Ægir - 01.02.2012, Page 41
41
fólk sé ekki að fara eftir sett-
um reglum áminnir hann þá
sem í hlut eiga,“ segir Róbert.
Tekur til margra þátta
Róbert segir að ráðgjafinn
fylgist einnig sérstaklega með
þrifum á húsnæði og búnaði.
Hann tekur þá myndir að því
sem miður fer á þessu sviði,
sem hann síðar notar sem
kennsluefni á námskeiðum
um hreinlæti og hollustu-
hætti. „Frumherji er nú að
fjárfesta í ATP-mæli til að
meta þrif og mun fljótlega
bjóða uppá þá þjónustu, sem
hluta af útvistunarsamningn-
um. Önnur þjónustu en sú
sem tengist gæðakerfinu er
einnig í boði sé þess óskað.
Má þar nefna aðstoð við
gæðamat, merkingar, nýting-
arútreikninga og fleira. Í lok
hverrar heimsóknar skilar
ráðgjafinn sýrslu um hvað var
gert í viðkomandi heimsókn.“
Í útvistunarsamningi er
margt annað innifalið. Frum-
herji sér um viðhald gæða-
handbókar og útgáfustýringu
hennar. Ráðgjafi er gjarnan
viðstaddur eftirlitsheimsóknir
eftirlitsaðila og sér um að
grípa til útbóta við frávikum
sem fram koma við slíkar
heimsóknir. Gerð er vöktun-
aráætlun fyrir hvert fyrirtæki
þar sem fram kemur hvenær
skuli taka sýni, prófa mæli-
tæki, gera viðhaldsáætlanir,
sannprófa gæðakerfið og
halda námskeið svo eitthvað
sé nefnt. Ráðgjafi Frumherja
annast framkvæmd þessara
atriða í samvinnu við fram-
leiðanda og gætir þess að
þessi atriði séu framkvæmd á
réttum tíma.
Ekki þörf á fastráðnum
starfsmanni í gæðamálum
Ávinningur framleiðandans af
útvistun gæðastjóra felst m.a.
í því að hann þarf ekki að
fastráða sérhæfðan starfs-
mann til að sinna þessum
málaflokki, en getur samt
tryggt faglega umsjón með
gæðakerfi fyrirtækisins. „Um-
talsverður sparnaður hlýst
einnig af því að geta fækkað
heimsóknum eftirlitsmanna.
Matvælastofnun tekur nú fullt
gjald fyrir hverja heimsókn,
en heimsóknartíðnin byggist
á fjölda frávika í fyrri heim-
sóknum.
Matvælasvið Frumherja
býður matvælaframleiðend-
um einnig margvíslega aðra
þjónustu en þá sem innifalin
er í útvistunarsamningi um
gæðastjóra. Þar má nefna út-
tektir á fiski og fiskafurðum,
lengri námskeið fyrir stjórn-
endur um HACCP og annað
sem tengist gæðamálum, al-
menna framleiðsluráðgjöf t.d.
um nýtingu og afurðamat, út-
tekt á vinnsluumhverfi, ráð-
gjöf um merkingar o.fl. ásamt
aðstoð við uppsetningu vott-
aðra gæðakerfa samkvæmt
erlendum votturnarstöðlum,“
segir Róbert Hlöðversson.
Róbert Hlöðversson og Hildur Sigurðardóttir, ráðgjafar matvælasviðs Frumherja.
F I S K V I N N S L A N
Cretel vélar eru með allar lausnir fyrir roðettingu.
Nobilis 460V
Ný hönnun,
sem roðettir skinn með
mestu mögulegu nýtni.
Nobilis 460TAC
Alsjálfvirk roðettivél
Oannes 362
Fjölhæf roðettivél á borð.
ERTU AÐ FISKA EFTIR
BETRI NÝTINGU ?
Upplýsingar hjá sölumönnum í s: 567 88 88 og á www.cretel.com