Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 70

Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 70
68 Makrílveiðarnar síðustu tvö til þrjú sumur hafa aukið umsvifin í höfnum Fjarðabyggðar umtalsvert og eru sannarlega mikil og góð búbót, að sögn Steinþórs Péturssonar, hafnarstjóra . Makrílvinnsla hefur verið mest á Norð- firði og Fáskrúðsfirði, með tilheyrandi uppgripum fyrir landverkafólk og ekki hvað síst skólafólk . „Þetta er á allan hátt jákvætt . Mikil vinna og það léttir undir með skólafólki og þar með heimilum hér á svæðinu . Og því er auðvitað ekki að neita að allir njóta, útgerðirnar, fyrirtækin og ekki síður hafnirnar þegar miklu er landað og mikið unnið í húsunum,“ segir Steinþór en uppsjávarfrystihús Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur verið afkastamest í frystingu á makríl . Steinþór segir að til viðbótar við land- anir uppsjávarfiskiskipa á ferskum makríl afsetji mörg frystiskipanna afurðir sínar í frystigeymslur eða beint um borð í flutningaskip . Þannig má segja að í allt sumar hafi ýmist ferskum eða frystum makríl verið landað í fjórum höfnum, þ .e . Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði . Þessar fjórar, ásamt Stöðvarfjarðarhöfn og Mjóafjarðarhöfn mynda hafnir Fjarðabyggðar og einnig vöruhöfnin við Fjarðaál í Reyðarfirði . Steinþór segir að tilkoma þess mann- virkis hafi aukið umfang og rekstur hafna Fjarðabyggðar umtalsvert enda miklir vöruflutningar í tengslum við fram- leiðslu fyrirtækisins til viðbótar öðrum flutningum um höfnina . Aukin umferð stórra flutningaskipa vegna álversins krefjist öflugs dráttarbáts sem höfnin hafði ekki yfir að ráða áður, en hann nýtist einnig öðrum höfnum sveitar- félagsins þegar þannig háttar til . Yfir fjórðungur aflamarks landsins „Sú þróun sem er hvað eftir- tektarverðust hjá okkur er styrking hafnanna sem fiskihafna með aukinni löndun á uppsjávarfiski . Hér hefur verið mikið byggt upp hjá fyrirtækjunum vegna uppsjávarveiða, bæði frystihús, bræðslur og frystigeymslur . Loðnan hefur verið í lægð en virðist nú á upp- leið á sama tíma og hægara er um í ís- lensku síldinni og kolmunna . Síðan kom makríllinn af miklum krafti inn í þetta þannig að hér á fjörðunum vorum við og erum vel í stakk búin að takast á við þessar veiðar og vinnslu . Enda sýna tölurnar að á bilinu 25-28% af úthlut- uðum kvóta kemur á land í höfnum Fjarðabyggðar . Og að sama skapi eru þessar hafnir að skila mjög háu hlutfalli í útflutningsverðmætum sjávarafurða,“ segir Steinþór . Á árinu 2010 var land- aður afli í höfnum Fjarðabyggðar um 300 þúsund tonn . Þar af var landað tæpum 200 þúsund tonnum á Norðfirði . „Þetta sýnir öðru fremur hversu miklar fiskihafnir þetta eru og hversu upp- sjávarfiskur vegur þungt í Fjarðabyggð . Það endurspeglast síðan í öllum um- svifum í kringum þær .“ Um helstu framkvæmdaverkefni á þessu ári segir Steinþór að lokið hafi verið við gerð þekju á nýjan stálþilskant á Norðfirði auk þess sem endurnýjun standi yfir í öllum höfnunum á flot- bryggjum fyrir smábáta . „Þetta er bæði vegna aukinna umsvifa í smábátaútgerð og fjölgunar skemmtibáta . Í þessu sem öðru reynum við að fylgja þróuninni eftir og hafa aðstöðuna sem besta,“ segir Steinþór . Hafnir Fjarðabyggðar Hafnargötu 2 730 Fjarðabyggð Sími 470 9000 www.fjardabyggd.is FJARÐABYGGÐ HAFNARÞJÓNUSTA EINS OG HÚN GERIST BEST! Hafnarsjóður Fjarðabyggðar Löndunarþjónusta Ísverksmiðja Kæligeymsla Frystigeymsla Vélaverkstæði Veiðarfæraþjónusta Rafeindaþjónusta Olíuafgreiðsla Flutningar Afþreying Verslanir Bankaþjónusta Læknisþjónusta Sími 470 9000 - Bréfasími 477 1771 Netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is Veffang www.fjardabyggd.is FJARÐABYGGÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Norðfjörður Þegar lagst er að bryggju er ómetanlegt að eiga í vændum hafnarþjónustu sem mætir öllum þörfum skips og áhafnar. Njótið stunda milli stríða á höfnunum í Fjarðabyggð. Við tökum vel á móti ykkur. ÍS L E N S K A /S IA .I S /F JA 4 92 97 0 2/ 10 Norðfjörður er stærsta fiskilöndunarhöfnin í Fjarðabyggð . Uppgangur í Fjarða- byggðarhöfnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.