldandi afkastaaukn-
ingu.
Kristján segir ljóst að inn-
tak þróunarinnar í dag snúist
um hávirðishlutfallið. Þar sé
mun meira að sækja en í
auknum afköstum enda ekki í
sjónmáli að veiðar á bolfiski
aukist verulega frá því sem
þær eru í dag.
„Fiskvinnslan á Íslandi hef-
ur frá upphafi verið mjög
mikilvæg fyrir Marel og ekki
síður í dag en var á upphafs-
árum fyrirtækisins. Á síðustu
árum hefur verið mikill vöxt-
ur hjá fyrirtækinu í öðrum
iðnaðargreinum en með þeirri
skiptingu sem er komin á í
dag innan Marel eftir iðnaðar-
sviðum þá undirstrikum við
enn aukna áherslu á fiskiðn-
aðarsviðinu. Og sú áhersla
beinist sérstaklega að Íslandi,
enda okkar heimavöllur í þró-
un fyrir fiskiðnaðinn,“ segir
Kristján.
Markmiðið að opna nýjan
heim fyrir vinnsluna
Segja má að tvennt standi
upp úr í þeirri fiskiðnaðar-
áherslu sem Kristján talar um
og er komin í fullan gang inn-
an Marel. Samnefnararnir eru
sem fyrr hávirði og aukin nýt-
ing.
Annars vegar er verkefni
sem miðar að því að árið
2014 komi Marel fram með
nýjan sjálfvirkan vélbúnað til
Fiskvinnslubylting í
farvatninu hjá Marel
Kristján Hallvarðsson, framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá Marel.