Ægir - 01.08.2011, Page 4
Íslenska sjávarútvegssýningin
Ægir er að þessu sinni að stærstum hluta
helgaður umfjöllun um þátttakendur á Ís-
lensku sjávarútvegssýningunni sem hefst í
Fífunni í Kópavogi þann 22 . september
næstkomandi . Sýningin var haldin síðast
árið 2008 og hefur verið reglulegur við-
burður í sjávarútveginum um langan tíma .
Til íslensks sjávarútvegs er horft víða
erlendis . Við þykjum gera margt mjög vel í sjávarútvegi, skila
góðri vöru á erlenda markaði, nýta okkur ýmsar tæknilausnir til
að skapa okkur forskot . Sýna umhyggju fyrir fiskistofnunum –
gæta þess að ganga vel um þá og hafsvæðin . Því staðreyndin
er sú að á margan hátt höfum við forskot með okkar
sjávarútveg og fiskafurðir . En það forskot er ekki sjálfgefið . Við
skulum horfast í augu við okkur sjálf og viðurkenna að við
getum glutrað því niður . Hvort það gerist ráðum við mestu um
sjálf . Umgengi um auðlindina, hagkvæmni í greininni, um-
hverfismál, gæði afurða . Allir þessir þættir og svo miklu fleiri
eru ekki sjálfsagðir . En í flestum þeirra höfum við haldið
ágætlega á málum – svo eftir er tekið . Þannig þarf þetta að
vera áfram .
Íslenska sjávarútvegssýningin er hátíð . Eins konar upp-
skeruhátíð þar sem fólk í greininni hittist, þjónustuaðilar kynna
nýjungar, verja góðri stund með viðskiptamönnum sínum . Og
kynnast nýjum . Bæði erlendum og innlendum . Þátttaka
erlendra fyrirtækja í Íslensku sjávarútvegssýningunni sýnir þau
tengsl sem þau vilja hafa við íslenska heimamarkaðinn . Sama
er að segja um fjöldamarga gesti sýningarinnar erlendis frá .
Þeir eru hingað komnir til að sjá það nýjasta í framsæknum
sjávarútvegi . Til þess fara þeir til Íslands . Því hér er heimavöllur
nýjunga og framþróunar .
Stundum er talað um Íslensku sjávarútvegssýninguna á
þann máta að hún sé einn allsherjar tækni- og dótakassi! Því
fer fjarri . Þessi sýning endurspeglar einmitt hversu gríðarlega
víðfeðmur sjávarútvegur á Íslandi er, hversu margir koma við
sögu í greininni dag frá degi . Útgerðir, fiskvinnslur, afurðasölu-
fyrirtæki, þjónustuaðilar af öllum stærðum og gerðum, rann-
sóknafyrirtæki, sveitarfélög og þannig má endalaust halda
áfram .
Og hér skal ekki látið hjá líða að nefna það blað sem þú,
lesandi góður, heldur á . Tímaritið Ægi, sem fylgt hefur ís-
lenskum sjávarútvegi lengur en margir aðrir eða í yfir 100 ár .
Að sjálfsögðu erum við hluti af greininni og að sjálfsögðu
verðum við líka á Íslensku sjávarútvegssýningunni .
2
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
Hnífar og brýni
í miklu úrvali
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
Útgefandi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Ritstjórn:
Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Ak ur eyri.
Ritstjóri:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Textagerð:
Atli Rúnar Halldórsson, Árni Þórður Jónsson,
Bryndís Nielsen, Geir Guðsteinsson,
Gunnar E. Kvaran, Jóhann Ólafur Halldórsson,
Svava Jónsdóttir, Valþór Hlöðversson.
Augl‡singar:
Augljós miðlun ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Hönnun&umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Áskrift:
Hálfsársáskrift a› Ægi kostar 4360 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get i›.
Jóhann Ólafur
Halldórsson ritstjóri